Besta deildin bökuð í krefjandi aðstæðum í Mexíkó Sindri Sverrisson skrifar 26. febrúar 2026 07:36 Damir Muminovic var eini leikmaðurinn úr Lengjudeildinni sem spilaði leikinn, en hann er nú á mála hjá Grindavík. Getty/Agustin Cuevas Íslenska karlalandsliðið í fótbolta, sem að þessu sinni var eins konar úrvalslið úr Bestu deildinni, mátti þola 4-0 skell gegn Mexíkóum í vináttulandsleik í Queretaro í nótt.
Ísland þarf því áfram að bíða eftir fyrsta sigrinum gegn Mexíkó en liðin hafa alls mæst sex sinnum, alltaf í vináttulandsleikjum utan Íslands, og hefur Mexíkó nú unnið fjóra síðustu í röð. Eftir mínútu þögn til minningar um fallna hermenn, í stríðinu við glæpagengi fallna foringjans El Mencho, hófst leikurinn og þó að Ísland hafi fengið færi til að komast yfir þá voru Mexíkóar mun sterkari aðilinn. Gríðarleg öryggisgæsla var við leikvanginn og á vellinum, vegna óeirðanna í Mexíkó síðustu daga.Getty/Agustin Cuevas Á tveggja mínútna kafla um miðjan fyrri hálfleik skoruðu Richard Ledezma og Armando González og komu Mexíkó í 2-0. Þannig var staðan í hálfleik og Jesús Gallardo bætti svo við þriðja markinu á 60. mínútu, áður en Brian Gutierrez nýtti sér mistök Höskuldar Gunnlaugssonar sem aftasta manns og skoraði auðveldlega fjórða markið í uppbótartíma. Höskuldur Gunnlaugsson stóð í ströngu í nótt.Getty/Agustin Cuevas Eins og fyrr segir var lið Íslands nánast aðeins skipað leikmönnum úr Bestu deildinni, líkt og það mexíkóska var skipað leikmönnum úr mexíkósku deildinni sem börðust um að tryggja sér sæti í HM-hópnum í sumar. Í byrjunarliði Íslands voru þó reynsluboltarnir Gylfi Þór Sigurðsson og Jóhann Berg Guðmundsson, sem og Guðmundur Þórarinsson auk reynslumikilla manna úr Bestu deildinni. Byrjunarlið Íslands í leiknum. Efri röð: Anton Ari Einarsson, Damir Muminovic, Emil Atlason, Guðmundur Kristjánsson, Gylfi Þór Sigurðsson. Neðri röð: Karl Friðleifur Gunnarsson, Höskuldur Gunnlaugsson, Helgi Guðjónsson, Guðmundur Þórarinsson, Ágúst Orri Þorsteinsson, Jóhann Berg Guðmundsson.Getty/Rodrigo Oropeza „Það er auðvitað enginn sáttur eftir tapleik, og strákarnir voru eðlilega hundfúlir í klefanum eftir leik, en ég er samt ánægður með vinnusemina og margt fleira. Strákarnir lögðu sig auðvitað alla fram eins og menn gera alltaf með íslenska landsliðinu og þeir voru virkilega að reyna að spila sín á milli,“ sagði Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari á vef KSÍ. Emil Atlason byrjaði leikinn í fremstu víglínu.Getty/Rodrigo Oropeza „Ég sé engan tilgang með því að fara í svona leik, pakka í vörn og reyna ekki að spila fram á við, því þá læra menn svo lítið, og þessir leikir, svona leikir, eru til þess að læra af þeim. Við vorum að spila við mjög sterkan andstæðing og ég vil miklu frekar að menn mæti bara óhræddir og spili boltanum. Auðvitað þarf stundum að spila langt, en það er líka partur af leiknum, menn verða að finna jafnvægið í hverjum leik milli varnar og sóknar,“ sagði Arnar. Gylfi Þór Sigurðsson bar fyrirliðabandið fyrir Ísland.Getty/Rodrigo Oropeza „Þetta voru svolítið krefjandi aðstæður, þunnt loft og mikill raki sem hafði áhrif á leikinn, en það er óhætt að segja að við höfum tapað fyrir sterkara liði,“ bætti hann við. Ágústi Orri Þorsteinsson fékk færi til að koma Íslandi yfir snemma leiks.Getty/Rodrigo Oropeza Guðmundur Þórarinsson í baráttunni.Getty/Cesar Lopez
Landslið karla í fótbolta Mest lesið Sigurvegarar krýndir í Reykjavíkurmaraþoninu Sport Sigurvegarinn hafði aldrei hlaupið hálft maraþon áður Sport „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Enski boltinn Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Enski boltinn Infantino beðinn um að mæta ekki á barnamót sem FIFA fjármagnar Fótbolti Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur Enski boltinn Brentford tók Tottenham í karphúsið Enski boltinn Tvöfaldur heimsmeistari látinn eftir skotárás Sport Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti Gísli Þorgeir með níu mörk í níu skotum þegar Magdeburg vann Ofurbikarinn Handbolti Fleiri fréttir De Zerbi ósáttur: „Vorum ekki tilbúnir að berjast“ Hinrik kominn á blað með nýja liðinu og okkar menn í Tyrklandi fögnuðu sigrum Espanyol - Real Madrid | Madrídingar mættir undir stjórn Mourinho Sara skoraði tvö og Haukar fóru upp í annað sætið Brentford tók Tottenham í karphúsið Njarðvíkingar stöðvuðu sigurgöngu Húsvíkinga Ísfirðingar geta andað léttar Andri heldur áfram að skora fyrir Blackburn Góð byrjun hjá strákunum hans Moyes Glæsimark kom ekki í veg fyrir nýliðasigur HK vann enn einn heimaleikinn og Fylkir flengdi Grindavík Tryggði sigur beint úr aukaspyrnu undir blálokin Stefán Teitur með tvennu í þægilegum bikarsigri Infantino beðinn um að mæta ekki á barnamót sem FIFA fjármagnar „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Sjáðu Bergdísi bjarga botnliðinu, kraftaverk Lillýar og óheppni fyrirliðans Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Messi sektaður fyrir að slá andstæðing Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur United nær samkomulagi við Brighton um Baleba „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Afturelding valtaði yfir Ægi og skoraði sjö mörk Karólína Lea skoraði fyrir Inter „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Curtis Jones farinn til Inter Glódís skoraði í stórsigri Bayern Hlín og Guðrún skildu jafnar í toppslagnum Sjá meira