Innlent

Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum

Birgir Olgeirsson skrifar
Sigríður Andersen, þingmaður Miðflokksins, stingur upp á að sjálfkeyrandi bílar verði prófaðir í almenningssamgöngum í Vestmannaeyjum. Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra tekur vel í hugmyndina.
Sigríður Andersen, þingmaður Miðflokksins, stingur upp á að sjálfkeyrandi bílar verði prófaðir í almenningssamgöngum í Vestmannaeyjum. Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra tekur vel í hugmyndina. Vísir

Sjálfkeyrandi bíla mætti prófa í almenningssamgöngum í Vestmannaeyjum, að mati Sigríðar Andersen, þingmanns Miðflokksins. Innviðaráðherra tekur vel í hugmyndina og segir slíkar tilraunir á Heimaey koma vel til greina.

Hugmyndin kom fram í sérstakri umræðu um sjálfkeyrandi bíla á Alþingi í dag. Þar var rætt um hvernig undirbúa ætti íslenska vegakerfið og löggjöf fyrir bíla sem geta ekið án þess að maður sitji við stýrið.

Sigríður velti upp hvort Ísland ætti að taka skref umfram önnur lönd vegna smæðar landsins og tiltölulega einfaldra innviða. 

Sigríður Andersen segir íslenska löggjöf fáorða um sjálfkeyrandi bíla og kallar eftir svörum um hvernig stjórnvöld undirbúi komu þeirra.Vísir/Anton Brink

Hún nefndi sérstaklega Vestmannaeyjar og sagði að „þar væri t.d. hægt að prófa þessa bíla, t.d. í almenningssamgöngum“.

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra tók undir að Ísland gæti hentað vel til að prófa nýja tækni. Hér væri lítill en kröfuharður markaður og Íslendingar hefðu gjarnan verið fljótir að tileinka sér tækninýjungar.

Hann sagði koma vel til greina að skoða sjálfkeyrandi bíla á ákveðnum svæðum, „jafnvel á lítilli eyju sem heitir Heimaey, það kæmi vel til greina“.

Rósa Guðbjartsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins hefur meðal annars vakið athygli á sjálfkeyrandi bílum. 

Yfir hálf milljón ferða á viku

Hægt er að kaupa far með sjálfkeyrandi leigubíl án ökumanns á afmörkuðum svæðum í að minnsta kosti þremur löndum: Bandaríkjunum, Kína og Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Þjónustan er bundin við tilteknar borgir og þjónustusvæði.

Í Bandaríkjunum notar Waymo meðal annars Jaguar I-PACE-bíla sem eru búnir sjálfvirku aksturskerfi fyrirtækisins. Í Kína og Sameinuðu arabísku furstadæmunum rekur WeRide meðal annars GXR-leigubíla sem hafa verið þróaðir með Farizon, sem tilheyrir kínversku Geely-samstæðunni.

Waymo sagði í september að fyrirtækið sinnti yfir hálfri milljón greiddra farþegaferða á viku. Kínverska tæknifyrirtækið Baidu rekur jafnframt sjálfkeyrandi leigubílaþjónustuna Apollo Go. Samkvæmt fyrirtækinu sinnti þjónustan 3,2 milljónum ferða án ökumanns á fyrsta ársfjórðungi þessa árs. Heildarfjöldi ferða hefði aukist um yfir 120 prósent frá sama tímabili í fyrra.

Tesla rekur einnig sjálfkeyrandi leigubílaþjónustuna Robotaxi. Samkvæmt fyrirtækinu er þjónustan í boði á afmörkuðum svæðum í sex bandarískum borgum: Austin, Dallas, Houston, Miami, Orlando og Tampa. Bílaflotinn samanstendur af Model Y og Cybercab.

Tesla býður eigendum einkabíla jafnframt upp á FSD Supervised-akstursaðstoð á sumum mörkuðum. Sú útfærsla krefst áfram virks eftirlits ökumanns, eins og fyrirtækið tekur fram á upplýsingasíðu sinni.

Heimilt að prófa með leyfi

Umferðarlög heimila þegar prófanir á sjálfkeyrandi bílum með leyfi Samgöngustofu. Umsækjandi þarf að sýna fram á að umferðaröryggi sé tryggt og að prófunin valdi ekki verulegum truflunum eða óþægindum í umferðinni.

Samgöngustofa getur meðal annars sett það skilyrði að prófanir fari fram á lokaðri braut og að ökumaður sé í bílnum og geti gripið inn í aksturinn. 

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra vill láta kanna hversu tilbúið íslenska vegakerfið sé fyrir sjálfkeyrandi bíla.

Leyfið er tímabundið en það má endurnýja. Þetta kemur fram í 76. grein umferðarlaga.

Ráðherrann sagði hins vegar að lögin gerðu ekki ráð fyrir almennri notkun sjálfkeyrandi bíla án eftirlits ökumanns. Skýra þyrfti hvenær mætti fela sjálfvirkum kerfum stjórnina og hvenær ökumaður þyrfti áfram að vera til staðar.

Þá þyrfti að skilgreina mismunandi stig sjálfvirkni, tæknilegar kröfur til bílanna og hver bæri ábyrgð þegar sjálfvirkur búnaður stjórnaði akstrinum.

Hver ber ábyrgð ef bíllinn veldur slysi?

Ábyrgð á slysum var eitt þeirra álitamála sem þingmenn vöktu sérstaklega athygli á.

Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir, þingmaður Flokks fólksins, spurði hvort ábyrgðin lægi hjá eiganda bílsins, framleiðandanum eða hugbúnaðarfyrirtækinu.

Vestmannaeyjar gætu orðið vettvangur prófana á sjálfkeyrandi bílum. Slíkar prófanir þurfa leyfi Samgöngustofu.Vísir/Vilhelm

Á Alþingi liggur fyrir þingsályktunartillaga Rósu Guðbjartsdóttur og fleiri þingmanna um að innviðaráðherra leggi fram frumvarp sem skýri reglur um sjálfkeyrandi bíla og skiptingu ábyrgðar vegna tjóna. Þar er meðal annars lagt til að breyta umferðarlögum, lögum um ökutækjatryggingar og lögum um leigubifreiðaakstur. Flutningsmenn vilja að frumvarpið verði lagt fram í síðasta lagi haustið 2027.

Snjórinn getur falið vegmerkingarnar

Íslenskt veðurfar og ástand vegakerfisins voru einnig fyrirferðarmikil í umræðunni.

Ráðherrann sagði núverandi vegainnviði að verulegu leyti geta stutt sjálfvirkan akstur. Snjókoma og lélegt skyggni á vegmerkingar takmörkuðu hins vegar virkni kerfanna. Aukin sjálfvirkni kallaði jafnframt á öflugri fjarskipti og nákvæmari stafrænar upplýsingar um vegi og breytilegar aðstæður.

Kolbrún spurði hvernig bílarnir réðu við blindbyl á Hellisheiði, vegmerkingar undir snjó og skafrenning sem byrgði myndavélum sýn.

Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir, þingmaður Flokks fólksins, spyr hvernig sjálfkeyrandi bílar ráði við íslenska vetrarfærð og hver beri ábyrgð ef þeir valda slysi.Vísir/Vilhelm

Í lok umræðunnar sagði Eyjólfur næsta skref vera að kanna hversu tilbúið þjóðvegakerfið væri fyrir aukna sjálfvirkni. Hann ætlaði að beita sér fyrir slíkri athugun samkvæmt tillögu Vegagerðarinnar.

Skoða ætti vegmerkingar, skilti og hönnun vega, viðhald og vetrarþjónustu, stafrænar vegaupplýsingar og fjarskipti. Meðal annars yrði metið hvort merkingar væru nægilega sýnilegar fyrir sjálfvirk aksturskerfi. Niðurstöðurnar gætu nýst við hönnun vega, útboð og kröfur um viðhald.

Tómar ferðir gætu aukið umferð

Þingmenn sáu meðal annars tækifæri til að bæta samgöngur eldra fólks, fatlaðs fólks og þeirra sem búa þar sem almenningssamgöngur eru takmarkaðar. Kolbrún nefndi litla sjálfkeyrandi vagna sem gætu sótt fólk heim að dyrum.

Dagur B. Eggertsson, þingmaður Samfylkingarinnar, lagði áherslu á að greina á milli sjálfkeyrandi einkabíla, samnýttra bíla og almenningssamgangna. Tómar ferðir bílanna gætu aukið umferð.

Dagur B. Eggertsson, þingmaður Samfylkingarinnar, bendir á að sjálfkeyrandi bílar geti aukið umferð ef þeir aka tómir á milli ferða með farþega.Vísir/Anton Brink

Pawel Bartoszek, þingmaður Viðreisnar, tók dæmi af tónleikagesti í Hörpu. Í stað þess að leggja bílnum meðan á tónleikum stæði gæti eigandinn sent hann tóman heim og látið sækja sig síðar. Þannig yrðu tvær ferðir af fjórum.

Dagur taldi samnýtingu og almenningssamgöngur því lykilatriði við að nýta tæknina. Kristján Þórður Snæbjarnarson, þingmaður Samfylkingarinnar, taldi sömuleiðis að sjálfvirkni í almenningssamgöngum gæti reynst betur til að draga úr umferð og dreifa álagi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×