Umfangsmikil lögregluaðgerð víða um landið Agnar Már Másson skrifar 19. júní 2025 09:04 Í aðgerðunum var lögreglan á Norðurlandi eystra í samstarfi við lögregluna á Vesturlandi, lögregluna á höfuðborgarsvæðinu og sérsveit Ríkislögreglustjóra. Vísir/Vilhelm Lögreglan og sérsveitin réðust í umfangsmiklar aðgerðir gegn fíkniefnaframleiðslu víða um landið í gær. Ráðist var í húsleit á Raufarhöfn í gær.
Í aðgerðunum var lögreglan á Norðurlandi eystra í samstarfi við lögregluna á Vesturlandi, lögregluna á höfuðborgarsvæðinu og sérsveit Ríkislögreglustjóra. Lögreglan á Norðurlandi eystra greinir frá því á Facebook að um kl. 10 í gærmorgun, 18. júní, hafi lögreglan ráðist í samræmdar lögregluaðgerðir á nokkrum stöðum á landinu þar sem húsleitir hafi verið framkvæmdar að undangengnum úrskurðum frá Héraðsdómi Norðurlands eystra. „Lögreglan á Norðurlandi eystra hefur um nokkurt skeið unnið að rannsókn á skipulagðri brotastarfsemi sem talin er tengjast fíkniefnaframleiðslu,“ segir í Facebook-færslunni. „Með aðgerðunum í gær var unnt að staðfesta þessar grunsemdir og er rannsókn á frumstigi. Farið verður fram á gæsluvarðhald yfir sakborningum í dag. Málið er enn á viðkvæmu stigi og ekki er unnt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu.“ Nútíminn greindi frá því í gær að umfangsmikil lögregluaðgerð hefði staðið yfir á Raufarhöfn frá morgni til kvölds. Haft er eftir vitnum að sérsveitin hafi farið inn í hús og brotið sér leið inn.
Lögreglumál Norðurþing Fíkniefnabrot Mest lesið Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Innlent Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi Innlent Fleiri fréttir Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Sjá meira