„Þeir eru að fara í Evrópuleik bara til að halda klúbbnum á floti“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 27. ágúst 2026 10:00 Mun Gunnar Vatnhamar kveðja Víking með stæl í kvöld eða endar hans síðasti leikur fyrir félagið með svekkelsi? vísir / diego Víkingur er 3-1 undir í einvíginu fyrir seinni leikinn við Borac Banja Luka í umspili Sambandsdeildarinnar í kvöld. Um hálfur milljarður er undir og það hlakkar í andstæðingum Víkings hér heima fyrir að sjá liðið í þessari erfiðu stöðu.
Slæmur fyrri hálfleikur varð Víkingum að falli í fyrri leiknum, þeir lentu 2-0 undir snemma og töpuðu leiknum að lokum 3-1. Ljóst er að liðið þarf að framkalla betri frammistöðu í kvöld en þjálfari Víkings segir vel hægt að snúa einvíginu við. „Við höfum gert það og við höfum sýnt það áður í gegnum okkar Evrópuferil að við getum gert það,“ sagði Sölvi Geir Ottesen í fjarviðtali fyrir leik og nefndi til dæmis einvígi Víkings í undankeppni Sambandsdeildarinnar 2024. Þá missteig Víkingur sig í heimaleikjunum gegn Egnatia (0-1 tap) Flora Tallinn (1-1 jafntefli) en vann síðan útileikina (2-0 og 2-1). „Svo sáum við líka úrslit í fyrradag þar sem LASK, okkar gömlu mótherjar, náðu heldur betur að snúa taflinu við gegn Celtic. Þannig að þetta er einvígi er alveg galopið enn þá,“ bætti Sölvi við og vísaði í magnaða fimm marka endurkomu austurríska liðsins. Víkingar hafa lagt allt í sölurnar til að ná þessu markmiði, að komast í Sambandsdeildina, og fengið nýja leikmenn til að styrkja liðið í þeirri baráttu. Hrannar Snær Magnússon hefur til dæmis komið inn af krafti í Víkingsliðið. Hann átti öfluga innkomu af varamannabekknum í síðustu viku gegn Borac Banja Luka og gaf svo sína fyrstu stoðsendingu fyrir Víking í 2-0 deildarsigri gegn Val um helgina. „Ég hef fengið mjög góðar móttökur í Víkinni og er að koma mér alveg í gang aftur. Ekki búinn að spila svakalega mikið á þessu ári en maður er að koma sér í gírinn og aftur í rútínu. Sterkur sigur á móti Val, gríðarlega gott að halda hreinu þar,“ sagði Hrannar í aðdraganda leiksins gegn Borac Banja Luka í kvöld. „Boginn er ekkert eðlilega mikið spenntur“ Fjárhagslega séð yrði það gríðarlegt áfall fyrir Víking að komast ekki í Sambandsdeildina. Um hálfur milljarður er undir í þessu umspili og það hlakkar í keppinautum Víkings í Bestu deildinni að sjá liðið misstíga sig. „Sjö leikir eftir af Íslandsmótinu en þeir eru að fara í eitthvað allt annað. Þeir eru að fara í Evrópuleik bara til að halda klúbbnum á floti, segi ég. Þeir eru að fara í risaleik, boginn er ekkert eðlilega mikið spenntur og þetta var krafa hjá þeim fyrir tímabilið, að komast inn í riðlakeppni. Þannig að ég held að þeir séu ekkert að pæla endilega í okkur. Þeir eru með annað og stærra til að pæla í,“ sagði Aron Sigurðarson, fyrirliði KR, þegar hann var á dögunum spurður út í toppbaráttuna við Víking.
Sambandsdeild Evrópu Víkingur Reykjavík KR Íslenski boltinn Mest lesið 16 ára hetja Vals: „Bara sofa vel og skólinn á morgun“ Körfubolti Leikmenn landsliðsins sekir um agabrot Fótbolti Bakgarðsáskorunin: „Éta eða vera étinn“ Sport Sláttuvél tók á loft í Svíþjóð Sport Mótherji Eriku kastaði dós í hana Sport Haaland rýfur þögnina: „Verðum öll að standa saman“ Enski boltinn Uppgjörið: Valur - Stjarnan 90-77 | 16 ára gutti stal senunni Körfubolti „Ótrúlegt að hann sé tveimur árum eldri en ég“ Körfubolti Sluppu við herskyldu en fögnuðu of mikið Fótbolti Siggi Raggi saknar barnanna og gefur íslenskum liðum undir fótinn Fótbolti Fleiri fréttir Mourinho tekur upp hanskann fyrir Mbappe „Ef ég myndi segja allar þá myndi fólk halda að ég væri klikkuð“ Tumi Fannar mættur á Hlíðarenda Setja félagið á sölu tveimur árum eftir kaup Ungu strákarnir okkar slást við Grikki um sæti á EM Í tveggja leikja bann fyrir að kippa í hárið Haaland rýfur þögnina: „Verðum öll að standa saman“ Siggi Raggi saknar barnanna og gefur íslenskum liðum undir fótinn Sluppu við herskyldu en fögnuðu of mikið Leikmenn landsliðsins sekir um agabrot Xhaka sekur um að falsa Covid-19 vottorð Haaland biðlar til stuðningsmanna að standa saman Ceferin ætlar sér að stýra UEFA áfram Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Ber enn örið: „Eitur í æðum mér“ Wirtz sé búinn að missa trúna Varaforsetinn mildar afstöðu sína gagnvart Infantino Eins og óendurgoldin ást „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Heimir þrefalt líklegri en Ísland til að fara á EM Guardiola verður viðstaddur fyrsta heimaleik Manchester City eftir dóminn Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Býður sig fram á móti Infantino Tarik framlengir við Víking Leggur skóna á hilluna Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Upp um eitt sæti á heimslistanum Rekinn frá Tyrkjum Sjá meira