Leik lokið: Tinda­stóll - Þróttur | Misstu Mist af velli og fengu á sig jöfnunarmark

Sindri Sverrisson skrifar
529680553_31306256112292975_5772377206937491633_n
vísir/Diego

Tindastóll og Þróttur gerðu 1-1 jafntefli í þrettándu umferð Bestu deildar kvenna. Liðin sitja áfram í þriðja og áttunda sæti deildarinnar en eru stiginu ríkari.

Unnur Dóra Bergsdóttir kom Þrótti yfir rétt fyrir hálfleik en seint í seinni hálfleik varð Þróttur manni færri þegar Mist Funadóttir fékk sitt seinna gula spjald.

Tindastóll gekk á lagið manni fleiri og tókst að setja sanngjart jöfnunarmark í uppbótartímanum, María Dögg Jóhannesdóttir var þar á ferð.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira