Flugið er líflína milli byggða Grænlands Kristján Már Unnarsson skrifar 19. mars 2026 07:07 Inga Dóra Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri samskipta- og sjálfbærnimála Air Greenland. Egill Aðalsteinsson Grænlendingar búa við eitt flóknasta og dýrasta samgöngukerfi allra þjóða. Þeir treysta mest á flugsamgöngur til að komast á milli byggða þar sem landið er án vegakerfis.
Í fréttum Sýnar var rifjuð upp gleðin þegar Grænlendingar fögnuðu opnun nýju brautarinnar í Nuuk í nóvemberlok 2024. Þá gat höfuðstaður landsins loksins tekið við stórum þotum. Í þættinum Flugþjóðin á Sýn+ lýsir samskipta- og sjálfbærnistjóri Air Greenland, Inga Dóra Guðmundsdóttir, þýðingunni sem nýja flugbrautin hefur fyrir grænlenskt samfélag. Airbus-breiðþota Air Greenland lenti í fyrsta sinn í Nuuk í lok nóvembermánaðar 2024.KNR/skjáskot „Hún hefur rosa mikla þýðingu af því þetta eru aðaldyrnar inn á Grænland. Þannig að allir sem eru að koma til og frá Grænlandi fara hérna í gegn, meira eða minna allt árið. Þessi flugvöllur breytir öllu kerfinu okkar, leiðakerfinu, þannig að það er bara mjög mikilvægt,“ segir Inga Dóra. Hér má sjá átta mínútna kafla úr þættinum: Strax með opnun nýju flugbrautarinnar varð Nuuk-flugvöllur í raun mikilvægasti samgönguinnviður Grænlands, kannski ásamt höfninni í Nuuk. Þetta er land sem hefur ekkert þjóðvegakerfi. Íbúarnir þurfa því að stóla á flugið til að komast á milli staða en sigla einnig á bátum ef styttra er að fara. Dash 8 Q200 voru stærstu flugvélarnar sem gátu lent á gömlu brautinni í Nuuk. Þessar vélar geta notast við stuttar brautir og gegna ásamt þyrlum lykilhlutverki í að tengja saman byggðir Grænlands. Flugvélar af gerðinni Dash 8 Q200 eru burðarás innanlandsflugsins á Grænlandi. Hér er Dash 8 að lenda á flugvellinum við þorpið Qaarsut, sem er við 71. breiddargráðu, lengst norðan heimskautsbaugs.Egill Aðalsteinsson Flugið er lykilatriði í samgöngum landsins. „Algjörlega. Við komumst ekkert fram eða til baka nema það séu einhvers konar samgöngur. Auðvitað á sumrin er hægt að bæta við siglingum svona innan marka,“ segir Inga Dóra. Flug Air Greenland milli byggða á Grænlandi eru samþætt. Þyrlur fljúga til þeirra staða sem eru án flugvalla og flytja farþegana oftast á næsta innanlandsflugvöll. Þangað koma svo 37 sæta Dash 8 vélarnar og flytja farþegana áfram, gjarnan til Nuuk, þar sem mesta þjónustan er. Þaðan geta farþegar svo einnig tekið millilandaflugið ef leiðin liggur til útlanda. Air Greenland notar þyrlur af gerðinni Airbus H155 til að flytja farþega til og frá byggðum sem ekki hafa flugbraut.Egill Aðalsteinsson Fjarlægðir og aðstæður á Grænlandi eru slíkar að íbúar smærri byggða treysta á flug til að sækja sér margskyns þjónustu eins og að fara til læknis. Inga Dóra segir leiðakerfi Air Greenland það flóknasta í Evrópu. „Það er líka dýrt að reka það.“ Air Greenland sinnir jafnframt sjúkraflugi og neyðar- og björgunarflugi. „Flugið er náttúrulega líflína fyrir margar af þessum smábyggðum sem eru út um allt, sérstaklega á veturna,“ segir Inga Dóra Guðmundsdóttir í frétt Sýnar: Þátturinn um Grænlandsflugið er sá sautjándi í þáttaröðinni. Áskrifendur geta séð hann í heild sem og alla þætti Flugþjóðarinnar á streymisveitunni Sýn+.
Flugþjóðin Fréttir af flugi Grænland Samgöngur Tengdar fréttir Stórtap Air Greenland vegna aflýstra flugferða til Nuuk Þjóðarflugfélag Grænlendinga, Air Greenland, hefur orðið fyrir stórfelldu fjárhagstjóni vegna metfjölda aflýstra flugferða til nýja flugvallarins í Nuuk. Inga Dóra Guðmundsdóttir, samskiptastjóri Air Greenland, segir félagið aldrei hafa lent í öðru eins í yfir sextíu ára sögu sinni. 5. október 2025 22:40 Aldrei neinn afsláttur gefinn í flugprófunum Prófanir á flugleiðsögutækjum annarra þjóða eru ein sérhæfðasta útrás íslenska fluggeirans. Þannig er flugvél Isavia nýtt í mælingum fyrir Grænlendinga, Færeyinga og Norðmenn og íslenskir flugprófanamenn gegna um þessar mundir lykilhlutverki í úttekt á nýjum flugvöllum Grænlands. 28. september 2025 21:11 Íslendingar í flugumferðarstjórn á stærsta flugvelli Grænlands Íslenskir flugumferðarstjórar á vegum Isavia hafa undanfarinn áratug annast flugumferðarþjónustu fyrir Grænlendinga. Með breytingum á flugvallakerfi landsins eru horfur á að ekki verði lengur þörf fyrir Íslendingana. 21. september 2025 20:40 Mest lesið „Fólk er bara slegið“ Innlent „Viljið þið gjöra svo vel að fyrirgefa mér af öllu hjarta“ Innlent Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Innlent „Ég er hræddur við þessa menn“ Innlent Þúsundir kalla eftir afsögn Þorgerðar: „Vandræðaleg tilraun“ Innlent Blása á gagnrýni og opna dagatalið Innlent „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Innlent „Við fyrirgefum ráðherra þessa yfirsjón“ Innlent Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Innlent Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu Innlent Fleiri fréttir Útgjöldin há en niðurstaðan rýr Bein útsending: Stefnuræða forsætisráðherra Dæmdir fyrir að sprengja heimagerða sprengju í Múlagöngum Ríkisstjórnin í mun veikari stöðu eftir erfitt sumar Skora á yfirvöld að taka SÁÁ til skoðunar „Viljið þið gjöra svo vel að fyrirgefa mér af öllu hjarta“ „Við fyrirgefum ráðherra þessa yfirsjón“ Fleiri en einn yfirheyrður en enginn í haldi Segir afnám vaxtabóta bitna á tekjulágum heimilum Blása á gagnrýni og opna dagatalið „Fólk er bara slegið“ Þúsundir kalla eftir afsögn Þorgerðar: „Vandræðaleg tilraun“ Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Breytingar á innanlandsflugi vegna bilunar Langflestir upplifðu sólmyrkvann Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Kristrún flytur stefnuræðuna „Ég er hræddur við þessa menn“ Ekkert heitt vatn á Suðurnesjum í dag Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Vanti ekki fjármagn eða hjálpargögn heldur þrýsting á Ísrael Sex gistu í fangageymslu í nótt Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Aðeins um 28 prósent innflytjenda með grunnfærni í lesskilningi „Það kostar peninga að afla peninga“ Ekki þurfi mikið til að EES-samningurinn rakni upp Íkveikja í miðborginni Sjá meira
Stórtap Air Greenland vegna aflýstra flugferða til Nuuk Þjóðarflugfélag Grænlendinga, Air Greenland, hefur orðið fyrir stórfelldu fjárhagstjóni vegna metfjölda aflýstra flugferða til nýja flugvallarins í Nuuk. Inga Dóra Guðmundsdóttir, samskiptastjóri Air Greenland, segir félagið aldrei hafa lent í öðru eins í yfir sextíu ára sögu sinni. 5. október 2025 22:40
Aldrei neinn afsláttur gefinn í flugprófunum Prófanir á flugleiðsögutækjum annarra þjóða eru ein sérhæfðasta útrás íslenska fluggeirans. Þannig er flugvél Isavia nýtt í mælingum fyrir Grænlendinga, Færeyinga og Norðmenn og íslenskir flugprófanamenn gegna um þessar mundir lykilhlutverki í úttekt á nýjum flugvöllum Grænlands. 28. september 2025 21:11
Íslendingar í flugumferðarstjórn á stærsta flugvelli Grænlands Íslenskir flugumferðarstjórar á vegum Isavia hafa undanfarinn áratug annast flugumferðarþjónustu fyrir Grænlendinga. Með breytingum á flugvallakerfi landsins eru horfur á að ekki verði lengur þörf fyrir Íslendingana. 21. september 2025 20:40