Uppgjörið: FH 5 - 1 Tindastóll | FH gekk frá Tindastól í seinni hálfleik Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar 16. júní 2025 17:17 FH-konur halda áfram sínu frábæra flugi í sumar. vísir/Guðmundur FH-ingar tóku á móti Tindastól í 9. umferð Bestu deildar kvenna á Kaplakrika í kvöld og sýndu sannkallaða markaveislu í síðari hálfleik. Lokatölur urðu 5-1 fyrir heimakonur sem lyftu sér með sigrinum í toppbaráttu í deildinni. Leikurinn byrjaði af miklu fjöri og var Thelma Karen Pálmadóttir nálægt því að koma FH yfir strax á 2. mínútu leiksins, en skot hennar fór yfir markið. Það voru þó gestirnir á 27. mínútu sem komust yfir eftir vandræði hjá Söndru Sigurðardóttir í markinu. Makala Woods og Elísa Bríet Björnsdóttir pressuðu frábærlega og komu boltanum í netið. Bæði lið voru dugleg að sækja en náðu ekki að nýta færin sín. Staðan því 0-1 og þannig stóðu leikar í fyrri hálfleik. FH-ingar komu ákveðnar til leiks í seinni hálfleik og eftir tvær breytingar Guðna Eiríkssonar þjálfara FH, skoraði varamaðurinn Birna Kristín Björnsdóttir og jafnaði metin strax á 47. mínútu. Jöfnunarmarkið kveikti eldmóð í heimamönnum og slökktu hreinlega á gestunum sem áttu engin svör við sóknum FH-inga. Seinna mark FH kom á 53. mínútu eftir vel útfærða sókn. Maya Lauren Hansen lagði boltann á Ídu Marín Hermannsdóttir sem átti gott skot á markið en markvörður Tindastóls, Genevieve Crenshaw varði í fyrstu en sló svo boltann óheppilega í eigið net. Það var svo Maya Lauren Hansen sjálf sem bætti við þriðja markinu á 67. mínútu eftir frábæra sendingu frá Elísu Lönu Sigurjónsdóttir inn fyrir vörnina. Fjórða mark leiksins kom einnig af varnar mistökum þegar María Dögg Jóhannesdóttir setti boltann í eigið net við tilraun að hreinsa skot Ídu Marínar Hermannsdóttur. Ída Marín gerði svo endanlega út um leikinn með marki sínu á 83. mínútu eftir laglega fyrirgjöf Ingibjargar Magnúsdóttir og tók boltann viðstöðulaust í netið. Fleiri urðu mörkin ekki og með sigrinum tyllir FH sér með Þrótti og Breiðablik á toppi deildarinnar með 22 stig. Atvik leiksins Jöfnunarmark Birnu Kristínar Björnsdóttir kveikti í FH-ingum og áttu Tindastóll erfitt með að verjast sóknum þeirra. Atvik leiksins er þó líklega varnarmistök Söndru Sigurðardóttir í marki Tindastóls. Stjörnur og skúrkar Ída Marín Hermannsdóttir og Maya Lauren Hansen voru frábærar í seinni hálfleik. Ída Marín var með eitt mark og átti svo bæði skotin í báðum sjálfsmörkum Tindastóls. Maya Lauren Hansen með mark og hálfa stoðsendingu ef svo má segja. Skúrkurinn verður því miður að vera Sandra Sigurðardóttir sem virtist ekki vera nægilega örugg í fyrri hálfleik. Stemning og umgjörð Geggjuð stemning í Kaplakrika og mjög góð mæting á leikinn. Ég fékk að heyra að það hefði um það bil 400 manns mætt á leikinn. Það er alltaf gott að koma í Kaplakrika. Dómarar Ronnarong Wongmahadthai, Breki Sigurðsson og Daníel Örn Arnarson dæmdu leikinn bara mjög vel. Það voru engin vafamál og leikurinn var með mjög gott flæði. Velti fyrir mér hvort einhver annar dómari hefði spjaldað Laru Margréti Jónsdóttir þegar hún braut á Ídu Marín Hermannsdóttir tveimur mínútum eftir að hafa fengið sitt fyrsta gula spjald. Ída Marín: Hlynur drullaði yfir okkur Ída Marín fagnar markiVísir/Ernir „Frammistaðan í fyrri hálfleik var ekki frábær, við vorum bara ekki vaknaðar, við vorum seinar í alla bolta og fáum leiðinlegt mark á okkur.“ FH-ingar voru einu marki undir í fyrri hálfleik og var frammistaðan ekki nægilega góð. Það voru gerðar tvær breytingar á liðinu fyrir seinni hálfleikinn og kom liðið af krafti inn í seinni hálfleikinn. „Við fengum að heyra það frá Hlyni Eiríkssyni (þjálfara FH) í hálfleik en ég held að við þurftum á því að halda til þess að ná fram betri frammistöðu í seinni hálfleik og við áttum það einfaldlega skilið.“ Það voru 337 áhorfendur á leiknum og mikið af yngri iðkendum FH að horfa á fyrirmyndirnar sínar spila í kvöld. „Stuðningsmenn skipta okkur gríðarlega miklu máli og eftir fyrsta markið okkar þá heyrum við vel í stúkunni að fagna með okkur, ég vil bara þakka þeim fyrir.“ Halldór Jón: Verðum fúl fram í Borgarnes Halldór Jón Sigurðsson, þjálfari TindastólsVísir/Pawel Cieslikiewicz „Fyrri hálfleikur var góður, við vorum yfir í baráttu og bara yfir höfuð. Við hefðum átt að skora fleiri og ég var mjög ánægður með fyrri hálfleikinn,“ sagði Halldór en það gekk töluvert verr í seinni hálfleik. „Seinni hálfleikur var afburða dapur, við vildum alls ekki að þær myndu skora svona snemma til þess að fá blóð á tennurnar. Þetta FH lið er mjög gott og þau geta skipt landsliðsstelpum inn fyrir þær sem voru inn á sem voru líka góðar og það er erfitt við það að eiga. Það er geggjað sjálfstraust í gangi þarna og þær voru ógeðslega flottar í seinni hálfleik og það var bara lítið við því að gera,“ sagði Halldór „Við áttum góðar 45 mínútur af fótboltaleik og ég var ánægður með fyrri hálfleikinn en svo dró svakalega af okkur og við áttum bara ekki roð í þær í seinni hálfleik,“ sagði Halldór Tindastóll mætir FHL næst en þær hafa ekki enn fengið stig og því góðar líkur á sigri þar. „Næsti andstæðingur er öðruvísi og völlurinn verður öðruvísi, það verður bara öðruvísi stríð. Við einbeitum okkur núna að FHL og verðum fúl fram í Borgarnes og svo verðum við að fara hugsa um næsta leik,“ sagði Halldór. Besta deild kvenna FH Tindastóll