

Besta deild karla
Leikirnir

Sun og Mail ljúga því að Gylfi hafi verið rekinn
Fréttir af því að Gylfi Þór Sigurðsson sé mættur í íslenska boltann hafa víða ratað í erlenda fjölmiðla en þeir fara misvel með sannleikann.

Gylfa hafi verið tilkynnt að hann sé ekki í landsliðshópnum
Gylfi Þór Sigurðsson fékk að vita á dögunum að hann verði ekki í landsliðshópi Íslands sem tilkynntur verður á morgun ef marka má fyrirliða Fylkis. Gylfi æfði með Fylkismönnum á Spáni í síðustu viku.

„Hefur gífurlega mikla þýðingu fyrir Val og íslenskan fótbolta“
Börkur Edvardsson, formaður knattspyrnudeildar Vals, segir komu Gylfa Þórs Sigurðssonar til félagsins sé uppskera þeirra gríðarlegrar vinnnu sem farið hefur verið í hjá Val undanfarin ár. Valur væntir mikils af Gylfa Þór. Koma hans sé gríðarleg viðurkenning fyrir félagið.

Gylfi Þór orðinn leikmaður Vals
Gylfi Þór Sigurðsson hefur samið við Val um að leika með félaginu í Bestu deild karla í fótbolta næsta sumar. Gylfi semur til tveggja ára en skrifað var undir í Montecastillo á Spáni nú í morgun.

Borgarstrákur en spenntur fyrir ævintýri á Ísafirði
Markvörðurinn William Eskelinen hafnaði tilboðum frá Skandinavíu og fleiri stöðum í Evrópu áður en þessi 27 ára Svíi ákvað að samþykkja tilboð frá Ísfirðingum og spila fyrir Vestra.

Gylfi nálgast Val en blekið ekki komið á pappír
Allt útlit er fyrir að Gylfi Þór Sigurðsson, markahæsti landsliðsmaður Íslands frá upphafi, spili í Bestu deildinni í fótbolta á komandi leiktíð.

Besta sætið: Engar afsakanir lengur hjá Val
Ekkert annað en Íslandsmeistaratitill kemur til greina hjá Valsmönnum í sumar. Þetta segja Atli Viðar Björnsson og Baldur Sigurðsson.

FH vill Ísak Óla í miðvörðinn
FH vonast til að fá varnarmanninn Ísak Óla Ólafsson frá Esbjerg áður en Besta deild karla í knattspyrnu rúllar af stað. Það gengur þó illa að ná saman við dansak félagið.

Alex Freyr mættur heim í Fram
Alex Freyr Elísson er genginn til liðs við uppeldisfélag sitt Fram. Hann skrifar undir samning út leiktíðina 2025.

Pétur riftir við Blika og íhugar að hætta
Framherjinn hávaxni Pétur Theodór Árnason er á batavegi eftir að hafa meiðst í hné enn einu sinni, en hefur rift samningi sínum við knattspyrnudeild Breiðabliks og íhugar að hætta.

Aron stefnir á þjálfun | Mætir með klippur á æfingar og lætur menn heyra það
Aron Jóhannsson, leikmaður Vals, sér fyrir sér að fara út í þjálfun eftir að knattspyrnuferlinum lýkur. Samherjar hans vilja aftur á móti meina að hann yrði erfiður þjálfari.

Alex Freyr heim í Fram áður en langt um líður
Alex Freyr Elísson mun ganga til liðs við uppeldisfélag sitt Fram á næstu dögum. Hann lék með liðinu allar götur til ársins 2023 þegar Breiðablik keypti hann. Þar náði hann aldrei að festa sig í sessi og er nú á leið aftur í Fram.

Draumastarf Arnars er í Aþenu
Arnar Grétarsson ætlar sér að gera Valsmenn að Íslandsmeisturum í fótbolta í sumar. Hann dreymir hins vegar einnig um að taka einn daginn við gríska stórliðinu AEK Aþenu.

Valsmenn í viðræðum við Gylfa
Líkurnar virðast sífellt aukast á því að knattspyrnumaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson, markahæsti landsliðsmaður Íslands frá upphafi, spili á Íslandi í sumar, í fyrsta sinn á löngum meistaraflokksferli.

TF-Besta hefur sig til flugs: Allir út í sólina nema KR
Hver á fætur öðrum pakka meistaraflokkar íslenskra félagsliða í fótbolta niður í töskur og halda út fyrir landssteinana í æfingaferðir fyrir komandi tímabil. Öll lið Bestu deildar karla, nema KR sem fer ekki út í æfingarferð, halda út til Spánar þetta árið.

Mættur í stærsta félag Íslands og vill hjálpa KR að vinna titla
„Að fá að spila fyrir stærsta félag Íslands. Flestir titlar, sagan segir sitt. Ég er mjög sáttur að vera kominn hingað,“ sagði Axel Óskar Andrésson, nýjasti leikmaður KR í Bestu deild karla í knattspyrnu. Hann var eftirsóttur en valdi á endanum KR og stefnir á að sýna landi og þjóð hvað hann getur í sumar.

„Álagið á konunum okkar erlendis er svona þúsund sinnum meira en hér“
Aron Jóhannsson segir mikinn mun á þátttöku sinni í heimilisstörfunum eftir að hann flutti heim úr atvinnumennskunni. Hann verður í viðtali í öðrum þættinum af Lengsta undirbúningstímabil í heimi í kvöld.

„Mín tilfinning er sú að Gylfi spili í Bestu deildinni í sumar“
Hvar spilar Gylfi Þór Sigurðsson sumarið 2024? Besta sætið ræddi framtíð eins besta knattspyrnumanns Íslandssögunnar.

Gylfi æfir með Valsmönnum
Gylfi Þór Sigurðsson verður með Valsmönnum í æfingabúðum á Spáni sem ýtir enn frekar undir orðróminn um að hann verði með Valsliðinu í Bestu deild karla í fótbolta í sumar.

Axel Óskar orðinn leikmaður KR
Varnarmaðurinn Axel Óskar Andrésson hefur samið við KR um að leika með félaginu í Bestu deild karla í sumar. Axel kemur til liðsins frá Örebro í Svíþjóð.

Blikar veltu meira en milljarði eftir Evrópuævintýrið
Knattspyrnudeild Breiðabliks hefur birt ársreikning sinn eftir fyrsta ár íslensks liðs í riðlakeppni Sambandsdeildar karla, með tilheyrandi tekjuaukningu.

Væri ekkert vesen ef rétt væri staðið að hlutunum
Vallarstjóri KR á Meistaravöllum, Magnús Valur Böðvarsson, fylgist náið með langtíma veðurspánni og vonar að marshretið haldi sig fjarri Vesturbænum. Það styttist í að flautað verði til leiks í Bestu deild karla og er Magnús þokkalega bjartsýnn á að heimavöllur KR verði leikfær fyrir fyrsta heimaleik liðsins.

KR að landa öflugum liðsstyrk
KR-ingar eru svo gott sem búnir að landa miðverðinum Axel Óskari Andréssyni sem þar með snýr heim til Íslands úr atvinnumennsku.

Danskur varnarmaður til Breiðabliks
Danski varnarmaðurinn Daniel Obbekjær er genginn í raðir Breiðabliks. Hann samdi við félagið út tímabilið 2025.

Óli Valur líklega á heimleið
Stjörnunni gæti verið að berast enn frekari liðsstyrkur fyrir átökin í Bestu deild karla í sumar.

Leit að miðjumanni stendur yfir
Arnar Grétarsson, þjálfari karlaliðs Vals í fótbolta, segir félagið vera að leita að miðjumanni eftir brotthvarf Birkis Heimissonar á dögunum. Það sé ekki gengið að því að finna mann í hans stað.

Á allt öðrum stað en hin liðin
Halldór Árnason, þjálfari Breiðabliks, segist nokkuð ánægður með stöðuna á leikmannahópi liðsins nú þegar mánuður er í fyrsta leik í Bestu deild karla. Blikar hafa þá þurft að aðlagast heldur óvenjulegu undirbúningstímabili.

Úr Vesturbænum í Krikann
Sigurður Bjartur Hallsson er genginn í raðir FH frá KR. Hann mun því leika með liðinu í Bestu deild karla næsta sumar.

Guðmundur Baldvin aftur í Stjörnuna
Stjörnunni hefur borist mikill liðsstyrkur mánuði en keppni í Bestu deild karla hefst. Guðmundur Baldvin Nökkvason er kominn til liðsins á láni frá Mjällby í Svíþjóð.

Hræddur að fara of nærri Norður-Kóreu
Norðmaðurinn Benjamin Stokke hafnaði tilboðum víða að á kostnað Breiðabliks sem hann mun leika með í Bestu deild karla í sumar. Fyrrum leikmaður Blika gerði mikið til að sannfæra Norðmanninn um að koma til Íslands.