Handbolti

Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri

Aron Guðmundsson skrifar
Jóhanna Margrét Sigurðardóttir var mögnuð í kvöld.
Jóhanna Margrét Sigurðardóttir var mögnuð í kvöld. vísir/Ernir

Þrír leikir fóru fram í Olís deild kvenna í handbolta í kvöld. Íslandsmeistarar Vals komust aftur á sigurbraut á meðan að vandræði KA/Þórs héldu áfram. Þá átti Jóhanna Margrét Sigurðardóttir magnaðan leik í sigri Hauka.

Í Garðabænum var hins vegar boðið upp á nágrannaslag Stjörnunnar og Hauka. Þar voru það gestirnir frá Hafnarfirði sem höfðu betur 32-28. 

Jóhanna Margrét Sigurðardóttir fór á kostum í liði Hauka í kvöld og skoraði yfir helming marka liðsins, alls sautján talsins hvorki meira né minna. 

Stjörnukonur réðu ekkert við Jóhönnu í kvöld en Valgerður Elín Snorradóttir var markahæst í liði heimakvenna með tólf mörk. 

Með sigrinum fara Haukar á topp Olís deildarinnar og eru þar með fullt hús stiga líkt og Fram og ÍR en eru með besta markahlutfallið.

Meistarasigur en bras á Norðankonum

Ríkjandi Íslandsmeistarar Vals komust aftur á sigurbraut í kvöld en liðið hafði betur gegn KA/Þór á Akureyri. 

Katla María Magnúsdóttir var atkvæðamest í liði Vals með átta mörk en hjá KA/Þór var Bergrós Ásta Guðmundsdóttir markahæst með fimm mörk.

Valskonur eru með fjögur stig eftir fyrstu fjórar umferðir deildarinnar og eru í fjórða sæti og jú fjórum stigum á eftir toppliðunum. KA/Þór er hins vegar í miklu veseni á botni deildarinnar án stiga.

Spenna á Seltjarnarnesi

Á Seltjarnarnesi hafði ÍR betur gegn Gróttu í algjörum spennutrylli sem lauk með eins marks sigri ÍR, 31-30. 

Sara Dögg Hjaltadóttir skoraði sjö mörk í liði ÍR í kvöld líkt og Karlotta Kjerúlf og Þóra María Sigurjónsdóttir í liði Gróttu.

ÍR með fullt hús stiga líkt og toppliði Hauka og Fram í þriðja sæti deildarinnar. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×