Færeyjar

Færeyjar

Höfuðborg: Þórshöfn. Mannfjöldi 56 þúsund (2025). Flatarmál: 1.399 ferkílómetrar.

Fréttamynd

„Það er ekki nokkur leið að reka Færeyinginn úr Mos­fells­bæ“

Hjónin Jógvan Hansen og Hrafnhildur Jóhannesdóttir hafa sett íbúð sína að Súluhöfða 25 í Mosfellsbæ á sölu. Íbúðin er 139 fermetrar, skartar einu frægasta karlagreni landsins og er ásett verð 99,9 milljónir króna. Ekki sé nokkur leið til að reka Færeyinginn úr Mosfellsbæ og ætla þau hjónin sér að byggja nýtt hús í bænum.

Lífið

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Hljóp upp í fjall eftir á­rekstur og neitaði að koma niður

Fyrr í dag varð minniháttar umferðarslys við munna Leirvíkurganganna í Nyrðri-Götu í Færeyjum. Ökumaðurinn hljóp af vettvangi og upp í fjallið við munna gangnanna. Lögregla kom á vettvang og þyrla sömuleiðis og á endanum tókst að koma honum niður heilum á húfi.

Erlent
Fréttamynd

Gestir Bylgjunnar fá að synda undir þessu þaki

Bæjarráð Runavíkur í Færeyjum hefur samþykkt að ný sundhöll sveitarfélagsins fái heitið Bylgjan. Það er sama nafn og er þegar fyrir á íþróttahúsi sem sundhöllin er byggð við. Bæjarráðið segir að með viðbyggingunni bætist tvær nýjar bylgjur við og muni því öll íþróttamiðstöðin heita Bylgjan.

Erlent
Fréttamynd

Allt í loft upp í Fær­eyjum vegna Suðureyjarganga

Samstaðan, sem náðist milli stjórnmálaflokkanna í Færeyjum í síðustu viku um veglínu Suðureyjarganga, virðist ekki eins víðtæk og ætla mátti. Náttúru- og umhverfissamtök hafa risið upp og mótmælt og íbúar Sandeyjar virðast afar ósáttir. Deildir flokkanna á Sandey leggjast hart gegn niðurstöðunni. Þá lýsa lykilmenn í efnahagsmálum eyjanna þeirri skoðun að jarðgöngin séu fjárhagslegt glapræði. Færeyingar muni ekki hafa ráð á göngunum.

Erlent
Fréttamynd

Þrír horfnir ferða­menn í Fær­eyjum

Hætt hefur verið leit að þremur ferðamönnum sem hurfu sporlaust á eyjunni Vogum yfir tveggja daga tímabil fyrir viku síðan. Tveggja suður-kóreskra kvenna og eins mexíkósks manns er enn saknað.

Erlent
Fréttamynd

Tíu prósenta tollur á fær­eyskar vörur

Innflutningstollur Bandaríkjanna á færeyskar vörur verður tíu prósent. Færeyingar mega þannig una við fimm prósentustigum lægri toll en Íslendingar, sem fá fimmtán prósenta toll á sínar útflutningsvörur, eins og Norðmenn. Tollarnir eiga að taka gildi þann 7. ágúst.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Suðureyjargöng skil­yrt hækkun eftirlaunaaldurs

Aksel V. Johannesen, lögmaður Færeyja, tilkynnti í Ólafsvökuræðunni í fyrradag, setningarræðu færeyska lögþingsins, að frumvörp landsstjórnarinnar um gerð Suðureyjarganga og hækkun eftirlaunaaldurs yrðu bæði lögð fram að nýju í haust. Einn stjórnarflokkanna, Framsókn, fékk því framgengt að málin verði spyrt saman og að Suðureyjargöng verði ekki samþykkt nema hækkun eftirlaunaaldurs í áföngum upp í 70 ár fylgi með.

Erlent
Fréttamynd

„Orðaskiftismetið tikið“

Kringvarp Færeyja fjallar um málþóf stjórnarandstöðunnar í annarri umræðu um veiðigjaldafrumvarpið. Greint er frá því að „viðgerðin um veiðigjøldini tikið metið sum longsta viðgerð um einstakt mál í Altinginum.“

Innlent