Skoða hvort miðasölubrask FIFA sé ólögleg veðmálastarfsemi Kjartan Kjartansson skrifar 16. október 2025 11:39 Gianni Infantino, forseti FIFA, (t.h.) með heimsmeistarabikarinn í hönd við hlið Donalds Trump Bandaríkjaforseta í Hvíta húsinu. Báðir menn þekkja vel þá list að hámarka nyt sín. Vísir/EPA Eftirlitsstofnun í Sviss hefur hafið frumkvæðisskoðun á því hvort að Alþjóðaknattspyrnusambandið (FIFA) stundi ólöglega veðmálastarfsemi með sölu á sýndareignum í aðdraganda að heimsmeistaramóti á næsta ári. Eignirnar veita möguleika á að kaupa miða á leiki á mótinu og ganga kaupum og sölum dýrum dómum.
FIFA selur nú svokölluð stafræn skírteini (NFT) en það er tegund af sýndareignum sem hafa rutt sér til rúms á undanförnum árum samhliða vexti rafmynta. Skírteinin innihalda stafrænar útgáfur af atvikum á mótum FIFA og spjöld með leikmönnum í takmörkuðu upplagi, að því er kemur fram á vefsíðu sambandsins. Sumum þessara skírteina fylgir réttur til þess að kaupa miða á ákveðna leiki á heimsmeistaramótinu sem verður haldið í Norður-Ameríku á næsta ári. Sá réttur er þó háður ýmsum breytum, meðal annars hvort að lið þess sem kaupir skírteinið komist á mótið. Þá eru ýmis skilyrði fyrir hvers konar miða viðkomandi fær tækifæri til að kaupa. Bloomberg-fréttastofan (áskriftarvefur) sagði frá því í síðustu viku að svissnesk eftirlitsstofnun hefði nú til athugunar hvort að þessi sala FIFA á NFT-skírteinum ætti að falla undir lög um veðmálastarfsemi. Forstöðumaður stofnunarinnar sagði fjölmiðlinum að hún væri að safna gögnum og að engin formleg kvörtun hefði borist vegna sölunnar. Hér sést sýnirhorn af rafrænum skírteinum (NFT) sem FIFA selur. Bæði er hægt að kaupa slík skírteini með kauprétti á miðum á HM og kaupa skírteini með möguleika á að fá kauprétt.FIFA Collect Verð á skírteinunum fyrir HM 2026 er á bilinu 299 til 999 dollarar, jafnvirði rúmlega 36 þúsund til rúmlega 121 þúsund íslenskra króna, eftir því hversu líklegt lið er til þess að komast á mótið, að sögn rafmyntafréttasíðunnar Cryptonews. Þannig er dýrara að kaupa skírteini fyrir stórþjóðir eins og Brasilíu, Argentínu og England en fyrir minni spámenn. Kaupendur skírteinanna þurfa svo að greiða sérstaklega fyrir miðana sjálfa. Cryptonews segir að mörg skírteinanna séu þegar uppseld. Þau ganga hins vegar kaupum og sölum á sérstöku markaðstorgi með þau. Endursöluverð þeirra þar er sagt geta hlaupið á hátt í milljón íslenskra króna. FIFA segist hafa tekið upp þetta kaupréttarkerfi til þess að bregðast við gríðarlegri umframeftirspurn eftir miðum á leiki á HM. Þannig hafi 3,4 milljónir miða verið í boði á leik á mótinu í Katar árið 2022 en eftirspurn var eftir 23 milljónum miða.
FIFA Rafmyntir HM 2026 í fótbolta Fótbolti Fjárhættuspil Mest lesið Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Viðskipti innlent Fréttamaður missti af strætónum til baka Neytendur Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Viðskipti innlent Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag Viðskipti innlent 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Viðskipti innlent „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Viðskipti innlent Gapti þegar hún sá heimilisbókhaldið hjá Röggu nagla Neytendur Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Viðskipti innlent Klíníkin sótti 300 milljónir króna Viðskipti innlent Fleiri fréttir Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Olíuflæðið nálgast fyrra horf en verð lækkar ekki OpenAI hættir við að gefa út nýtt „svikult“ líkan Japanskir stýrivextir ekki eins háir í þrjátíu ár Hækkuðu stýrivexti í Bandaríkjunum í fyrsta skipti í þrjú ár Olíubirgðir að klárast og krísa líkleg Ákall gervigreindarrisa: Eina sem gervigreindin þurfi sé „sterkur og snjall forseti“ Novo hættir að vera Nordisk Opinbera sinn fyrsta langloku-iPhone og boða verðhækkanir Útlit fyrir lökustu vínframleiðslu í tæp sjötíu ár Greiða 4,3 milljarða vegna sölu persónuupplýsinga ChatGPT virkar á ný Flytja gull frá Bandaríkjunum og Kanada af öryggisástæðum Setja gjald á hraðtískuvörur Apple fær nýjan forstjóra Vilja skapa hvata til að beina sparnaði Evrópubúa í fjárfestingar Sjá meira