Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Kristján Már Unnarsson skrifar 13. apríl 2026 14:24 Boeing 757-þotan yfir Vestmannaeyjabæ. Vísir Samgöngustofa hefur hafið rannsókn á lágflugi farþegaþotu Icelandair yfir Vestmannaeyjabæ á laugardag. Ráðamenn Icelandair líta atvikið mjög alvarlegum augum. Bæjarstjórinn í Vestmannaeyjum gerir hins vegar lítið úr því og fullyrt er að farþegar um borð hafi fagnað stórkostlegri upplifun.
Myndir sem náðst hafa af flugi Boeing 757 þotu Icelandair yfir Vestmannaeyjabæ virðast sýna að hún hafi flogið talsvert undir lögleyfðri lágmarksflughæð yfir byggð, sem er 1.000 fet. Linda Gunnarsdóttir, yfirflugstjóri Icelandair, segir von á yfirlýsingu frá félaginu vegna málsins síðar í dag en ítrekaði í morgun, það sem fram kom í fréttum um helgina, að félagið líti málið mjög alvarlegum augum. Linda Gunnarsdóttir er yfirflugstjóri Icelandair.Vísir Flugstjóri Boeing þotunnar í lágfluginu yfir Eyjum varð 65 ára í dag en hann var í sínu síðasta flugi sem atvinnuflugmaður hjá Icelandair. Atvinnumissir eða skírteinismissir mun því lítil áhrif hafa á hans hagi nema hugsanlega sem einkaflugmanns. Öðru máli gegnir um aðstoðarflugmanninn og mun rannsókn málsins bæði innanhúss hjá Icelandair sem og hjá Samgöngustofu einnig beinast að hans þætti. Hann gæti talist samábyrgur þótt ljóst sé að flugstjórinn beri höfuðábyrgð á fluginu og hafi síðasta orðið um allar ákvarðanir um borð. Þórhildur Elínardóttir, samskiptastjóri Samgöngustofu, staðfesti við fréttastofu í morgun að rannsókn væri hafin þar á atvikinu og að næstu dagar færu í gagnaöflun. Þórhildur Elín Elínardóttir, samskiptastjóri Samgöngustofu.Vísir/Friðrik Samkvæmt loftferðalögum hefur Samgöngustofa heimildir til að afturkalla skírteini flugmanna, tímabundið eða varanlega, gerist þeir sekir um brot á lögum eða reglugerðum. Samgöngustofa hefur einnig heimildir til að leggja á stjórnvaldssektir á flugmenn sem einstaklinga og geta þær numið allt frá 25 þúsund krónum til 8 milljóna króna. Samgöngustofa getur einnig kært mál áfram til lögreglu teljist brot meiriháttar. Í fréttum Ríkisútvarpsins í gær sagði Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, fyrrverandi alþingismaður, sem var farþegi um borð, að þetta hafi verið stórkostleg upplifun og að farþegar hafi ítrekað klappað fyrir lágfluginu. Bæjarstjórinn í Vestmannaeyjum, Íris Róbertsdóttir, var spurð um málið í þættinum Ísland í bítið í morgun. Íris Róbertsdóttir er bæjarstjóri Vestmannaeyjabæjar.Vísir/JóiK „Mér finnst nú svona flestir íbúar vera alveg rólegir og á mörgum fannst þetta flott og farþegarnir sem voru í vélinni virðast hafa verið ánægðir,“ sagði Íris en kvaðst frekar hafa viljað fá afsökunarbeiðni til íbúa í Vestmannaeyjum frá Icelandair fyrir að hætta að fljúga til Eyja heldur en yfir þessu. „Ef eitthvað er ekki eins og það á að vera, þá eru bara til ferlar sem grípa það.“ Íris vildi þó ekki gera lítið úr því að einhverjum íbúum í Eyjum hefði brugðið við lætin í flugvélinni. „Við höfum nú þolað ýmislegt í gegnum aldirnar. Þannig að þetta er held ég ekki það versta sem við höfum lent í í Vestmannaeyjum, að það hafi flugvél flogið yfir,“ sagði bæjarstjórinn í hádegisfréttum Bylgjunnar sem heyra má hér:
Icelandair Vestmannaeyjar Fréttir af flugi Boeing Samgöngur Lágflug Icelandair yfir Vestmannaeyjum Tengdar fréttir Flugstjórinn þögull sem gröfin Ólafur Bragason flugstjóri, sem lauk ferli sínum sem flugstjóri hjá Icelandair með lágflugi yfir Vestmannaeyjum á laugardaginn, ætlar ekkert að tjá sig um flugið að svo stöddu. Málið er litið alvarlegum augum hjá Icelandair sem hefur tilkynnt málið til lögreglu. 13. apríl 2026 11:40 „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, segir bæjaryfirvöld í Vestmannaeyjum ekki hafa sérstaka skoðun á lágflugi flugstjóra Icelandair yfir Vestmannaeyjabæ um helgina. 13. apríl 2026 08:32 Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Hló að svari sambýliskonunnar Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Sjá meira
Flugstjórinn þögull sem gröfin Ólafur Bragason flugstjóri, sem lauk ferli sínum sem flugstjóri hjá Icelandair með lágflugi yfir Vestmannaeyjum á laugardaginn, ætlar ekkert að tjá sig um flugið að svo stöddu. Málið er litið alvarlegum augum hjá Icelandair sem hefur tilkynnt málið til lögreglu. 13. apríl 2026 11:40
„Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, segir bæjaryfirvöld í Vestmannaeyjum ekki hafa sérstaka skoðun á lágflugi flugstjóra Icelandair yfir Vestmannaeyjabæ um helgina. 13. apríl 2026 08:32