Úr dimmum dal í ljósið: „Finnst við vera fá sterkari og þroskaðri Orra til baka“ Aron Guðmundsson skrifar 31. mars 2026 07:00 Orri Steinn Óskarsson er farinn að raða inn mörkum á nýjan leik með íslenska landsliðinu Vísir/Getty Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari Íslands í fótbolta, er ánægður með að endurheimta landsliðsfyrirliðann Orra Stein Óskarsson sem hefur gengið í gegnum dimman dal en er nú að ná vopnum sínum. „Ekkert svalara en að sjá framherja, sem fyrirliða, skora mörk,“ segir Arnar.
Það dylst engum að ljósi punkturinn á verkefninu er endurkoma landsliðsfyrirliðans Orra Steins Óskarssonar sem skoraði bæði mörk Íslands gegn Kanada. Orri hefur mátt þola afar krefjandi tíma, meiðsla hrjáða og missti hann til að mynda af allri undankeppni HM en er nú að finna sitt besta form á nýjan leik bæði með Íslandi sem og Real Sociedad. „Mér finnst frábært að fá hann aftur,“ segir Arnar um góða endurkomu Orra. „Þetta er okkar fyrirliði og leiðtogi. Hann er búinn að ganga í gegnum dimman dal núna í að verða eitt ár en mér finnst við vera fá sterkari og þroskaðri Orra til baka.“ Orri sé að njóta hverrar einustu mínútu inn á vellinum. „Þetta er ekkert sjálfsagður hlutur, þegar að þú lendir í svona meiðslum, að koma sterkur til baka. Hann kann virkilega vel að meta liðsfélaga sína og hvað við höfum hérna. Orri var kominn á skrið með sínu félagi áður en hann kom til móts við landsliðið en þetta er mögulega flestu mínúturnar sem hann hefur spilað í talsverðan tíma. Þetta er eitthvað gott til að byggja ofan á. “ „Svo er heldur ekkert svalara en að sjá framherja, sem fyrirliða, skora mörk. Maður man eftir Batistuta í gamla daga. Svo má ekki gleyma því að hann er bara 21 árs. Fyrir svona litla þjóð eins og okkar er miklu betra að hafa alla okkar bestu leikmenn heila og klára í hvaða verkefni sem er.“ Vonandi að fyrirliðinn haldist heill til lengri tíma. Arnar þakkar Age Hareide heitnum, fyrrverandi landsliðsþjálfara Íslands fyrir að taka Orra inn í landsliðshópinn á sínum tíma. Það var svo þegar að Arnar tók við sem landsliðsþjálfari að hann gerði strákinn unga að fyrirliða landsliðsins. „Það eru tvær mögulegar útkomur fyrir leikmenn (að fá fyrirliðabandið. Þeir gætu farið inn í skel og einhvern veginn höndla ekki ábyrgðina. En það var auðvelt að sjá í honum, bæði með því að tala við hann sjálfan og fólk í kringum hann, að Orri er týpan sem þrífst á ábyrgð og það án þess að verða hrokafullur. Það er þunn lína þarna á milli.“ Ísland mætir Haíti í æfingarleik klukkan hálf fimm í dag. Leikurinn er sýndur í beinni útsendingu og opinni dagskrá á Sýn Sport.
Landslið karla í fótbolta Fótbolti Mest lesið „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport Engin uppalin spilaði með Fram Íslenski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Fleiri fréttir Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Sjá meira