FH-ingar boða til blaðamannafundar Sindri Sverrisson skrifar 27. maí 2026 20:01 Eftir einstakan feril sem leikmaður er Aron Pálmarsson nú búinn að snúa sér að þjálfun, 35 ára gamall. vísir/Anton FH-ingar munu á morgun greina frá þjálfaramálum karlaliðs félagsins í handbolta á blaðamannafundi í Kaplakrika.
FH sendi út fundarboð í dag en eins og greint var frá á vef Handkastsins á mánudaginn má reikna með því að Aron Pálmarsson verði á fundinum kynntur sem nýr aðalþjálfari FH. Miðillinn segir jafnframt að fráfarandi aðalþjálfari, Sigursteinn Arndal, komi til með að verða aðstoðarþjálfari liðsins. Aron kom inn í þjálfarateymi FH í febrúar síðastliðnum og tók að sér að stýra sóknarleik liðsins. Áður var hann sérstakur ráðgjafi handknattleiksdeildar félagsins en það er staða sem hann tók við sumarið 2025. Sigursteinn Arndal gerði FH að Íslandsmeistara árið 2024 en það var fyrsti Íslandsmeistaratitill liðsins síðan árið 2011.vísir/Anton Síðasta haust sagðist Aron ekki hafa áhuga á þjálfun en ljóst er að sú skoðun hans hefur breyst. Hann var þannig áberandi í úrslitakeppninni nú í vor þar sem hann stýrði oft leikhléum liðsins og stillti sóknarleikinn af. FH tapaði fyrir Val í oddaleik eftir æsispennandi einvígi um Íslandsmeistaratitilinn. Sigursteinn hefur verið þjálfari FH frá árinu 2019 og stýrði liðinu til Íslandsmeistaratitils árið 2024. Þá var Aron leikmaður liðsins. FH-ingar urðu að sætta sig við silfur í ár eftir æsispennandi úrslitaeinvígi við Val.vísir/Diego Aron lauk ferli sínum sem leikmaður á síðasta ári þar sem hann spilaði eina leiktíð með Veszprem í Ungverjalandi eftir að hafa komið heim í FH og unnið Íslandsmeistaratitilinn vorið 2024. Hann er einn allra besti handboltamaður sögunnar og raðaði inn titlum með Kiel, Barcelona, Veszprem og Álaborg í Danmörku. Hann vann þýsku úrvalsdeildina fimm sinnum, þá spænsku fjórum sinnum og þá ungversku tvisvar. Þá vann hann Meistaradeild Evrópu þrisvar, einu sinni með Barcelona og tvisvar með Kiel. Aron skoraði 576 mörk í 148 landsleikjum fyrir Ísland og vann með liðinu brons á EM 2010.
FH Olís-deild karla Mest lesið Gunnlaugur fékk ekki að klára hringinn en endaði á fugli Golf Gunnlaugur Árni á U.S. Open Golf Rekin fyrir falsfrétt um að pabbi Messi væri dáinn Fótbolti Cristiano Ronaldo eftir Kongó-klúðrið: „Það vantaði ekkert upp á“ Fótbolti Reyndur lýsandi ruglaðist á liðum á HM og var rekinn Fótbolti Tár hetjunnar höfðu áhrif og mamma hans fær að koma á HM Fótbolti Sjáðu innslagið um Gunnlaug Árna í útsendingu US Open Golf Kanadamenn unnu stórsigur en misstu mann af velli fótbrotinn Fótbolti Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Handbolti Straujaði tökumann á HM sem fékk treyju að gjöf Fótbolti Fleiri fréttir Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Sjá meira