Mæta Argentínu í nótt: „Þetta er svona Bucket-list leikur Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. júní 2026 22:03 Arnar Gunnlaugsson stýrir íslenska landsliðinu á móti heimsmeisturunum í kvöld. Getty/Rodrigo Oropeza Strákarnir okkar mæta ríkjandi heimsmeisturum Argentínu í Bandaríkjunum í nótt. Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari Íslands, segir verkefnið mikilvægt upp á framhaldið að gera hjá sínum mönnum og hefur reynt að greina hvert einasta smáatriði hjá ógnarsterku liði andstæðingsins.
Búist er við því að níutíu þúsund áhorfendur muni fylla Jordan–Hare-leikvanginn í Auburn í Alabama-fylki þar sem heimsmeistarar Argentínu munu ljúka undirbúningi sínum fyrir titilvörnina á HM. Verkefnið er gríðarlega stórt og spennandi fyrir íslenska landsliðið en ekki síður mikilvægt. „Þetta er svona Bucket-list leikur myndi ég segja. Ég fékk þann heiður 1994 að mæta ekki heimsmeisturum heldur liði sem varð heimsmeistari það ár. Þeir voru að fara í sinn síðasta leik áður en þeir fóru til Bandaríkjanna á HM,“ sagði Arnar Gunnlaugsson, þjálfari íslenska liðsins. „Þá var ungur Ronaldo að spila en þetta var gríðarlega sterk upplifun sem ég man ennþá eftir,“ sagði Arnar en Brasilíumenn unnu þann leik 3-0 og Ronaldo skoraði þar sitt fyrsta mark fyrir brasilíska landsliðið í sínum fyrsta byrjunarliðsleik. Það er mikill áhugi fyrir leiknum í kvöld en argentínski landsliðsþjálfarinn hefur lofað því að Lionel Messi taki eitthvað þátt í leiknum. „Mér skilst að það verði uppselt á stóran leikvang hér í Auburn þegar við mætum Argentínumönnum. Níutíu þúsund manns og það er rosaleg stemmning í bænum. Maður finnur það þegar maður labbar og er að skoða sig um að margir eru að stoppa okkur og spyrja um leikinn,“ sagði Arnar. „Það eru allir mjög spenntir að sjá Argentínumenn spila og vonandi okkur. Ég geri mér alveg grein fyrir því að aðdráttaraflið er frekar Argentínumenn og einn ákveðinn leikmaður,“ sagði Arnar. „Þetta ætti að gefa mönnum innspýtingu og svo líka að þetta er síðasti leikurinn fyrir Þjóðadeildina í haust. Það er enginn annar leikur og við þurfum því að nýta þennan tíma vel og vandlega til að vera vel undirbúnir í haust,“ sagði Arnar. Leikur Íslands og Argentínu hefst klukkan eitt í nótt og verður sýndur í beinni útsendingu á Sýn Sport.
Landslið karla í fótbolta Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino Fótbolti Fleiri fréttir Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez Sjá meira