Viðskipti innlent

Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun

Sigurgeir Þorkelsson skrifar
Martin Michael, athafnamaðurinn þýski sem hyggst endurreisa Niceair, er hér til vinstri. 
Martin Michael, athafnamaðurinn þýski sem hyggst endurreisa Niceair, er hér til vinstri.  Samsett

Í fréttatilkynningu frá flugfélaginu Niceair kemur fram að starfsemi á Íslandi hefjist í fyrsta lagi vorið 2027. Sagt er að flug þess á meginlandinu hefjist nú í nóvember en ekki er upplýst milli hvaða staða verður flogið.

Sagt er að ákvörðunin sé tekin í ljósi ástandsins í heimsmálunum og hás eldsneytisverðs. Þá hafi gengið erfiðlega fyrir félagið að afla sér samstarfsaðila sem fæstir séu tilbúnir til langtímaskuldbindinga í yfirstandandi óvissu.

Félagið staðfestir að komið verði á flugi milli Akureyrar og meginlands Evrópu, Akureyringar „eigi skilið sterkar og áreiðanlegar flugsamgöngur“. Slíkt muni þó ekki verða fyrr en markaðsaðstæður séu réttar.

Tekið er fram að eftirspurn sé þó enn sterk á Evrópumarkaði og til skemmri tíma horfi félagið til meginlandsins.

„Eins og áður hefur verið sagt frá vill fyrirtækið heldur einblína nú í vetur á að stækka leiðakerfið þvert yfir Evrópu,“ segir í tilkynningunni en félagið áætlar að hefja starfsemi þar í nóvember. Ekki er tilgreint nákvæmlega um hvaða flugleiðir ræðir. Á heimasíðu félagsins er aðeins talað um flugleiðina milli Akureyrar og Kaupmannahafnar. 

Fullyrt er að á öðrum mörkuðum njóti Niceair mikils stuðnings bæði flugvalla, þjónustuaðila fyrirtækisins og yfirvalda á svæðinu sem leyfi því að vaxa á sjálfbæran hátt.

Síðast þegar Vísir sagði frá flugfélaginu í byrjun árs hafði jómfrúarflugi þess milli Akureyrar og Kaupmannahafnar verið aflýst. Það var síðan í fyrra sem við sögðum frá því að þýskur athafnamaður hygðist endurreisa fyrirtækið. Hið upprunalega Niceair hóf flug árið 2022 en varð gjaldþrota árið eftir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×