Leik lokið: Tindastóll-Keflavík 116-79 | Kefl­víkingar rassskelltir á Króknum

Arnar Skúli Atlason skrifar
Sigtryggur Arnar Björnsson með bros á vör.
Sigtryggur Arnar Björnsson með bros á vör. vísir/Jón Gautur

Tindastóll steig stórt skref í átt að deildarmeistaratitlinum í Bónus deild karla í körfubolta og gerði leið Keflvíkinga að úrslitakeppninni enn grýttari með stórsigri í leik liðanna í Síkinu í kvöld. 

Stólarnir voru komnir 23 stigum yfir eftir fyrsta leikhlutann, 32-9, og unnu að lokum með 37 stiga mun, 116-79. 

Frammistaða Keflvíkinga í kvöld var andlegt gjaldþrot miðað við hvað mikið er undir hjá liðinu þessa dagana. Heimamenn hjá Stólunum sýndu aftur á móti að þeir eru komnir í Íslandsmeistaragírinn.

Frekari umfjöllun um leikinn og viðtöl koma inn á Vísi á eftir.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira