Stjarnan yfir gegn KR Nú er kominn hálfleikur í leikjum kvöldsins í Landsbankadeild kvenna. Stjörnustúlkur hafa yfir 1-0 gegn KR í rokinu á Stjörnuvelli, þar sem Helga Jóhannesdóttir skoraði mark heimamanna á 18. mínútu. Valur hefur yfir 4-0 í hálfleik gegn KA/Þór, Breiðablik leiðir 3-0 gegn Keflavík og markalaust er hjá FH og Fylki. Sport 23. maí 2006 20:23
Þráðlaust net á vellinum í sumar Og Vodafone hefur tekið í notkun þráðlaust net (Hot Spot) á öllum völlum í efstu deild karla og kvenna í sumar, alls 13 völlum. Innlent 18. maí 2006 11:19
Auðvelt hjá Blikastúlkum Íslandsmeistarar Breiðabliks hefja leiktíðina með glæsibrag í Landsbankadeild kvenna í knattspyrnu, en í kvöld vann liðið öruggan 4-0 sigur á KR á Kópavogsvelli. Á sama tíma burstuðu Valsstúlkur Stjörnuna 6-0, Þór/KA vann FH 4-2 fyrir norðan og Keflavíkurstúlkur lögðu Fylki í Árbænum 2-0. Sport 16. maí 2006 21:26
Stórleikur strax í fyrstu umferð Fyrsta umferð Landsbankadeildar kvenna fer fram í kvöld með fjórum leikjum og þar er er strax á dagskrá stórleikur Íslandsmeistara Breiðabliks og KR á Kópavogsvelli. Leikir kvöldsins hefjast allir klukkan 19:15. Sport 16. maí 2006 17:55
Íslandsmeistararnir verja titla sína Í dag var haldinn árlegur kynningarfundur fyrir Íslandsmótið í knattspyrnu þar sem forráðamenn, þjálfarar og fyrirliðar liðanna í Landsbankadeildinni spáðu í spilin fyrir komandi vertíð í sumar. Íslandsmeisturunum frá því í fyrra, FH og Breiðablik er spáð áframhaldandi velgengni í sumar. Sport 11. maí 2006 19:05
Ásthildur leikur ekki með Blikum í sumar Kvennalið Breiðabliks í Landsbankadeildinni hefur orðið fyrir mikilli blóðtöku fyrir átökin í sumar, því ljóst er að landsliðskonan Ásthildur Helgadóttir mun ekki spila með liðinu í sumar. Ásthildur hefur náð samkomulagi við lið sitt Malmö í Svíþjóð um að leika áfram með liðinu, þrátt fyrir að vera áfram búsett hérlendis. Þetta kemur fram á heimasíðu Breiðabliks í dag. Sport 9. maí 2006 16:25
Spilað undir nafni ÍBV/Selfoss? Kvennalið ÍBV er í stökustu vandræðum með að finna stelpur til að spila fótbolta úti í Vestmannaeyjum. Svo gæti farið að ÍBV spili undir sameiginlegum merkjum liðsins og Selfoss undir nafninu ÍBV/Selfoss í Landsbankadeild kvenna í sumar. Sport 11. mars 2006 11:00
Spilar þrjá leiki fyrir Malmö Knattspyrnukonan Ásthildur Helgadóttir mun fljúga í þrígang utan til Malmö FF í Svíþjóð í vor og spila þrjá fyrstu leiki liðsins á komandi leiktíð. Sport 9. febrúar 2006 11:30
Annríki hjá Keflvíkingum Landsbankadeildarlið Keflavíkur í karla- og kvennaflokki gengu í dag frá samningum við hvorki meira né minna en fimmtán leikmenn í dag. Hjá karlaliðinu bar hæst að þeir Þórarinn Kristjánsson og Hörður Sveinsson sömdu við félagið, en talið var líklegt að Hörður kæmist að hjá liði erlendis. Sport 19. janúar 2006 20:28
Ásthildur Helgadóttir á leið í Kópavoginn Knattspyrnudeild Breiðabliks hefur boðað til blaðamannafundar í íþróttahúsinu í Smáranum nú klukkan fjögur síðdegis þar sem tilkynnt verður að besta knattspyrnukona landsins, Ásthildur Helgadóttir, muni ganga í raðir félagsins. Ásthildur hefur spilað sem atvinnumaður í Svíþjóð undanfarið, en hefur hug á að ljúka ferlinum hér heima. Sport 17. nóvember 2005 12:45
KR-FH í 1. umferð Íslandsmeistarar FH heimsækja KR í Frostaskjól í 1. umferð Landsbankadeildar karla næsta sumar en dregið var í töfluröð landsleilda 2006 nú í dag. Í 1. umferð Landsbankadeildar kvenna hefja Blikastúlkur titilvörn sína með því að leika við KR. Sport 12. nóvember 2005 15:04
Fjölmiðlamenn ráku þjálfara Ólafur Jóhannesson þjálfari Íslandsmeistara FH í knattspyrnu karla segir að ýmsir blaðamenn hafi óbeint með skrifum sínum rekið knattspyrnuþjálfara úr störfum sínum í Landsbankadeildinni í sumar. Þetta sagði Ólafur í ræðu á formannafundi allra aðildarfélaga KSÍ sem fram fór á Hótel Nordica í morgun. Sport 12. nóvember 2005 13:15
Dregið í töfluraðir í dag Í dag kl. 13 verður dregið í töfluröð fyrir landsdeildir 2006 í fótbolta en þá skýrist hvaða félög mætast í einstökum umferðum viðkomandi móts. Drátturinn er fyrir Landsbankadeild karla, Landsbankadeild kvenna, 1. deild karla og 2. deild karla og fer hann fram á Hótel Nordica. Niðurstöður dráttarins ættu að liggja fyrir um miðjan daginn í dag. Sport 12. nóvember 2005 12:48
Breiðablik ræður þjálfara Knattspyrnudeild Breiðabliks hefur gengið frá ráðningu fjögurra þjálfara sem annast munu meistaraflokk og annan flokk liðsins á næsta keppnistímabili. Guðmundur Magnússon hefur verið ráðinn sem aðalþjálfari kvennaliðsins í stað Úlfars Hinrikssonar. Sport 5. október 2005 00:01
Borgvardt og Laufey best Allan Borgvardt sem lék með FH í sumar var valinn besti leikmaðurinn í Landsbankadeild karla á lokahófi KSÍ sem fram fór á Broadway í kvöld. Laufey Ólafsdóttir hjá Val var valin best í kvennaflokki. Þá var Hörður Sveinsson leikmaður Keflavíkur valinn efnilegasti leikmaður ársins í karlaflokki og Greta Mjöll Samúelsdóttir Breiðabliki í kvennaflokki. Sport 1. október 2005 00:01
Ósáttir við ákvörðun Úlfars Úlfar Hinriksson, annar tveggja þjálfara Íslands- og bikarmeistara Breiðabliks í knattspyrnu kvenna, er hættur að þjálfa liðið en Úlfar sendi frá sér yfirlýsingu þess efnis í gær. Úlfar var einnig yfirþjálfari yngri flokka hjá Breiðabliki en árangur þeirra var afar glæsilegur á Íslandsmótunum í sumar. Sport 30. september 2005 00:01
Úlfar hættur með Breiðablik Úlfar Hinriksson, sem stýrði kvennaliði Breiðabliks til sigurs í deild og bikar í sumar, hefur ákveðið að segja starfi sínu lausu hjá félaginu, þar sem honum þykir liggja í augum uppi að starfskrafta hans sé ekki óskað í framtíðinni. Sport 30. september 2005 00:01
FH-stúlkur áfram í efstu deild Kvennalið FH í knattspyrnu leikur áfram í Landsbankadeildinni eftir markalaust jafntefli gegn Þór/KA/KS í síðari leik liðanna í gær. FH vann fyrri leikinn 4-1. Sport 16. september 2005 00:01
Besti árangur Blika í 55 ára sögu Ef einhvern tíma hefur verið ástæða fyrir Blika til að fagna góðri uppskeru þá er það um helgina en uppskeruhátíð besta tímabils deildarinnar frá upphafi fer fram á morgun laugardag, 17. september í félagsaðstöðunni í Smáranum. Árangur Blika í sumar er sá besti í 55 ára sögu félagsins og ekkert annað félag hefur átt annað eins sumar. Sport 16. september 2005 00:01
Framtíð Úlfars óráðin? Miklar væringar eiga sér stað innan herbúða kvennaliðs Breiðabliks þessa dagana. Félagið vann tvöfalt á þessari leiktíð en þrátt fyrir það er ekki víst að Úlfar Hinriksson fái að þjálfa liðið áfram. Reyndar var Úlfar ekki eini aðalþjálfari liðsins í sumar því Björn Kristinn Björnsson var einnig ráðinn sem þjálfari liðsins. Sport 14. september 2005 00:01
Mæta sænsku meisturunum í dag Valsstúlkur mæta í dag sænsku meisturunum í Djurgården/Älvsjö í fyrsta leik sínum í 2. umferð í evrópukeppni félagsliða en leikurinn hefst klukkan 18.00 að íslenskum tíma. Sænska liðið er fyrirfram talið það sterkasta í riðlinum og státar auk þess af því að vera á heimavelli í öllum leikjum sínum. Sport 12. september 2005 00:01
Landsbankinn áfram bakhjarl Landsbankinn verður bakhjarl efstu deildar karla og kvenna í knattspyrnu. Samningurinn er til næstu fjögurra ára eða til og með til ársins 2009. Samkomulag um áramhaldandi samstarf KSÍ og Landsbankans var undirritað í aðalbanka Landsbankans við Austurstræti í dag. Landsbankinn hefur síðastliðin þrjú ár verið bakhjarl efstu deildar karla og kvenna. Sport 12. september 2005 00:01
Leika um sæti í Landsbankadeild FH og Þór/KA/KS mætast í fyrri leiknum um sæti í Landsbankadeild kvenna í knattspyrnu á Kaplakrikavelli á morgun en seinni leikurinn verður á Akureyri á fimmtudag. FH hafnaði í sjöunda og næstsíðasta sæti í Landsbankadeild en Þór/KA/KS tapaði fyrir Fylki um síðustu helgi í leik um sæti í deild þeirra bestu á næstu leiktíð. Sport 9. september 2005 00:01
Úrvalslið Landsbankadeildar kvenna Nú rétt í þessu var tilkynnt hvaða leikmenn voru valdir í úrvalslið 8.-14. umferðar Landsbankadeildar kvenna í knattspyrnu og fengu leikmenn viðurkenningar fyrir góða frammistöðu í síðasta hluta mótsins. Sport 6. september 2005 00:01
Kvennalið FH á leið í 1. deild? Nú er hálfleikur í leikjunum í lokaumferð Landsbankadeldar kvenna í fótbolta en Íslandsmeistarabikarinn verður afhentur Breiðabliksstúlkum á Kópavogsvelli eftir leikinn gegn FH. Staðan þar er 3-0 fyrir Breiðablik þannig að flest bendir til þess að FH þurfi að leika umspil til þess að halda sæti sínu í deildinni. ÍA er þegar fallið í 1. deild. Sport 4. september 2005 00:01
Blikastúlkur hampa titlinum Keppni í Landsbankadeild kvenna í fótbolta lauk í dag með með heilli umferð. FH þarf að leika aukaleiki um sæti í Landsbankadeild kvenna á næsta ári, heima og heiman, við Þór/KA/KS sem hafnaði í 2. sæti í 1. deild. Íslandsmeistarar Breiðabliks unnu FH í lokaumferðinni í dag, 5-0 og fengu bikarinn afhentan á Kópavogselli nú síðdegis. Sport 4. september 2005 00:01
Breiðablik Íslandsmeistari Breiðablik varð í kvöld Íslandsmeistari í efstu deild kvenna er liðið sigraði ÍA 5-1 á Akranesi í kvöld. Að loknum 13 leikjum hefur Breiðablik sigrað 12 leiki og gert eitt jafntefli. Breiðablik varð síðast Íslandsmeistari árið 2001. Valur sem hins vegar hefur skorað mest, sigraði Stjörnuna 2-0 í Garðabæ. Sport 31. ágúst 2005 00:01
Valsstúlkur sigruðu ÍBV Valur sigraði ÍBV í Landsbankadeild kvenna 3-1. Olga Færseth kom ÍBV yfir en þær Laufey Ólafsdóttir,Guðný Óðinsdóttir og Margrét Lára Viðarsdóttir svöruðu fyrir heimastúlkur. Valur er sem fyrr í öðru sæti á eftir Breiðablik. Sport 17. ágúst 2005 00:01
ÍA fallið Skagastúlkur eru fallnar úr Landsbankadeild kvenna í knattspyrnu eftir 2:2 jafntefli gegn FH í Kaplakrika í Hafnarfirði í kvöld. Þetta var fyrsta stig ÍA í deildinni en FH er með 10 stig, stigi meira en Stjarnan sem er í næst neðsta sæti. Mörk FH gerðu Valdís Rögnvaldsdóttir og Sif Atladóttir en þær Thelma Gylfadóttir og Anna Þorsteinsdóttir..... Sport 16. ágúst 2005 00:01
Valsstúlkur til Svíþjóðar Ákveðið hefur verið að riðill Vals í 16-liða úrslitum Evrópukeppni félagsliða kvenna í knattspyrnu verði leikinn í Svíþjóð. Auk Vals eru í riðlinum í Djurgården/Älvsjö, sem eru mótshaldarar, ZFK Masinac-Classic Nis og Alma KTZH. Sport 16. ágúst 2005 00:01