„Ég veit ekki hvaða gjöf þú ert að tala um“ Árni Gísli Magnússon skrifar 9. mars 2026 21:59 Sigursteinn Arndal, þjálfari FH Anton Brink FH sigraði KA örugglega, 25-30, fyrir norðan í kvöld í 21. umferð Olís deildar karla og eygja enn von á deildarmeistaratitlinum fyrir lokaumferðina. Sigursteinn Arndal, þjálfari FH, var ánægður með að koma norður og sækja bæði stigin. „
Virkilega ánægður með frammistöðuna í dag. Við vorum að mæta góðu KA liði sem er búið að vera frábært, á gríðarlega erfiðum útivelli en við stöndum af okkur mjög erfiðan kafla í fyrri hálfleik þar sem að við héldum okkur við leikplanið og bara eitt mark í einu og náðum okkur svo í ágætis stöðu í hálfleik og svo er ég bara hrikalega ánægður með vinnusemina og hvernig við héldum á okkar málum í seinni hálfleik.“ KA byrjaði leikinn mun betur og komst þremur mörkum yfir en FH náði betri tökum eftir því sem leið á hálfleikinn. Lokamarkið kom þegar KA átti aukakast á síðustu andartökum hálfleiksins sem var framkvæmt hræðilega og Ómar Darri skoraði í tómt markið hinu megin sem tryggði FH tveggja marka forskot inn í hálfleikinn. Undirritaður kallaði það gjöf í viðtalinu sem Sigursteinn áttaði sig ekki alveg á. „Ég veit ekki hvaða gjöf þú ert að tala um sko, ég var bara hrikalega ánægður, við vorum á tánum og kláruðu þennan hálfleik vel og komum okkur í þessa stöðu. Svo aftur, bara ógeðslega ánægður því þeir virkilega reyndu á okkur en ég er bara virkilega ánægður hvernig liðið stóð þetta af sér.“ FH spilaði kraftmikinn sóknarleik í dag þar sem margir lögðu sitt á vogarskálarnar. „Við erum með fullt af flottum strákum sem eru líka svona aðeins að átta sig út á hvaða lífið gengur og þeir eru að bæta sig með hverjum leiknum og nú þurfa þeir að halda áfram að nýta sér þennan leik í framhaldinu en það gerist bara með því að mæta enn þá grimmari næst.“ „Við ætlum bara að brosa í kvöld og svo að undirbúa okkur vel fyrir ÍR á fimmtudaginn sem eru með bakið upp við vegg en við erum bara líka með okkar markmið sem við ætlum að klára og það gerum við vonandi með sigri á fimmtudaginn en svo tekur bara við önnur keppni en það þarf áfram að hafa sömu hlutina á hreinu“, sagði Sigursteinn að lokum en FH er í öðru sæti deildarinn fyrir lokaumferðina og getur enn orðið deildarmeistari ásamt topplið Vals og Haukum sem eru í þriðja sæti.
Olís-deild karla FH KA Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Íslenski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira