NBA í nótt: 45 stiga sigur Boston á New York Boston Celtics rústuðu lið New York Knicks í einum af þremur leikjum í NBA-deildinni í nótt. Boston vann með 45 stiga mun, 104-59. Körfubolti 30. nóvember 2007 09:09
NBA í nótt: LeBron meiddist og Cleveland tapaði Cleveland átti ekki möguleika gegn Detroit Pistons eftir að LeBron James meiddist í öðrum leikhluta í leik liðanna í NBA-deildinni í nótt. Körfubolti 29. nóvember 2007 09:32
Varejao vill ekki spila með Cleveland Brasilíski leikmaðurinn Anderson Varejao spilaði stórt hlutverk hjá Cleveland Cavaliers þegar liðið fór öllum að óvörum í lokaúrslit NBA deildarinnar síðasta vor. Hann hefur líklega spilað sinn síðasta leik fyrir félagið. Körfubolti 28. nóvember 2007 19:05
NBA í nótt: Boston tapaði aftur LeBron James sá til þess að Boston Celtics tapaði sínum öðrum leik á tímabilinu í NBA-deildinni í nótt. Körfubolti 28. nóvember 2007 08:57
NBA í nótt: Ellis batt enda á sigurgöngu Phoenix Monta Ellis gerði sér lítið fyrir og skoraði fimmtán stig í röð undir lok leiks Golden State og Phoenix og tryggði þar með fyrrnefnda liðinu sigur í leiknum, 129-114. Körfubolti 27. nóvember 2007 09:18
NBA í nótt: Utah vann Detroit Utah Jazz vann sinn tíunda sigurleik á tímabilinu í NBA-deildinni og þann þriðja í röð er liðið vann sigur á Detroit Pistons, 103-93, á útivelli. Körfubolti 26. nóvember 2007 08:56
Allen tryggði Boston sigur með flautukörfu Ray Allen var hetja Boston Celtics í nótt þegar hann tryggði liðinu ævintýralegan 96-95 sigur á Charlotte á útivelli með þriggja stiga körfu um leið og lokaflautið gall. Körfubolti 25. nóvember 2007 11:50
Allt um NBA í nótt: Boston lagði Lakers Tólf leikir fóru fram í NBA deildinni í nótt. Boston vann 10. leikinn sinn á tímabilinu með því að skella gömlu erkifjendunum sínum í LA Lakers á heimavelli 107-94 og er með besta árangur allra liða í deildinni. Körfubolti 24. nóvember 2007 11:23
Phil Jackson: Shaq er ekki búinn Phila Jackson, fyrrum þjálfari Shaquille O´Neal hjá LA Lakers, er ósammála þeim fullyrðingum margra að miðherjinn sé búinn að vera sökum aldurs. Körfubolti 23. nóvember 2007 16:45
NBA stórveldin mætast á Sýn í nótt Gömlu stórveldin Boston Celtics og LA Lakers eigast við í NBA deildinni í nótt klukkan hálfeitt eftir miðnætti og verður leikurinn sýndur beint á sjónvarpsstöðinni Sýn. Körfubolti 23. nóvember 2007 11:38
Sigurganga Orlando stöðvuð í Texas Orlando tapaði í nótt sínum fyrsta útileik á leiktíðinni í NBA deildinni þegar liðið lá fyrir San Antonio Spurs í Texas 128-110. San Antonio setti félagsmet í leiknum og tapaði aðeins þremur boltum allan leikinn. Körfubolti 22. nóvember 2007 09:34
Arenas frá keppni næstu þrjá mánuði Skorarinn litríki Gilbert Arenas hjá Washington Wizards í NBA deildinni verður frá keppni næstu þrjá mánuðina eða svo eftir að hafa gengist undir hnéuppskurð í gær. Körfubolti 22. nóvember 2007 00:22
Skotsýning frá Nowitzki bjargaði Dallas Dallas átti bestu endurkomu í sögu félagsins í NBA deildinni í nótt þegar liðið lenti 24 stigum undir gegn Toronto á heimavelli en tryggði sér sigur 105-99 með ótrúlegum spretti í þriðja leikhlutanum. Körfubolti 21. nóvember 2007 08:53
Rak alla leikmennina af æfingu Spennan í kring um Isiah Thomas þjálfara New York er gríðarlega þessa dagana og margir spá því að hann verði rekinn á næstu dögum. Liðið hefur tapað sex leikjum í röð og Thomas rak alla leikmenn liðsins út af æfingu í gær því honum þótti þeir ekki vera að leggja sig fram. Körfubolti 20. nóvember 2007 10:41
Charlotte og Orlando fara vel af stað Fjórir leikir fóru fram í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Charlotte Bobcats lagði Portland 101-92 og hefur unnið 6 af fyrstu 10 leikjum sínum í vetur. Það er besti árangur þessa nýjasta félags í deildinni til þessa. Körfubolti 20. nóvember 2007 09:34
Fjórtán leikmenn í NBA þéna yfir milljarð á ári Bestu leikmennirnir í NBA deildinni í körfubolta eru ekki á neinum sultarlaunum. Hér fyrir neðan er listi yfir 25 tekjuhæstu leikmenn í NBA í ár, en þessar tölur eru aðeins byggðar á launum þeirra frá félögum sínum. Körfubolti 19. nóvember 2007 12:44
Ofurlið Chicago féll líka fyrir Orlando Mikið hefur verið rætt um góða byrjun Boston Celtics í NBA deildinni í haust en liðið tapaði sínum fyrsta leik fyrir Orlando í nótt. Sumir voru byrjaðir að líkja liði Boston við ógnarsterkt lið Chicago Bulls sem vann 72 leiki í deildarkeppninni fyrir 12 árum. Körfubolti 19. nóvember 2007 09:52
Fyrsta tap Boston Celtics Boston Celtics tapaði fyrsta leik sínum í NBA deildinni í nótt þegar liðið lá naumlega fyrir Orlando á útivelli í æsispennandi og sveiflukenndum leik 104-102. Körfubolti 19. nóvember 2007 09:29
NBA í nótt: Phoenix vann Houston Phoenix Suns vann sinn fimmta leik í röð í nótt þegar liðið vann góðan sigur á Houston Rockets, 115-105. Þetta var hins vegar fjórði tapleikur Houston í röð en þeir sakna greinilega Tracy McGrady sárt en hann er frá vegna meiðsla. Körfubolti 18. nóvember 2007 12:39
NBA í nótt: Boston enn taplaust Tólf leikir fóru fram í NBA-deildinni í nótt. Boston Celtics vann sinn áttunda leik í röð þegar liðið vann nauman sigur á Miami Heat, 92-91, í æsispennandi leik. Körfubolti 17. nóvember 2007 11:55
Hanskinn hættur Kjaftaskurinn Gary Payton segist vera nokkuð viss um að hann sé hættur að spila körfubolta eftir glæsilegan feril í NBA deildinni. Hann hefur ekki miklar mætur á fyrrum þjálfara sínum Pat Riley. Körfubolti 16. nóvember 2007 19:16
NBA í nótt: Dallas vann meistarana Tveir leikir fóru fram í NBA-deildinni í nótt. Dallas vann San Antonio og Phoenix bar sigurorð af Chicago Bulls. Körfubolti 16. nóvember 2007 08:51
Neitaði Bryant að fara til Detroit? Útvarpsstöð í Detroit greindi frá því í kvöld að LA Lakers og Detroit Pistons hafi á þriðjudagskvöldið komist að samkomulagi um leikmannaskipti sem hefðu sent Kobe Bryant til Detroit. Körfubolti 15. nóvember 2007 23:30
NBA í nótt: Fimm lið með sjö sigra Þrettán leikir fóru fram í NBA-deildinni í nótt en eftir leikina hafa fimm lið í deildinni unnið sjö sigra á tímabilinu. Körfubolti 15. nóvember 2007 08:58
Hommabrandari Phil Jackson veldur fjaðrafoki Phil Jackson, þjálfari LA Lakers, var kallaður inn á teppi af NBA deildinni í kvöld eftir ummæli sem hann lét falla eftir að hans menn voru teknir í bakaríið síðustu nótt. Körfubolti 14. nóvember 2007 23:39
Dwyane Wade er klár NBA lið Miami Heat fékk í kvöld þær góðu fréttir að Dwyane Wade yrði með liðinu í fyrsta sinn á leiktíðinni í kvöld þegar liðiið mætir Seattle Supersonics. Wade hefur verið lengi frá keppni vegna uppskurða á hné og öxl í sumar. Miami veitir ekki af allri þeirri hjálp sem er í boði, enda hefur liðið tapað sex af fyrstu sjö leikjum sínum í deildinni. Körfubolti 14. nóvember 2007 23:33
NBA í nótt: Boston enn ósigrað Átta leikir fóru fram í NBA-deildinni í nótt þar sem meðal annars Boston vann sinn sjötta sigurleik í röð en Houston tapaði. Allt um leikina hér. Körfubolti 14. nóvember 2007 09:07
Jordan þarf að greiða tíu milljarða Michael Jordan þarf að greiða fyrrum eiginkonu sinni, Juanita Jordan, rúma tíu milljarða króna vegna skilnaðar þeirra. Körfubolti 13. nóvember 2007 10:24
Fjórði sigurleikur Utah í röð Utah Jazz átti í engum vandræðum með Sacramento Kings í NBA-deildinni í nótt og vann þar með sinn fjórða leik í röð. Körfubolti 13. nóvember 2007 09:14
Loksins sigur hjá Miami Miami Heat vann í nótt sinn fyrsta leik í NBA-deildinni á tímabilinu er liðið vann New York Knicks, 75-72. Körfubolti 12. nóvember 2007 10:31