Dagur Árni aftur heim í KA Aron Guðmundsson skrifar 30. maí 2026 14:03 Dagur Árni kann vel við sig í gulu treyjunni Mynd:KA Dagur Árni Heimisson er orðinn leikmaður KA á nýjan leik og skrifar hann undir tveggja ára samning við félagið og mun spila með því í Olís deildinni á næsta tímabili.
Frá þessu greinir KA í dag en þessi nítján ára gamli leikmaður stoppaði stutt við hjá Val á Hlíðarenda eftir að hafa verið keyptur til félagsins fyrir síðasta tímabil frá KA. Dagur Árni þekkir KA inn og út. Hann lék sinn fyrsta meistaraflokksleik fyrir félagið veturinn 2021-22 þá aðeins fimmtán ára gamall og varð fljótt lykilmaður fyrir norðan. Leikmaðurinn hefur verið fastamaður í yngri landsliðum Íslands og er sonur Heimis Arnar Árnasonar og Mörthu Hermannsdóttur en bæði hömpuðu þau Íslandsmeistaratitli með KA og KA/Þór. „Við erum afar stolt af því að fá okkar frábæra Dag aftur heim,“ lætur Jón Heiðar Sigurðsson, formaður handknattleiksdeildar KA hafa eftir sér í tilkynningu frá félaginu. „Það er skýr stefna hjá okkur í KA að byggja okkar öfluga lið á KA kjarna sem keyrir á jákvæðri stemningu. Dagur Árni er einn efnilegasti leikmaður landsins og veit nákvæmlega út á hvað handboltinn fyrir norðan snýst um. Það er alvöru fjölskyldubragur á handboltanum hér í KA og alltaf gott þegar uppaldir leikmenn koma aftur heim og ítrekum við að dyrnar hjá okkur standa ávallt opnar. Það er komin virkilega skemmtileg dýnamík í hópinn hjá okkur og ekki spurning að við ætlum okkur áfram að stíga skref áfram og koma KA aftur í alvöru toppbaráttu."
Olís-deild karla KA Handbolti Mest lesið Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti PSG - Arsenal | Bikarinn sem beðið hefur verið eftir Fótbolti Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport „Betra liðið tapaði” Fótbolti „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sigursteinn barðist við tárin Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Hákon Daði til Aftureldingar Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ „Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn FH-ingar boða til blaðamannafundar Átta mörk Óðins en gullið að renna úr greipum Benedikt og Sigurjón leiddu Kolstad að titlinum Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Einar Bragi í miklu stuði eftir ráð pabba og skrefi frá titlinum Verður Aron þjálfari FH? Göppingen vann Einar án Ýmis Elín Klara sænskur meistari Haukur kom að tíu mörkum en meistararnir fögnuðu sigri Nýjasti titillinn í næstmestu uppáhaldi hjá Gísla Góður sigur en erfitt að ná Meistaradeildarsæti Rúnar sigraði á móti sínum gömlu íslensku lærisveinum Donni og félagar komnir í úrslit Allt jafnt í úrslitaeinvíginu Einar Rafn snýr aftur í Fjörðinn Haukur mikilvægari en Gidsel Haukur fær nýjan samning eftir ótrúlega leiktíð Sjá meira