Fótbolti

Enn tap­lausar þrátt fyrir mar­traðar­byrjun

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Glódís Perla Viggósdóttir í baráttunni við Lineth Beerensteyn hjá Real Madrid í leiknum í kvöld.
Glódís Perla Viggósdóttir í baráttunni við Lineth Beerensteyn hjá Real Madrid í leiknum í kvöld. Getty/Sebastian Widmann

Kvennalið Bayern München hefur enn ekki tapað leik á tímabilinu og það breyttist ekki í kvöld þrátt fyrir erfiða byrjun í leik í Meistaradeildinni.

Glódís Perla Viggósdóttir og félagar í Bayern gerðu 2-2 jafntefli við Real Madrid á heimavelli sínum eftir að hafa lent 0-2 undir á fyrstu 22 mínútum leiksins.

Bæjarar minnkuðu muninn á 30. mínútu og skoruðu svo jöfnunarmark á 52. mínútu.

Bayern hefur nú leikið þrettán fyrstu leiki tímabilsins án þess að tapa en þetta var annað jafntefli liðsins í þessum leikjum.

Athenea del Castillo og Lineth Beerensteyn komu Real í 2-0 með mörkum á 7. og 22. mínútu en Edna Imade minnkaði muninn og Momoko Tanikawa skoraði svo jöfnunarmarkið.

Glódís Perla lék allan leikinn í miðri vörninni en ekki með sama miðvörð sér við hlið. Hin sænska Magdalena Eriksson leysti hina kanadísku Vanessu Gilles af í hálfleik.

Bayern er með tvö jafntefli og einn sigur í fyrstu þremur leikjum sínum í Meistaradeildinni en Real Madrid hefur þurft að sætta sig við jafntefli í öllum sínum þremur leikjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×