Dómarnir sem gerðu Bæjara brjálaða: „Maður skilur þá mjög vel“ Sindri Sverrisson skrifar 7. maí 2026 09:00 Joshua Kimmich reynir að sannfæra dómarann Joao Pinheiro en án árangurs. Getty/Adam Pretty „Það eru stór atvik sem hefðu getað breytt leiknum þvílíkt,“ sagði Albert Brynjar Ingason í Meistaradeildarmörkunum, þegar talið barst að dómaraákvörðunum sem gerðu Bæjara brjálaða í leiknum gegn PSG í gærkvöld.
Liðin gerðu 1-1 jafntefli og þar með komst PSG í úrslitaleik Meistaradeildarinnar, annað árið í röð, eftir að hafa unnið fyrri leikinn við Bayern 5-4 á heimavelli. Vafadómana og brot úr umræðunni í Meistaradeildarmörkunum á Sýn Sport má sjá hér að neðan. Klippa: Dómarnir sem féllu gegn Bayern „Þetta er risastór ákvörðun sem hefði haft mikil áhrif á leikinn,“ sagði Kjartan Henry Finnbogason um það þegar dómari leiksins sleppti því að veita Nuno Mendes aftur gult spjald og þar með rautt, í fyrri hálfleiknum. Dómarinn virtist meta það sem svo, í samráði við fjórða dómara, að boltinn hefði fyrst farið í hönd Konrad Laimer og dæmdi því aukaspyrnu fyrir PSG. „Fer boltinn í höndina á honum? Er fjórði dómarinn í aðstöðu til að dæma hvort hann fari í magann á honum eða ekki? Manni finnst stundum að menn séu að tryggja sig til þess að þurfa ekki að taka þessa risastóru ákvörðun,“ sagði Kjartan Henry. Sérfræðingarnir gátu þó ekkert sett út á þá ákvörðun að dæma ekki víti þegar Bayern vildi vítaspyrnu, eftir að boltinn fór í hönd Joao Neves, eftir spyrnu samherja. Reglurnar eru skýrar varðandi það að ekki eigi að dæma víti eftir spyrnu samherja, jafnvel þó að höndin sé útrétt. „Samkvæmt bókinni er þetta bara rétt niðurstaða,“ sagði Albert sem kvaðst hins vegar skilja vel gremju Bæjara eftir einvígið. „Já. Líka eftir vítið sem þeir fengu dæmt á sig í fyrri leiknum. Maður skilur þá mjög vel.“
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez Sjá meira