Latínan bjargaði íslenskunni minni Kayla Amy Eleanor Harðardóttir skrifar 24. febrúar 2026 13:02 Þegar ég var fimm ára flutti ég til Texas í tvö ár. Þar missti ég nánast alla tungumálakunnáttuna mína í íslensku og þurfti að fara til ömmu minnar yfir sumarið til að geta bjargað móðurmálinu mínu. Vegna þess öðlaðist ég ekki þá fallbeygingartilfinningu sem maður fær með móðurmálið sitt. Ég átti lélegt sjálfstraust og myndi forðast það að tala íslensku þegar ég gæti komist upp með það. Allt breyttist þegar ég fór á málabraut í MR. Með því að læra Latínu lærði ég almenna málfræði og ég byrjaði loksins að finna fyrir einhverri fallbeygingartilfinningu. Ég skildi hvers vegna hvert og eitt einasta fall var notað á latínu, en ekki aðeins það, hvernig þessar reglur áttu líka við hvað varðar íslenska tungu. En ekki nóg með það, þá opnaðist handa mér alls konar orðaforði. Ég hef lært eldri orð yfir afar einföld orð, áhugaverðar orðasamsetningar sem ég hefði aldrei annars frétt um, eða til dæmis hvernig á Latínu er talað um „fárviðri haturs“ en á íslensku er talað um „hatursbál“. Án latínukennslu í þessi þrjú ár á fornmálabraut hefði ég aldrei komist að því hversu áhugavert það er að beita íslenskunni. Vissulega er Latínan erfið stundum, en það er hvernig námið á að vera. Það er alltaf ógurlega erfitt að spreyta sig í óvissunni. En maður á það skilið að fá tækifæri til þess að læra vel og almennilega, til að bæta eigið móðurmál og læra grundvöllinn að öllum evrópsku tungumálum. Ég verð mjög hrærð við þá hugsun að hvar ég væri án latínunnar. Hversu óviss ég yrði enn þá með hvernig ég beiti mínu eigin móðurmáli. Þessi þrjú ár í latínu hafa ekki aðeins kennt mér ný tungumál, heldur hef ég lært að elska og dýrka íslenskuna mína. Það er ekki að segja að ég sé fullkomin í íslenskunni minni en latínan gaf mér von um að ég gæti orðið „eðlileg“ aftur. Höfundur er á þriðja ári á fornmálabraut I í MR. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Framhaldsskólar Skóla- og menntamál Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Sjá meira
Þegar ég var fimm ára flutti ég til Texas í tvö ár. Þar missti ég nánast alla tungumálakunnáttuna mína í íslensku og þurfti að fara til ömmu minnar yfir sumarið til að geta bjargað móðurmálinu mínu. Vegna þess öðlaðist ég ekki þá fallbeygingartilfinningu sem maður fær með móðurmálið sitt. Ég átti lélegt sjálfstraust og myndi forðast það að tala íslensku þegar ég gæti komist upp með það. Allt breyttist þegar ég fór á málabraut í MR. Með því að læra Latínu lærði ég almenna málfræði og ég byrjaði loksins að finna fyrir einhverri fallbeygingartilfinningu. Ég skildi hvers vegna hvert og eitt einasta fall var notað á latínu, en ekki aðeins það, hvernig þessar reglur áttu líka við hvað varðar íslenska tungu. En ekki nóg með það, þá opnaðist handa mér alls konar orðaforði. Ég hef lært eldri orð yfir afar einföld orð, áhugaverðar orðasamsetningar sem ég hefði aldrei annars frétt um, eða til dæmis hvernig á Latínu er talað um „fárviðri haturs“ en á íslensku er talað um „hatursbál“. Án latínukennslu í þessi þrjú ár á fornmálabraut hefði ég aldrei komist að því hversu áhugavert það er að beita íslenskunni. Vissulega er Latínan erfið stundum, en það er hvernig námið á að vera. Það er alltaf ógurlega erfitt að spreyta sig í óvissunni. En maður á það skilið að fá tækifæri til þess að læra vel og almennilega, til að bæta eigið móðurmál og læra grundvöllinn að öllum evrópsku tungumálum. Ég verð mjög hrærð við þá hugsun að hvar ég væri án latínunnar. Hversu óviss ég yrði enn þá með hvernig ég beiti mínu eigin móðurmáli. Þessi þrjú ár í latínu hafa ekki aðeins kennt mér ný tungumál, heldur hef ég lært að elska og dýrka íslenskuna mína. Það er ekki að segja að ég sé fullkomin í íslenskunni minni en latínan gaf mér von um að ég gæti orðið „eðlileg“ aftur. Höfundur er á þriðja ári á fornmálabraut I í MR.
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar