Viðskipti innlent

Bjarki og Axel Valdemar nýir for­stöðu­menn hjá atNorth

Atli Ísleifsson skrifar
Axel Valdemar Gunnlaugsson, forstöðumaður upplýsingatækni og Bjarki Björnsson, forstöðumaður fjármögnunar og fjárstýringar hjá atNorth.
Axel Valdemar Gunnlaugsson, forstöðumaður upplýsingatækni og Bjarki Björnsson, forstöðumaður fjármögnunar og fjárstýringar hjá atNorth.

Gagnavers- og ofurtölvufyrirtækið atNorth hefur ráðið Bjarka Björnsson sem forstöðumann fjármögnunar og fjárstýringar og Axel Valdemar Gunnlaugson í starf forstöðumanns upplýsingatækni.

Í tilkynningu segir að báðr búi að áratugareynslu á sínu sviði. 

„Bjarki kemur til með að bera ábyrgð á fjölda verkefna, þar á meðal sjálfbærri fjármögnun á vexti fyrirtækisins. Meðal verkefna Axels verður svo að leiða stefnumótun og samþættingu kerfa og ferla hjá atNorth.

Ráðning Bjarka og Axels til atNorth er til komin af auknum umsvifum fyrirtækisins, en yfirstandandi er stækkun gagnavera atNorth á Akureyri og í Reykjanesbæ,“ segir í tilkynningunni.

Fram kemur að Bjarki komi til atNorth frá Marel þar sem hann hafi starfað frá 2011, fyrst sem sérfræðingur í fjárstýringu, en svo sem yfirmaður fjárstýringar og fjármögnunar. 

„Áður starfaði Bjarki hjá SP-Fjármögnun í fjárstýringu frá árinu 2004.

Bjarki lauk B.Sc. gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík 2005 og meistaragráðu í fjárfestingastjórnun frá sama skóla 2009.

Axel hefur sérhæft sig í þróun hugbúnaðar og högun tæknilegs umhverfis fyrirtækja jafnt heima og erlendis, en áður en hann kom til atNorth var hann tæknistjóri Icelandia (Kynnisferða) frá 2021. Hann er að auki stofnandi og stjórnarmaður í upplýsingatæknifyrirtækinu Codilac.

Axel lauk námi í tölvu- og upplýsingafræði við University of Oregon í Bandaríkjunum 1984,“ segir í tilkynningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×