Sló í brýnu milli fyrrum liðsfélaga í Liverpool Fernando Torres, fyrrum framherji enska úrvalsdeildarfélagsins Liverpool fékk að líta rauða spjaldið í leik undir 19 ára liða Atletico Madrid og Real Madrid um nýliðna helgi. Brottreksturinn hlaut Torres eftir að hann hótaði fyrrum liðsfélaga sínum hjá Liverpool, Alvaro Arbeloa. Fótbolti 15. maí 2023 11:32
Lyngby áfrýjar umdeildu leikbanni Sævars Atla Íslendingalið Lyngby í dönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu hefur áfrýjað guli spjaldi sem Sævar Atli Magnússon fékk í leik gegn Silkeborg IF um nýafstaðna helgi. Spjaldið veldur því að Sævar er í banni í næsta leik liðsins. Fótbolti 15. maí 2023 11:01
Myndskeið varpar ljósi á góðmennsku Jóns Daða Íslenska atvinnu- og landsliðsmanninum Jóni Daða Böðvarssyni er hrósað í hástert á samfélagsmiðlinum Twitter eftir að myndband af honum, að gefa sér tíma til þess að sinna ungum stuðningsmanni Bolton Wanderers, skaut upp kollinum á miðlinum. Fótbolti 15. maí 2023 08:01
Hodgson um tapið gegn Íslandi: „Auðvelt að falla í þá gryfju að sumir hlutir gangi einfaldlega ekki upp“ Sparkspekingurinn og landsliðsmaðurinn fyrrverandi Gary Neville ræddi við Roy Hodgson, þjálfara Crystal Palace, í nýjasta þætti af The Overlap. Ræddu þeir frækinn 2-1 sigur Íslands á Englandi á EM 2016. Það var síðasti leikur Roy með enska landsliðið. Fótbolti 15. maí 2023 07:01
Hareide ræddi við Gylfa á fimmtudag Åge Hareide, nýr þjálfari íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu, segist áhugasamur um að fá Gylfa Þór Sigurðsson til að spila með liðinu. Hann ræddi við Gylfa á fimmtudaginn í síðustu víku. Fótbolti 15. maí 2023 06:24
Leik hætt eftir að stuðningsfólk kastaði reyksprengjuminn á völlinn Leik Groningen og Ajax í hollensku úrvalsdeild karla í knattspyrnu var hætt eftir að stuðningsfólk heimaliðsins kastaði reyksprengjum inn á völlinn. Fótbolti 14. maí 2023 23:00
„Gekk einfaldlega allt upp hjá okkur í dag“ Fylkir vann glæsilegan 3-1 sigur á Fram í Bestu deild karla. Fyrir leik voru fyrstu bikarhafar Fylkis heiðraðir og strákarnir náðu í þrjú stig fyrir þá hér í kvöld. Rúnar Páll Sigmundsson var að vonum ánægður með sigurinn og sagði að þetta hafi verið einn af þessum leikjum þar sem allt gekk upp. Íslenski boltinn 14. maí 2023 22:40
„Arnar Gunnlaugsson talar oft mikið og Víkingur er grófasta liðið í deildinni“ Heimir Guðjónsson var ánægður með síðari hálfleik sinna manna eftir 2-0 tap FH gegn toppliði Víkings í Fossvogi. Heimir var hins vegar ekki parsáttur með ummæli Arnars Gunnlaugssonar, þjálfara Víkings, um að FH-ingar hafi komið út í síðari hálfleikinn til að meiða leikmenn Víkinga. Íslenski boltinn 14. maí 2023 21:57
„Ef þú ætlar að gera það segi ég bara „Fuck you“ og við svörum í sömu mynt“ Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkinga sem sitja á toppi Bestu deildar karla í knattspyrnu, var allt annað en sáttur með FH-inga í kvöld. Sagði Arnar að andstæðingur kvöldsins hefði einfaldlega lagt upp úr að meiða sína menn. Íslenski boltinn 14. maí 2023 21:40
Umfjöllun og viðtöl: Fylkir – Fram 3-1 | Heimamenn komu til baka og lyftu sér af botninum Fylkir kom til baka gegn Fram í 7. umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu eftir að lenda 0-1 undir. Sigur Fylkis þýðir að KR er komið á botn Bestu deildarinnar. Íslenski boltinn 14. maí 2023 21:15
Umfjöllun og viðtöl: Víkingur - FH 2-0 | Gestirnir náðu að velgja toppliðinu undir uggum en sjöundi sigurinn í röð staðreynd Víkingur náði inn tveimur mörkum í fyrri hálfleik sem dugðu til sigurs í dag gegn FH í sjöundu umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu. Leiknum er best lýst sem leik tveggja hálfleika þar sem heimamenn voru betri í þeim fyrri en FH gerði mjög vel í seinni án þess að uppskera eftir erfiði. Fótbolti 14. maí 2023 21:10
Börsungar meistarar eftir sigur á nágrönnum sínum í Espanyol Barcelona er spænskur meistari eftir 4-2 sigur á Espanyol. Því miður var ekkert stuðningsfólk Barcelona en stuðningsfólk þess mátti ekki mæta á Cornella de Llobregat-völlinn vegna áhorfendabanns. Fótbolti 14. maí 2023 21:05
Juventus stefnir á silfrið | Rómverjar treysta á Evrópudeildina Juventus sigraði Cremonese 2-0 í síðasta leik dagsins í Serie A, ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Roma og Bologna gerðu markalaust jafntefli fyrr í dag en lærisveinar José Mourinho þurfa að treysta á sigur í Evrópudeildinni til að komast í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð. Fótbolti 14. maí 2023 20:45
„Í dag þurfum við að biðjast afsökunar á frammistöðunni“ Mikel Arteta, þjálfari Arsenal, viðurkenndi eftir 0-3 tap gegn Brighton & Hove Albion að möguleikar þeirra á að landa enska meistaratitlinum væru svo gott sem úr sögunni. Þá sagði hann að sínir menn ættu að biðjast afsökunar. Enski boltinn 14. maí 2023 20:01
Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - HK 0-2 | Gott gengi HK heldur áfram meðan heimamenn eru heillum horfnir HK bar sigurorð af Keflavík í 7. umferð Bestu deildar karla í Keflavík í dag. Leikurinn endaði 2-0 og voru það Arnþór Ari Atlason og Örvar Eggertsson sem skoruðu mörk gestanna. Íslenski boltinn 14. maí 2023 18:55
Titilvonir Arsenal svo gott sem út um gluggann eftir tap á heimavelli Arsenal mátti þola 0-3 tap gegn Brighton & Hove Albion í síðasta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Þar sem Manchester City sigraði sinn leik í dag er ljóst að titilvonir Arsenal eru orðnar að litlu sem engu. Enski boltinn 14. maí 2023 17:45
„Við færumst nær með hverjum sigrinum“ Manchester City vann 3-0 sigur á Everton í Guttagarði í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Pep Guardiola, þjálfari liðsins, var virkilega sáttur með sigurinn og segir sína menn færast nær titlinum skref fyrir skref. Enski boltinn 14. maí 2023 17:05
Íslendingalið FCK lyfti sér aftur á toppinn ÍSlendingalið FCK lyfti sér aftur á topp dönsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu er liðið vann góðan 3-1 útisigur gegn Bröndby í dag. Fótbolti 14. maí 2023 16:02
Kerr tryggði Chelsea bikarmeistaratitilinn Samantha Kerr skoraði eina mark leiksins er Chelsea lagði Manchester United 1-0 í úrslitaleik FA-bikars kvenna í knattspyrnu í dag. Fótbolti 14. maí 2023 15:54
Gündogan og Haaland komu City skrefi nær titlinum Ilkay Gündogan og Erling Braut Haaland sáu um markaskorun Englandsmeistara Manchester City er liðið vann öruggan 3-0 sigur gegn Everton í ensku úrvalsdeildinni í dag. Með sigrinum náði City fjögurra stiga forskoti á toppi deildarinnar þegar liðið á aðeins þrjá leiki eftir. Enski boltinn 14. maí 2023 14:57
Sveindís og stöllur fengu skell og titillinn að renna þeim úr greipum Sveindís Jane Jónsdóttir og stöllur hennar í Wolfsburg máttu þola stórt tap er liðið heimsótti Eintracht Frankfurt í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Lokatölur 4-0 og Þýskalandsmeistaratitillinn er nú orðinn fjarlægur draumur. Fótbolti 14. maí 2023 12:55
Liverpool sé tilbúið að greiða sjötíu milljónir fyrir Mac Allister Enska úrvalsdeildarfélagið Liverpool er tilbúið að greiða sjötíu milljónir punda fyrir argentínska miðjumanninn Alexis Mac Allister, leikmann Brighton. Fótbolti 14. maí 2023 11:31
Guðlaugur Victor og félagar björguðu stigi á heimavelli Guðlaugur Victor Pálsson og félagar hans í DC United sluppu með skrekkinn er liðið tók á móti Nashville SC í bandarísku MLS-deildinni í fótbolta í nótt. Lokatölur 1-1 í leik þar sem heimamenn jöfnuðu á seinustu stundu. Fótbolti 14. maí 2023 10:46
Pochettino hafi samþykkt að taka við Chelsea Argentínski knattspyrnustjórinn Mauricio Pochettino hefur samþykkt að taka við stjórnartaumunum hjá enska úrvalsdeildarfélaginu Chelsea þegar yfirstandandi tímabili lýkur. Fótbolti 14. maí 2023 09:30
Fram færði hinni efnilegu Henríettu gjöf eftir að hún fótbrotnaði Henríetta Ágústsdóttir varð fyrir því óláni að fótbrotna í leik Fram og HK í knattspyrnu fyrir rúmlega tveimur vikum síðar. Frammarar ákváðu að færa henni gjöf í endurhæfingunni. Íslenski boltinn 14. maí 2023 08:01
De Gea fær gullhanskann sama hvað Markvörður Manchester Untied, David De Gea, hefur fengið á sig 41 mark í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Enginn markvörður deildarinnar hefur hins vegar haldið marki sínu jafn oft hreinu og Spánverjinn. Enski boltinn 14. maí 2023 07:00
Segir að Mourinho gæti verið rétti maðurinn fyrir PSG José Mourinho, þjálfari Roma, hefur verið orðaður við stjórastöðu París Saint-Germain. Franska liðinu dreymir um árangur í Evrópu og þar eru fáir betri en Mourinho. Fótbolti 13. maí 2023 23:31
„Þreyta má aldrei vera notuð sem afsökun“ Erik ten Hag, þjálfari Manchester United, segir að þreyta megi aldrei vera notuð sem afsökun en hans menn voru óhemju ferskir þegar þeir unnu Úlfana 2-0 í ensku úrvalsdeildinni fyrr í dag. Vika var frá síðasta leik liðsins og sást mikill munur á spilamennsku þessu. Enski boltinn 13. maí 2023 22:30
PSG hársbreidd frá meistaratitlinum | Dortmund heldur í við Bayern París Saint-Germain vann öruggan 5-0 sigur á AC Ajaccio í frönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu i kvöld. Í Þýskalandi vann Borussia Dortmund 5-2 sigur á Gladbach og er því enn í harðri baráttu við Bayern um meistaratitilinn. Fótbolti 13. maí 2023 21:31
Asensio frestaði fagnaðarlátum Börsunga Real Madríd vann Getafe 1-0 í síðasta leik dagsins í La Liga, spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Það þýðir að Barcelona þarf að bíða aðeins lengur þangað til kampavínið verður opnað. Fótbolti 13. maí 2023 21:00
Uppgjörið, viðtöl og myndir: Breiðablik - ÍA 2-0 | Afbragðsafgreiðsla Ísaks innsiglaði sigurinn Íslenski boltinn