„Held að sú umræða sé bara heima á Íslandi“ Sindri Sverrisson skrifar 23. júní 2026 10:32 Freyr Alexandersson náði eftirtektarverðum árangri með Brann en var óvænt látinn fara um síðustu mánaðamót. Getty/Alessandro Sabattini Freyr Alexandersson segist ekki telja það hafa haft áhrif á sína stöðu sem þjálfari Brann, að hann skyldi fá fjóra samlanda sína til félagsins.
Einhver umræða hefur verið um að Freyr, sem var rekinn frá Brann í byrjun júní en er nú orðinn þjálfari Rosenborgar, gæti hafa gefið höggstað á sér með því að sækja ítrekað Íslendinga til Brann. „Nei, ég held að sú umræða sé bara heima á Íslandi sko, Ég alla vega hef ekki orðið var við það,“ segir Freyr. Eggert Aron Guðmundsson kom fyrstur og þeir Sævar Atli Magnússon, Kristall Máni Ingason og Jón Dagur Þorsteinsson fylgdu á eftir. „Það er þannig þegar að koma Íslendingar að þá er auðvelt að gagnrýna þá ef það er eitthvað, en það hefur aldrei verið „issue“. Sævar og Eggert eru í guðatölu í Bergen, báðir tveir, eftir stórkostlega frammistöðu á frábæru ári 2025. Báðir lenda náttúrulega í hræðilegum meiðslum, hræðilegu „recovery“,“ segir Freyr sem ekki gat nýtt krafta Sævars og Eggerts í langan tíma. „Kristall Máni er búinn að koma sterkur inn og Jón Dagur, hann lenti í gagnrýni en núna var ég að fá allar skýrslur frá þessum fyrstu ellefu leikjum á tímabilinu og það lítur nú bara þannig út að Jón Dagur, hann er bara helvíti ofarlega á öllum þeim listum í því sem hann á að gera inni á vellinum. Svo er hann náttúrulega með munninn fyrir neðan nefið, þannig að það fer stundum öfugt ofan í fólk. Það er bara eins og það er í þessu. En Íslendingarnir í Brann eru mjög vel liðnir og saga Íslendinga í Bergen er mjög góð þannig að það er ekkert vandamál,“ segir Freyr.
Norski boltinn Mest lesið Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Handbolti Utan vallar: Sögufræg vinátta lögð til hliðar í stutta stund með ógn úr austri til staðar Fótbolti Gylfi klár og mun spila stórt hlutverk í kvöld Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Tók óvænt þátt eftir að mamma skráði hana Sport Leikdagur í Tallinn: Hitað upp á Íslandstorgi fyrir mikilvægan leik Fótbolti Leikurinn í kvöld klárast rétt fyrir miðnætti og því dræm mæting Sport Brotinn Gylfi Þór fórnar sér: „Brynja, ég elska þig“ Fótbolti „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Handbolti Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Enski boltinn Fleiri fréttir Leikdagur í Tallinn: Hitað upp á Íslandstorgi fyrir mikilvægan leik Skrýtinn leiktími og leikmenn því ekki með fulla stjórn Af hverju er svona mikilvægt að vinna riðilinn? Utan vallar: Sögufræg vinátta lögð til hliðar í stutta stund með ógn úr austri til staðar Stóri munurinn á feigum og ófeigum: „Hvað er planið?“ Býst við dæmigerðum leik upp á Skaga í Tallinn Kokhraustir Eistar þegar búnir að toppa sig Andleg og líkamleg heilsa fín í mikilli törn Gylfi klár og mun spila stórt hlutverk í kvöld Bíða eftir upplýsingum um hráka Ísraelans Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Mikið sem þarf að hugsa um áður en fyrirkomulagi Íslandsmótsins sé breytt Ronaldo snúinn aftur til félagsliðsins Frakkland - Belgía 4-1 | Varamennirnir björguðu Frökkum Selfoss missir mikið efni Arnar um Aron Einar: „Ekkert persónulegt“ Arnar sat fyrir svörum í Tallinn Dregur sig úr landsliðshópnum Brotinn Gylfi Þór fórnar sér: „Brynja, ég elska þig“ Markvörður Eista meiddur Gylfi með til Eistlands Fljúga til Færeyja í hádeginu Meiddist í Portúgal „Skilgreinandi augnablik“ „Þetta er ástæðan fyrir því að allir hata Bandaríkin“ Segir dyrnar opnar fyrir Ronaldo en biðst ekki afsökunar Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Allt á suðupunkti: Saka Ísraela um að hrækja á aðstoðarmann Heimis Zirkzee með sigurmark en Klopp áfram í brasi Sjá meira