Ertu að kjósa gegn þínum hagsmunum? Guðni Freyr Öfjörð skrifar 16. janúar 2026 15:00 Ertu að kjósa gegn þínum hagsmunum? Þegar farið er yfir heildargögn Bjargs sem er óhagnaðardrifið leigufélag, ekki í brotum heldur í samhengi, blasir við mjög skýr mynd. Íbúðir sem þegar hafa verið kláraðar og afhentar sýna að Reykjavík hefur í mörg ár verið burðarás félagslegs leiguhúsnæðis á Íslandi. Þar má nefna stór verkefni í Árbæ, Grafarvogi, Úlfarárdal, Bryggjuhverfi, Vogabyggð og á vinsælum reitum á borð við Kirkjusand, þar sem hundruð íbúða hafa farið í útleigu á árunum 2019–2024. Reykjavík sker sig þar úr, bæði í umfangi og samfellu, á meðan önnur sveitarfélög koma inn með einstök verkefni sem eru yfirleitt mun smærri. Það eitt og sér sýnir hver hefur borið raunverulega ábyrgð á uppbyggingu Bjargs hingað til. Þegar horft er til framkvæmda sem nú eru hafnar styrkist þessi mynd enn frekar. Reykjavík er með stór verkefni í gangi á reitum eins og Safamýri og í Haukahlíð á Valsreit, þar sem samtals yfir hundrað íbúðir eru í byggingu. Á sama tíma eru önnur sveitarfélög með færri og smærri verkefni í senn, til dæmis í Mosfellsbæ, á Akureyri, í Reykjanesbæ og á Flúðum. Munurinn liggur ekki aðeins í fjölda íbúða, heldur í því að Reykjavík er stöðugt með fleiri en eitt stórt Bjarg verkefni í framkvæmd á sama tíma. Skýrast verður þetta þó þegar litið er á íbúðir í undirbúningi. Samkvæmt yfirliti Bjargs eru nánast allar framtíðaráætlanir félagsins bundnar við Reykjavík. Verkefni á borð við Rangársel, Gufunes, tvo áfanga í Skerjafirði, Korpureit, Vogur (neðrasvæðið á Ártúnshöfðanum), framreit Safamýrar, Miklubrautarstokk, Sæbrautarstokk, Veðurstofuhæð, U-reit í Vatnsmýrinni og fleiri óstaðsetta reiti innan borgarinnar mynda saman langt yfir sjöhundruð íbúða. Fyrir utan eitt lítið verkefni á Akureyri eru allar þessar íbúðir í Reykjavík. Það þýðir að um 98% allra Bjarg íbúða sem eru í undirbúningi á Íslandi eru í höfuðborginni. Það vekur sérstaka athygli að næststærsta sveitarfélag landsins, Kópavogsbær, hefur ekki afhent Bjargi eina einustu lóð samkvæmt yfirliti félagsins. Það kallar á eðlilega spurningu: eftir hverju eru önnur sveitarfélög að bíða? Þetta er því ekki spurning um skoðanir, pólitíska línu eða túlkun. Gögnin sýna svart á hvítu að Reykjavíkurborg stendur langbest allra sveitarfélaga þegar kemur að uppbyggingu félagslegs leiguhúsnæðis án hagnaðarsjónarmiða. Borgin hefur skilað flestum íbúðum, er með stærstu verkefnin í framkvæmd og ber nánast alla framtíðarábyrgðina þegar horft er til næstu ára. Allt tal um að Reykjavík standi í vegi fyrir uppbyggingu stenst einfaldlega ekki þegar raunveruleg staða er skoðuð í heild sinni. Borgin hefur verið hluti af lausninni í mörg ár. Það sem oft vill gleymast viljandi í umræðunni er að þetta er sama borg og heldur uppi langstærstum hluta félagslegs húsnæðis á landinu, rekur víðtækasta velferðarkerfið og ber þyngsta baggann í þjónustu við viðkvæma hópa samfélagsins. Hér eru engar ýkjur. Reykjavík hefur afhent óhagnaðardrifnum leigufélögum langflestar lóðir og tekið á sig samfélagslega ábyrgð sem önnur sveitarfélög komast einfaldlega ekki nálægt. Slíkar staðreyndir passa hins vegar illa inn í þá neikvæðu frásögn sem oft er haldið á lofti í pólitískum tilgangi, þar sem borgin er máluð sem staður óreiðu og fjárhagslegs gjaldþrots (frásögn sem stenst enga skoðun þegar lykiltölur eru skoðaðar; sjá umfjöllun Þórðs Snæs Júlíussonar, „Bábiljur um fjárhagsleg vandræði Reykjavíkur byggja á engu nema sandi“, 9. maí 2025). Viðskiptaráð hefur ítrekað gagnrýnt óhagnaðardrifin leigufélög og kallað eftir breytingum sem færa húsnæði á almennan markað, með þeim rökum að hið opinbera eigi ekki að vera í slíkum rekstri – þrátt fyrir að starfsemi ráðsins sjálf hafi að verulegu leyti verið fjármögnuð af aðildarfélögum í opinberri eigu frá árinu 2015. (Til að taka af allan vafa: Viðskiptaráð gegnir mikilvægu hlutverki á sínu sviði. En þegar stór hagsmunasamtök tala gegn félagslegum húsnæðisúrræðum og öðrum félagslegum innviðum er sú orðræða ekki aðeins villandi, heldur getur hún haft alvarlegar afleiðingar fyrir samfélagið í heild) En hvað myndi slík stefna raunverulega þýða? Hún myndi óhjákvæmilega opna á að íbúðir á borð við þær sem Bjarg byggir yrðu settar í markaðsumhverfi þar sem fjárfestar gætu hagnast á þeim á kostnað félagslegs öryggis. Þetta er, í reynd, sósíalismi fyrir fáa, en markaður fyrir almenning. Þetta er nákvæmlega sama þróun og átti sér stað þegar verkamannabústaðakerfið var smátt og smátt einkavætt og lagt niður. Til að gera þessa stefnu söluvænlega er hún sjaldnast sett fram berum orðum. Einkavæðing í þessu samhengi er yfirleitt klædd í falleg slagorð, til dæmis um að „fólk eigi að eiga þess kost að eignast eigið húsnæði“. Samhliða er dregin upp mynd af „óskilvirku“ opinberu kerfi, þar til hugmyndinni er smám saman plantað að markaðurinn muni einfaldlega leysa málin betur.Sú frásögn stenst hins vegar illa þegar horft er til reynslunnar. Markaðurinn hefur ekki leyst húsnæðisvandann, hvorki hér né víða annars staðar, heldur aukið óöryggi, þrýst upp fasteignaverði og dýpkað aðskilnað milli þeirra sem eiga og þeirra sem leigja. Í því samhengi hefur áhersla á séreignarstefnu lengi verið notuð sem rök gegn því að ríki og sveitarfélög fjárfesti í öflugu félagslegu húsnæðiskerfi kerfi sem gögnin sýna að skilar raunverulegum árangri. Séreignastefna sem ráðandi húsnæðisstefna hefur þannig verið ein af meginorsökum þess húsnæðisvanda sem blasir við í dag, ekki síst vegna þess að hún veikti félagslegt húsnæðiskerfi Hugmyndin um meinta lóðaskortinn stenst ekki þegar gögnin eru skoðuð í heild. Hún er mýta, rétt eins og fullyrðingar um að hér ríki orkuskortur, þegar raunveruleikinn snýst um forgangsröðun og hagsmuni. Það er ekki tilviljun hvaðan þessi frásögn kemur. Hún þjónar fyrst og fremst sjónarmiðum þeirra sem vilja draga úr félagslegri húsnæðisuppbyggingu og veikja hlutverk borgarinnar, þar á meðal hagsmunasamtök á borð við Viðskiptaráð og stjórnmálaöfl sem tala þeirra máli í borginni. Kæri kjósandi. Ég bið þig að íhuga þetta alvarlega þegar þú stendur í kjörklefanum: Er ég að kjósa gegn mínum eigin hagsmunum? Er ég að kjósa gegn fólki sem þarf öruggt húsnæði, og þeim þúsundum sem hafa fengið það í gegnum Félagsbústaði og Bjarg? Er ég að kjósa gegn fólki með fíknivanda sem reiðir sig á skaðaminnkunarúrræði sem borgin hefur verið leiðandi í? Er ég að kjósa gegn fólki sem er heimilislaust eða á jaðrinum í kerfinu, þar sem borgin er eina sveitarfélagið sem sinnir þessum málaflokki með skipulögðum hætti? Er ég að kjósa gegn hinsegin fólki og öðrum jaðarsettum hópum? Er ég að kjósa gegn uppbyggingu fyrir virka ferðamáta, svo sem aðskilda hjóla- og göngustíga og aukið öryggi fyrir óvarða vegfarendur, þar sem borgin hefur sýnt raunverulega og markvissa forystu? Er ég að kjósa gegn framtíð Borgarlínunnar, einu mikilvægasta samgönguverkefni Íslands í áratugi? Er ég, í raun, að kjósa gegn framtíðinni eða taka ákvörðun byggða á staðreyndum og eigin hagsmunum? Höfundur er Pírati. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Guðni Freyr Öfjörð Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun Af morðingjum og mannkostum Svala Magnea Ásdísardóttir Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir Skoðun Hvar er karlmannadagurinn? Íris Erlingsdóttir Skoðun Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Skoðun Að nota börn til að næra sitt eigið egó Helga Snædal Skoðun Ekki orð um heimsins lengstu biðlista… Vilhjálmur Hjálmarsson Skoðun Virkari eigandi og ný nálgun í stjórn Norðurorku Berglind Ósk Guðmundsdóttir Skoðun Hver pantaði börn með þessu ADHD? Jóna Kristín Gunnarsdóttir Skoðun Sniglar á götunni Kristján Logason Skoðun Skoðun Skoðun Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar skrifar Skoðun Af morðingjum og mannkostum Svala Magnea Ásdísardóttir skrifar Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvar er karlmannadagurinn? Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Ekki orð um heimsins lengstu biðlista… Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar Skoðun Virkari eigandi og ný nálgun í stjórn Norðurorku Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hækkun matarverðs lífeyrisþega á undan innri úttekt Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Tengslarof ríkistjórnarinna við atvinnulíf og samfélög á landsbyggðinni Sonja Lind E. Eyglóardóttir skrifar Skoðun Hver pantaði börn með þessu ADHD? Jóna Kristín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Sniglar á götunni Kristján Logason skrifar Skoðun Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir skrifar Skoðun Skipulagið grefur undan séreignarstefnunni – brött brekka fyrir fyrstu kaupendur Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Myrkraverk í Afríku Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Skaðabætur frá síðustu öld Hópur lögmanna skrifar Skoðun Að nota börn til að næra sitt eigið egó Helga Snædal skrifar Skoðun Veitingageiranum var hent undir vagninn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir skrifar Skoðun Úr öskunni í eldinn Ingveldur Anna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hamfarir í hversdagslegum kringumstæðum Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Heimilin eiga ekki alltaf að borga brúsann Alexander M. Árnason skrifar Skoðun Fleiri krónur taldar – fáar nýjar Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun „The Concert of Three“. Samráð stórveldanna þriggja – ný leið til heimsfriðar? Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og fisks Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar Skoðun Orkan í ólgusjó efnahagsmála Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Fæðingarorlof fyrir ömmu og afa? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Gott bú stendur undir sér Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Loksins get ég notið þess að vera heima Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar Sjá meira
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Skoðun 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar
Skoðun Tengslarof ríkistjórnarinna við atvinnulíf og samfélög á landsbyggðinni Sonja Lind E. Eyglóardóttir skrifar
Skoðun Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir skrifar
Skoðun Skipulagið grefur undan séreignarstefnunni – brött brekka fyrir fyrstu kaupendur Sigurður Stefánsson skrifar
Skoðun Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir skrifar
Skoðun „The Concert of Three“. Samráð stórveldanna þriggja – ný leið til heimsfriðar? Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar
Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun