Viðskipti innlent

Stálu hundruðum milljóna hjá Lands­bankanum

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Lilja Björk Einarsdóttir er bankastjóri Landsbankans.
Lilja Björk Einarsdóttir er bankastjóri Landsbankans. Vísir/Vilhelm

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur til rannsóknar fjársvik upp á um fjögur hundruð milljónir af íslensku bönkunum. Einstaklingum tókst að millifæra háar upphæðum af eigin reikningum án þess að inneign væri til staðar vegna galla hjá Reiknistofu bankanna. Fimm sæta farbanni grunaðir um aðild að málinu.

Málið uppgötvaðist hjá Landsbankanum á föstudaginn en það rataði á borð lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á laugardaginn. RÚV greinir frá því að lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafi farið fram á gæsluvarðhald yfir fimm karlmönnum vegna málsins. Kröfunni hafi verið hafnað en mennirnir sæta farbanni. Samkvæmt heimildum Vísis er bæði um að ræða innlenda og erlenda karlmenn.

Tíu milljónum stolið hjá Arion banka

Rúnar Pálmason upplýsingafulltrúi Landsbankans segir að málið hafi uppgötvast á föstudaginn. Landsbankinn hafi greint orsök og umfang málsins og gripið til aðgerða til að koma í veg fyrir frekari misnotkun. 

„Tjón bankans gæti numið 200 milljónum króna en unnið er að því að endurheimta féð og gæti sú fjárhæð því lækkað,“ segir Rúnar. Landsbankinn taki málið mjög alvarlega en tekið er fram að viðskiptavinir hafi ekki orðið fyrir tjóni vegna þessa.

Haraldur Guðni Eiðsson, upplýsingafulltrúi Arion banka, segir að um eitt tilfelli sé að ræða hjá Arion banka upp á um tíu milljónir króna. Bjarney Anna Bjarnadóttir, upplýsingafulltrúi hjá Íslandsbanka, er að vinna í skriflegu svari frá Íslandsbanka vegna málsins.

Lokað fyrir möguleikann þegar svikin uppgötvuðust

Í tilkynningu frá Reiknistofu bankanna segir að við uppfærslu á kerfum hjá RB nýverið hafi skapast tímabundinn veikleiki sem hafi orðið til þess að við tilteknar aðstæður millifærðu nokkrir einstaklingar fjármuni af eigin reikningum án þess að inneign væri til staðar. 

„Um leið og svikin uppgötvuðust var lokað fyrir þennan möguleika í samstarfi við viðskiptavini okkar,“ segir í tilkynningunni sem Sigurður Örn Hallgrímsson, forstöðumaður þjónustustýringar og markaðsmála, sendir fjölmiðlum.

Stefán Örn Arnarson, aðstoðaryfirlögregluþjónn í fjármunabrotadeild lögreglunnar, segir málið hafa verið tilkynnt embættinu um hádegisbil á laugardaginn. 

„Sú upphæð sem við höfum til rannsóknar er í kringum 400 milljónir króna,“ segir Stefán. Neitun um gæsluvarðhald hafi verið kærð til Landsréttar. Aðspurður hvernig hinir grunuðu komust að veikleikanum segir Stefán verknaðaraðferðina enn til rannsóknar. Rannsóknin sé flókin og þá sérstaklega rakning fjármuna sem verði töluvert flókin. Færst hefur í aukana að einstaklingar nýti sér rafmyntir til að koma illa fengnu fé undan. 

„Öryggismál eru efst í forgangsröðinni hjá okkur og við leggjum mikið upp úr því að koma í veg fyrir að hægt sé að misnota kerfin. Í þessu tilfelli náðist með illum ásetningi að misnota þetta tímabundna ástand í kerfinu sem varð til við uppfærslu. Þetta er enn og aftur áminning um mikilvægi öryggismála sem eru í stöðugri endurskoðun og endurmati hjá okkur.“

Reiknistofabankanna stendur við Dalveg 30 í Kópavogi.RB

Málið sé komið í viðeigandi farveg en tekið er fram að viðskiptavinir bankanna hafi ekki orðið fyrir tjóni vegna málsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×