Leik lokið: Breiða­blik - Zrinjski 1-2 (2-3) | Blikar í umspil upp á sæti í Sambandsdeildinni

Árni Jóhannsson skrifar
531561416_31338849879033598_7149772890571111383_n
vísir/Diego

Breiðablik tapaði seinni leiknum gegn Zrinskij Mostar 1-2 og einvíginu samanlagt 2-3. Blikarnir eru því úr leik í Evrópudeildinni en eru á leið í umspil upp á sæti í Sambandsdeildinni.

Namanja Bilbija kom gestunum yfir snemma leiks með mjög svo klaufalegu marki. Valgeir Valgeirsson skoraði svo sjálfsmark í upphafi seinni hálfleiks sem tvöfaldaði forystu gestanna.

Höskuldur Gunnlaugsson minnkaði muninn úr vítaspyrnu en nær komst Breiðablik ekki þrátt fyrir fínar tilraunir á lokamínútunum.

Breiðablik fer í umspil gegn tapliðinu úr einvígi Milsami frá Moldóvu og Virtus frá San Marino. Virtus er marki undir í einvíginu en seinni leiknum lýkur um klukkan níu.

Nánari umfjöllun og viðtöl eru væntanleg á Vísi von bráðar. 

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira