Allt velti á Rasmussen Silja Rún Sigurbjörnsdóttir og Gunnar Reynir Valþórsson skrifa 25. mars 2026 12:06 Bending Lars Løkke Rasmussen getur ákveðið hvernig ríkisstjórn Dana verður. EPA Prófessor í stjórnmálafræði segir framtíð ríkisstjórnar Dana velta á hvað formaður Moderaterne gerir á fundi konungs nú eftir hádegi. Síðasti forsætisráðherra sé í sterkri stöðu vegna umræðu um öryggismál í Danmörku.
Þingkosningar fóru fram í Danmörku í gær en hvorki rauða blokkin né sú bláa náði hreinum meirihluta. Því er Lars Løkke Rasmussen, formaður miðjuflokksins Moderaterne, í lykilstöðu fyrir stjórnarviðræður. Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði, segir ekkert í heildarmynd kosninganna hafa komið á óvart. Eftir hádegi fara formenn flokkanna á fund konungs og benda á þann sem þeir vilji að fari með umboðið. Niðurstöður þingkosninganna í gær.vísir „Það er nokkuð fast í þessum blokkum. Yfirleitt benda forystumenn ekki á sjálfa sig nema þeir hafi stuðning annarra flokka og þeir benda óhikað á leiðtoga blokkarinnar þvert yfir flokka sem er svolítið öðruvísi en gerist hér hjá okkur. Þessi blokkapólitík er hins vegar svolítið að brotna upp og þess vegna liggur ekki ljóst fyrir á þessari stundu hver fái umboðið þó að Metta sé líklegust,“ segir Eiríkur. Sósíaldemókrataflokkur Mette Frederiksen fékk 21,9 prósent atkvæða, 38 þingsæti, og því stærsti flokkurinn á nýju þingi. „Þess vegna eru [Sósíaldemókratar] augljósasta fyrsta val en það veltur alfarið á Lars Løkke Rasmussen, hvort hann samþykki að benda konungi á það að veita Mette Fredrikssen stjórnarmyndunarumboðið þegar flokkarnir fara konungsrúntinn núna eftir hádegi,“ segir hann. Hvorki bláa blokkin né rauða náði hreinum meirihluta í kosningunum í gær.vísir Frederiksen hefur þegar sagst vilja halda áfram að leiða landið sem forsætisráðherra. Þá hefur Troels Lund Polsen, leiðtogi Venstre, útilokað áframhaldandi ríkisstjórnarsamstarf með flokki Frederiksen. Þá sé hægt að mynda minnihlutaríkisstjórn þar sem bæði Þjóðarflokkurinn og Moderantar yrðu utan ríkisstjórnarinnar. „Það liggur enn ekki ljóst fyrir hvað Lars Løkke ætlar sér að gera.“ Staða Dana í öryggismálum, sér í lagi samskipti þeirra við Bandaríkjamenn um Grænland, geti gert stöðu Frederiksen sterkari. „Það setur ákveðna pressu á málið og gerir það meira áríðandi en áður að menn þjappi saman raðirnar og þjappi sér að baki leiðtogunum. Það gerir stöðu Mette ansi sterka í þessum umræðum núna en það kemur í sjálfu sér ekki í veg fyrir að menn reyni að spreyta sig á hinum pólitíska velli með alls konar athöfnum.“
Danmörk Þingkosningar í Danmörku Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Vučić játar ósigur Erlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira