Ekki gera ekki neitt Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar 13. janúar 2026 12:00 Áttu barn eða ungmenni með fjölþættan vanda? Áttu fjölskyldumeðlim sem er að falla á milli kerfa í félags- og velferðarmálum? Hefur þú leitað eftir aðstoð og fengið þau svör að þetta sé ekki á borði þessa kerfis heldur einhvers annars? Hefur þú upplifað biðlista, ábyrgðarleysi, aðgerðarleysi eða algert tómarúm þegar þú þarft mest á stuðningi að halda? Þetta er veruleiki allt of margra fjölskyldna á Íslandi í dag. Ég veit hvað er ekki að virka. Kerfin tala ekki nægilega vel saman. Úrræði eru of fá, of sein eða alls ekki til staðar. Fólk er sent á milli aðila þar til það gefst upp, veikist enn frekar eða dettur alveg út úr samfélaginu. Þetta á sérstaklega við þegar kemur að börnum og ungmennum með fjölþættan vanda, fólki með fíknivanda og fjölskyldum sem bera ábyrgðina einar. Það sem er jafn alvarlegt er að aðgerðarleysið virðist orðið normalíserað. Það er ljóst að velferðarkerfið hefur þróast hægt og breytingar reynast oft flóknar. Of oft fer orka í innri ferla og skipulag í stað þess að nýtast í samstarf og lausnamiðaða vinnu. Með því að færa fókusinn nær fólkinu sjálfu getum við styrkt kerfið og bætt þjónustuna. Of oft snýst umræðan um vald, stöður og átök í stað lausna og samvinnu. Það þjónar engum, allra síst þeim sem þurfa mest á hjálp að halda. Þegar mál hefur verið tekið til umfjöllunar skal liggja fyrir innan ákveðins tíma hvaða lausn verður farin, hver ber ábyrgð á framkvæmd hennar og hvenær hún tekur gildi. Án tímaramma verður engin ábyrgð og án ábyrgðar verða engar lausnir. Við erum að missa ungt fólk og alltof oft kemur hjálpin of seint. Ekki vegna þess að fólk vilji ekki hjálpa heldur vegna þess að kerfin tala ekki nægjanlega vel saman og úrræðin eru of fá. Þá er kerfislegt reynsluleysi í málaflokknum hjá úrræðunum sjálfum. Ég þekki það vel þegar kallað er eftir sérfræðiáliti innan borgarkerfisins, en samtalið nær ekki alltaf nægilega vel utan um raunverulegar aðstæður fólksins sem um ræðir. Of oft vantar reynslu af vettvangi og innsýn í daglegt líf þeirra sem þjónustan á að ná til. Það gerist ítrekað í okkar borg. Ekki gera ekki neitt. Þú getur haft veruleg áhrif, miklu meiri áhrif en margir gera sér grein fyrir. Með því að skrá þig í stjórnmálaflokk getur þú haft áhrif á hverjir raðast á lista, hverjir fá tækifæri til að vinna saman og hverjir sitja áfram án þess að skila árangri. Þetta snýst ekki um blindan flokksaga heldur um ábyrgð og þátttöku. Ég hvet sérstaklega foreldra, aðstandendur og þau sem hafa upplifað að detta á milli kerfa til að láta rödd sína heyrast. Þú getur skráð þig í Samfylkinguna hér xs.is/takathatt og tekið þátt í flokksvali. Það er undir hverjum og einum komið hvort fólk vilji vera skráð lengur eða skrá sig úr flokknum aftur strax að loknu flokksvali. Aðalmálið er að nýta þetta tækifæri til að hafa áhrif. Þú getur einnig skráð stuðning við mig á www.gudmunduringi.is ef þú vilt, en lykilatriði er að skrá sig í flokkinntil að hafa áhrif á þau mál sem standa þér næst. Ég er komin með nóg af aðgerðarleysi í velferðarmálum. Það vantar fólk með lífsreynslu, faglega þekkingu og raunverulega reynslu af því að vinna með fólki í vanda, fólk sem kann að vinna með öðrum og setja lausnir framar átökum. Ég hef barist í þessum málum lengi. Ég veit hvað þarf að gera og ég er tilbúinn að taka þessi mál föstum tökum. Kynntu þér mínar áherslur á www.gudmunduringi.is og skráðu þig til leiks til að aðstoða mig við að færa velferðamálin á hærra plan. Ég heiti Guðmundur Ingi Þóroddsson og sækist eftir 3. sæti á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík í flokksvalinu 24. janúar. Fólk sem vill aðstoð eða þarf aðstoð til að skrá sig og kjósa má hafa beint samband við mig í tölvupósti: frambod@gudmunduringi.is Ekki gera ekki neitt. Höfundur er formaður Afstöðu-réttindafélags og sérhæfður starfsmaður Landspítala háskólasjúkrahúss. Hann býður sig fram í þriðja sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík fyrir sveitarstjórnarkosningarnar árið 2026. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Guðmundur Ingi Þóroddsson Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Halldór 18.04.2026 Halldór Snorri Másson Heller Mills Sjöfn Asare Hauksdóttir Skoðun Táknin skipta ekki máli – fagmennskan gerir það Magnús Þór Jónsson Skoðun Lyfjatengd dauðsföll eru pólitísk ákvörðun Unnar Þór Sæmundsson Skoðun Slapp lifandi út af elliheimili Margrét Sigríður Guðmundsdóttir Skoðun Menntamálin eru í alvarlegum vanda Ragnar Þór Pétursson Skoðun Regnbogagrýlan Sigtryggur Ellertsson Skoðun Ríkisstjórnin má ekki bíða lengur Stefán Vagn Stefánsson Skoðun Kópavogsdalur er okkar Central Park Hákon Gunnarsson Skoðun Tímasetning efnahagsaðgerða er lykilatriði Þórarinn Ingi Pétursson Skoðun Skoðun Skoðun „Miskunnsami Samverjinn“ — sá sem þér ber að hata, fyrirlíta og forðast Sigurvin Lárus Jónsson skrifar Skoðun Samfélag regnbogans Dagný Kristinsdóttir skrifar Skoðun Táknin skipta ekki máli – fagmennskan gerir það Magnús Þór Jónsson skrifar Skoðun 30 ára aðlögun án áhrifa Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Kópavogsdalur er okkar Central Park Hákon Gunnarsson skrifar Skoðun Rödd þeirra sem bera kerfið uppi og rétturinn til að nota hana Formenn fag- og stéttarfélaga í heilbrigðisþjónustu skrifar Skoðun Trillukarlar – síðasta vígið gegn fáræði og spillingu Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Lyfjatengd dauðsföll eru pólitísk ákvörðun Unnar Þór Sæmundsson skrifar Skoðun Börn með málþroskaraskanir geta ekki beðið endalaust Hildur Jónsdóttir skrifar Skoðun Regnbogagrýlan Sigtryggur Ellertsson skrifar Skoðun Tímasetning efnahagsaðgerða er lykilatriði Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Snorri Másson Heller Mills Sjöfn Asare Hauksdóttir skrifar Skoðun Menntamálin eru í alvarlegum vanda Ragnar Þór Pétursson skrifar Skoðun Ríkisstjórnin má ekki bíða lengur Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Fullveldi eða ESB: Hver greiðir heimilisreikninginn? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Horfum lengra Auður Hrefna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Ilmefni í umhverfi barna Harpa Fönn SIgurjónsdóttir skrifar Skoðun Í stuttu máli: Villandi tal um aðlögunarviðræður Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Vald í velvild Guðný Sara Birgisdóttir skrifar Skoðun „Hugmyndafræði“ regnbogans Snæbjörn Guðmundsson skrifar Skoðun Álag vegna keppnisferða að buga suma foreldra Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Kostnaður, kvíði og aðskilnaður Sigdór Yngvi Kristinsson skrifar Skoðun Staðfestur kerfisbrestur! Hver ber ábyrgð? Jón Þór Guðjónsson skrifar Skoðun Aðlögun Íslands að ESB: Þrír ólíkir farvegir Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Sanngjörn þjónusta fyrir alla Kópavogsbúa - líka í efri byggðum Örn Arnarson skrifar Skoðun Sjúklingar með langvinna sjúkdóma bera fastan kostnað sem heilbrigðir blessunarlega sleppa við Gestur Andrés Grjetarsson skrifar Skoðun Á leiksviði lífsins Hörður Torfason skrifar Skoðun Ekki nóg að ráða – við þurfum að rækta Ingunn Björk Vilhjálmsdóttir skrifar Skoðun Áratugalöng barátta við sandfok í Þorlákshöfn Páll Marvin Jónsson,Garðar Þorfinnsson,Hreinn Óskarsson,Eva Lind Guðmundsdóttir,Davíð Halldórsson skrifar Skoðun Húsnæði er hluti af grunninnviðum samfélagsins, ekki bara markaðsvara Mikael Snær Gíslason skrifar Sjá meira
Skoðun „Miskunnsami Samverjinn“ — sá sem þér ber að hata, fyrirlíta og forðast Sigurvin Lárus Jónsson skrifar
Skoðun Rödd þeirra sem bera kerfið uppi og rétturinn til að nota hana Formenn fag- og stéttarfélaga í heilbrigðisþjónustu skrifar
Skoðun Sjúklingar með langvinna sjúkdóma bera fastan kostnað sem heilbrigðir blessunarlega sleppa við Gestur Andrés Grjetarsson skrifar
Skoðun Áratugalöng barátta við sandfok í Þorlákshöfn Páll Marvin Jónsson,Garðar Þorfinnsson,Hreinn Óskarsson,Eva Lind Guðmundsdóttir,Davíð Halldórsson skrifar
Skoðun Húsnæði er hluti af grunninnviðum samfélagsins, ekki bara markaðsvara Mikael Snær Gíslason skrifar