Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 1-4 | Kristófer með þrennu á móti uppeldisfélaginu Stefán Marteinn Ólafsson skrifar 27. júní 2025 21:05 Blikar fagna hetju sinni í kvöld. Kristófer Ingi Kristinsson átti rosalega innkomu. Sýn Sport Blikar unnu 4-1 endurkomusigur í Garðabænum í Bestu deild karla í fótbolta í kvöld og geta þakkað varamanninum Kristófer Inga Kristinssyni fyrir það. náðu Víkingum að stigum með sigrinum en Víkingar halda toppsætinu á markatölu. Leikurinn fór nokkuð fjörugt af stað og átti Breiðablik hættulega sókn strax á upphafsmínútum sem þeir voru óheppnir að nýta ekki. Valgeir Valgeirsson átti þá flottan sprett inn á teig en sendingin út fór fyrir aftan sóknarmenn Breiðabliks. Það dró svo til tíðinda á 9. mínútu leiksins þegar boltinn barst til Benedikt Warén úti á vinstri væng og hann kom inn á völlinn og inn á teig þar sem hann lét svo vaða upp í fjærhornið óverjandi fyrir Anton Ara í marki Breiðabliks. Frábært mark hjá Benedikt Warén sem er uppalinn Bliki. Bæði lið áttu lofandi sóknartækifæri í fyrri hálfleiknum. Breiðablik áttu þó fleiri tækifæri og komst nokkrum sinnum í flottar stöður og góð skotfæri en Stjörnumenn voru fljótir að henda sér fyrir og vörðust vel. Mikil barátta var inni á vellinum í fyrri hálfleiknum en það voru Stjörnumenn sem leiddu inn í hálfleikinn með einu marki gegn engu. Stjarnan leyfði Breiðablik að hlaupa á sig í upphafi seinni hálfleiks og voru tilbúnir að sprengja upp þegar þeir unnu boltann. Stjarnan komst í hættulegar stöður og áttu hörku skot í stöngina þegar Jóhann Árni Gunnarsson fékk tíma til að stilla sér upp í skot eftir hraða sókn þegar um tíu mínútur voru liðnar af síðari hálfleik. Breiðablik gerði þrefalda skiptingu á 68. mínútu leiksins sem átti eftir að reynast frábær skipting því aðeins tveim mínútum seinna var Kristófer Ingi Kristinsson sem kom inn á sem varamaður búin að jafna leikinn fyrir Breiðablik þegar hann renndi sér á bolta sem kom á fjærstöngina og skilaði honum í netið. Kristófer Ingi Kristinsson var svo aftur á ferðinni á 77. mínútu leiksins þegar hann fær boltann frá Viktor Karl Einarssyni fyrir utan teig og stillir sér bara upp í frábært skot sem syngur í netinu. Breiðablik búnir að snúa leiknum sér í vil og frábær innkoma hjá Kristófer Inga. Kristófer Ingi Kristinsson fullkomnaði svo frábæra innkomu sína í þennan leik þegar hann kláraði þrennuna með frábæru marki sláin inn á 85. mínútu. Aron Bjarnason stráði svo salti í sár Stjörnumanna með fjórða markinu í uppbótartíma og þar við sat. Breiðablik fór með frábæran 1-4 sigur af hólmi. Atvik leiksins Þreföld skipting Halldórs Árnasonar á 68. mínútu leiksins þegar hann setti Kristófer Inga Kristinsson inn á völlinn. Sá skilaði sínu! Aron Bjarnason kom einnig inn í sömu skiptingu og hann skoraði síðasta mark leiksins svo varamenn Blika kláruðu dæmið í dag. Stjörnur og skúrkar Kristófer Ingi Kristinsson skoraði þrennu eftir að hafa komið inn á sem varamaður. Erfitt að reyna ætla að horfa framhjá því. Hjá Stjörnunni var Benedikt Warén hættulegastur en það fellur allt í skuggan á innkomu Kristófers Inga. Dómararnir Sigurður Hjörtur Þrastarson sá um flautuleikinn í kvöld og honum til aðstoðar voru Patrik Freyr Guðmundsson og Eðvarð Eðvarðsson. Línan hjá teyminu var á tíðum heldur slitrótt en bæði lið fengu að kynnast því. Allt í lagi ekki gott var einhvertíman sagt. Stemingin og umgjörð Það var vel mætt á Samsungvöllinn í kvöld. Stuðningsmannasveitir beggja liða sungu og trölluðu sem myndaði flotta stemningu. Umgjörðin hérna er svo alltaf upp á 10,5! Viðtöl Halldór Árnason, þjálfari Breiðabliks.vísir / PAWEL „Ómetanlegt að eiga svona menn á bekknum“ „Frábær frammistaða fannst mér“ sagði Halldór Árnason í samtali við Gunnlaug Jónsson eftir sigurinn í kvöld. „Mér fannst kveikt á okkur bara frá upphafsspyrnu. Mér fannst við mjög góðir sóknarlega og varnarlega allan leikinn á móti góðu Stjörnuliði sem hefur verið að spila vel upp á síðkastið og bara virkilega sterk frammistaða hjá liðinu“ Halldór Árnason gerði þrefalda skiptingu um miðbik síðari hálfleiks sem átti heldur betur eftir að skila sér vel. „Þetta voru kannski fleiri mínútur en við höfðum séð fyrir okkur en þvílík innkoma hjá þeim öllum. Kristófer Ingi hefur verið frá auðvitað mjög lengi. Eftir að hann hafði náð sér af ökkla meiðslum þá komu önnur meiðsli og svona aðeins hökkt en þessi innkoma er nátturlega rosalega hérna á gamla heimavellinum og ómetanlegt að eiga svona menn á bekknum auðvitað“ Breiðablik sýndi að breiddin er svo sannarlega til staðar hjá liðinu en það vantaði stóra pósta í dag. „Við vissum alveg að við gætum lent í meiðslum og vissum alveg að við gætum misst Tobias út, Höskuld, báða hafsentana eða hvernig sem það er. Við reynum að taka á því bara tímalega og vita hvaða svör við höfum. Það er ekkert sem á að koma á óvart fyrir okkur“ Jökull Elísabetarson þjálfari Stjörnunnar.Vísir/Pawel Cieslikiewicz „Margt sem við gerðum vel og margt sem við getum gert betur“ „Frekar jafn leikur þangað til að þeir gera skiptingu“ sagði Jökull I. Elísabetarson þjálfari Stjörnunnar í samtali við Gunnlaug Jónssson eftir tapið í kvöld. „Mér fannst þeir ekki vera að skapa neitt afgerandi þangað til og svo er einn maður hjá þeim algjörlega á deginum sínum hinumeginn og ekkert við því að gera“ Jökull fannst Breiðablik ekki skapa sér nein alvöru færi og hefði viljað fá eitthvað út úr þessum leik. „Bara eins og alltaf þá er margt sem að við gerðum vel og margt sem að við getum gert betur. Þetta er ekki besti leikur sem að við höfum spilað en mér fannst þeir ekki vera að skapa neitt, ekki þannig“ „Það voru boltar sem voru að rúlla inn á teiginn en það var á engann. Það var enginn maður þarna neinstaðar nálægt þannig það urðu engin færi. Miðað við það þá hefði ég viljað fá eitthvað meira út úr þessum leik“ Emil Atlason kom inn á sem varamaður í leiknum en var tekinn útaf aftur undir lok leiks. „Kannski mistök bara hjá mér að setja hann inn. Hann var ekki að ná að beita sér. Andri [Rúnar Bjarnason] var bara orðin þreyttur og ekkert að honum. Hann verður klár áfram og núna reynum við að gera Emil kláran fyrir þriðjudaginn“ Besta deild karla Breiðablik Stjarnan