Ronaldo á sitt sjötta HM með ógnarsterkum hópi Sindri Sverrisson skrifar 19. maí 2026 12:33 Cristiano Ronaldo spilaði fyrst á HM fyrir tveimur áratugum. Getty/Miguel Lemos Roberto Martínez, landsliðsþjálfari Portúgals, tilkynnti í dag 27 manna HM-hóp sinn fyrir heimsmeistaramótið í Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada sem hefst 11. júní.
Cristiano Ronaldo er á sínum stað í hópnum, 41 árs gamall, og fer því á sitt sjötta heimsmeistaramót eins og búist var við. Hópurinn er ógnarsterkur en á meðal leikmanna eru stórstjörnur á borð við Vitinha hjá PSG, Bruno Fernandes hjá Manchester United og Bernardo Silva hjá Manchester City. HM-hópur Portúgals: Markmenn: Diogo Costa, Rui Silva, José Sá, Ricardo Velho. Varnarmenn: João Cancelo, Diogo Dalot, Rúben Dias, Gonçalo Inácio, Renato Veiga, Tomás Araújo, Nuno Mendes, Matheus Nunes, Nélson Semedo. Miðjumenn: Bruno Fernandes, Bernardo Silva, João Neves, Vitinha, Rúben Neves, Samu Costa. Sóknarmenn: Francisco Trincão, Rafael Leão, Gonçalo Ramos, Cristiano Ronaldo, João Félix, Pedro Neto, Francisco Conceição, Gonçalo Guedes. Óvíst er hve stóran þátt Ronaldo mun taka í leikjum Portúgals og Martínez hefur sagt að það að Ronaldo sé goðsögn tryggi honum ekki spiltíma. 🚨🇵🇹 OFFICIAL: Cristiano Ronaldo will play his 6th World Cup.🇩🇪 2006🇿🇦 2010🇧🇷 2014🇷🇺 2018🇶🇦 2022🇺🇸🇨🇦🇲🇽 2026 pic.twitter.com/JewITdhnlA— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) May 19, 2026 Vitinha segir hins vegar ljóst að allir í portúgalska liðinu vilji leggja sitt að mörkum svo Ronaldo nái að bæta við eina stóra titlinum sem fyrirliðann vantar í safnið; heimsmeistaratitlinum. „Hann er einn besti leikmaður sögunnar. Ég er mjög stoltur af því að deila búningsklefa með honum, læra af honum og verða vitni að fagmennsku hans á hverjum degi. Ég vona að við vinnum HM með honum og líka fyrir hann,“ sagði Vitinha á vef FIFA. Portúgal spilar í K-riðli á HM og ætti að eiga greiða leið í 32-liða úrslitin. Liðið byrjar á að mæta Kongó 17. júní, því næst Úsbekistan 23. júní og loks Kólumbíu 27. júní. Tvö efstu lið hvers riðils komast í 32-liða úrslit sem og átta bestu liðin í 3. sæti í riðlunum tólf.
HM 2026 í fótbolta Fótbolti Mest lesið Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Íslenski boltinn Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Körfubolti Lygilegur uppgangur: „Besta botnlangaaðgerð í sögunni“ Fótbolti Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Enski boltinn Vann erfitt utanvegahlaup þrátt fyrir brákað rifbein Sport Heims- og Ólympíumeistari í maraþoni féll á lyfjaprófi Sport Leik lokið: Víkingur-Fram 2-2 | Víkingar rétt sluppu við súra sigurhátíð Íslenski boltinn Verður Arsenal í vandræðum í fjarveru Saka? Enski boltinn Komu lykilleikmanni fljótt til varnar Körfubolti Dagskráin: Lokaumferð Bestu með Doc Zone og Messan í einum pakka Sport Fleiri fréttir Vafi um réttan markafjölda Ronaldo eftir umdeilt mark „Við munum reyna að vernda hann fyrir sjálfum sér“ Strákarnir hans Freys klífa upp töfluna Markahæsta umferð sögunnar De Zerbi kátur eftir leik: „Nú er þetta fullmótað lið“ Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins „Óvíst hvar Stefan Ljubicic mun spila“ „Engin krafa frá stjórn um að ná sæti í Evrópukeppni“ Tottenham vann tíu Chelsea-menn á Brúnni Leik lokið: Víkingur-Fram 2-2 | Víkingar rétt sluppu við súra sigurhátíð Óskar Hrafn: „Krefst þess að menn séu ekki saddir“ Lárus Orri hættur með ÍA og Heimir sagður á leiðinni Uppgjörið: KA-ÍBV 5-1 | KA fallið þrátt fyrir stórsigur Hólmar Örn Eyjólfsson: „Horfi til baka og er bara stoltur“ Jóhannes Karl sér bjarta tíma fram undan: „Það var eitthvað að mótast, kjarni í liðinu“ Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“ Nýbúin að vera valin best á Íslandi og skoraði tvö mörk í Svíþjóð Lagði upp jöfnunarmark á sama tíma og hann missti markametið Andri Lucas skoraði tvö mörk í sigri á Hollywood-liðinu Arsenal vann og náði Manchester City að stigum Uppgjörið: Stjarnan – Valur 6-0 | Burstuðu Val og unnu Forsetabikarinn Uppgjörið: KR-Breiðablik 8-3 | Ellefu mörk og markamet í Vesturbænum Uppgjörið: ÍA - Keflavík 4-4 | Jafnt eftir markaregn í Akraneshöllinni Sjáðu vítið sem Þórsarar vildu fá Uppgjörið: FH-Þór 1-2 | Þórsarar fögnuðu innilega eftir dramatískan sigur í Laugardalnum Emelía skoraði tvennu í mikilvægum sigri Leikur FH og Þórs færður vegna frosts Sjáðu fimmu Hrafnhildar Ásu í lokaumferðinni Aston Villa - Manchester City 2-1 | Fyrstu töpuðu stig City í deildinni Sjá meira
Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“