Rússinn sem hrifsaði til sín sæti Donnarumma Sindri Sverrisson skrifar 7. maí 2026 11:00 Matvey Safonov brosti breitt eftir að hafa slegið Bayern út í gærkvöld. Getty/Ulrik Pedersen „Mér finnst þetta bara svo áhugavert,“ sagði Kjartan Atli Kjartansson í Meistaradeildarmörkunum þegar talið barst að rússneska markverðinum Matvey Safonov. Hann hefur óvænt unnið sig upp í stöðu aðalmarkvarðar PSG og er kominn með liðinu í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu.
Safonov hélt marki sínu hreinu þar til í uppbótartíma gegn Bayern í gær, þegar Harry Kane skoraði og jafnaði í 1-1 en það dugði PSG þó til að vinna einvígið og mæta Arsenal í úrslitaleiknum 30. maí. Safonov kom til PSG frá Krasnodar í Rússlandi sumarið 2024 en var ekki hugsaður sem aðalmarkvörður hjá liðinu. Luis Enrique tók hins vegar sénsinn á honum í vetur og sér eflaust ekki eftir því. „Þeir voru með mann í fyrra sem tók nokkrar vörslur sem bara færðu PSG sigra í útsláttarkeppninni. Donnarumma sem fór svo til Manchester City. Þeir fá svo Lucas Chevalier, liðsfélaga Hákons Arnars hjá Lille, sem átti að vera næstur í markmannstreyju númer eitt. En varamarkvörðurinn Safonov er núna búinn að taka þessa stöðu,“ sagði Kjartan Atli. „Er þetta eðlilegt?“ bætti hann við en umræðuna má sjá hér að neðan. Klippa: Umræða um Safonov „Luis Enrique veit alveg hvað hann er að gera,“ sagði Kjartan Henry Finnbogason og hélt áfram: „Hann vill spila svona bolta þar sem liðið er rosalega hátt með línuna, markvörðurinn mjög hátt, svona svipað og KR gerir. Donnarumma var ekki góður í því. Hann vildi rosa há laun og stóran samning. Þetta er bara vel „scoutað“ hjá þeim. Ég tala nú ekki um hve góður hann er fyrir ímynd félagsins, Rússinn geðugi,“ sagði Kjartan Henry léttur í bragði. Hann benti þó á að Safonov fengi ansi góða hjálp: „Gæjarnir fyrir framan hann, Marquinhos og Pacho. Þetta var alvöru veggur í kvöld.“
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez Sjá meira