Pólitískur gúmmítékki Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur berst nú fyrir því að tryggja strandveiðimönnum 48 daga veiði í sumar, án þess að fylgja vísindalegri ráðgjöf Hafrannsóknarstofnunnar. Fara á langt yfir þau 10.000 tonn af þorski sem eru í pottinum í þeim eina tilgangi að halda olnbogabarni ríkisstjórnarinnar, Flokki Fólksins, á mottunni. Skoðun 4. júní 2025 14:00
Ætlar vinstri meirihlutinn að skila auðu? Sundsprettinum lauk eins og venjulega í heita pottinum. Breiðholtslauginn skartaði sínu fegursta í vorsólinni þar sem ég sat í von um nýjar freknur og sólkysstar kinnar. Skoðun 4. júní 2025 09:02
Samþjöppunin hefur ekkert að gera með veiðigjöldin Þeir sem berjast gegn leiðréttingu veiðigjalda halda því gjarnan fram að leiðréttingin leiði til aukinnar samþjöppunar þar sem hún kippi rekstrarforsendum undan minni útgerðum. Það er öfugsnúið að þessi rök eru gjarnan borin fram af þeim sem vilja hækka lögbundið kvótaþak og þar með greiða fyrir enn meiri samþjöppun í sjávarútvegi. Skoðun 4. júní 2025 07:12
Karlar, piltar og strákar Eftir að hafa lesið góðan pistil Þráins Farestveit, afbrotafræðings og framkvæmdastjóra Verndar, í Morgunblaðinu langar mig að stinga niður penna og taka saman nokkrar tölfræðiupplýsingar sem byggja á opinberum tölum og rannsóknum frá Hagstofu Íslands, Fangelsismálastofnun, Landlæknisembættinu og Vinnueftirlitinu (sjá að neðan). Skoðun 3. júní 2025 16:02
Uppbygging í Grafarvogi eflir hverfið og mætir húsnæðiskrísunni á skynsaman hátt Húsnæðisátak borgarinnar sem hófst í Grafarvogi snýst um að flýta húsnæðisuppbyggingu í Reykjavík vegna þeirrar húsnæðiskrísu sem stendur yfir en það gekk á tímabili hægar að byggja vegna verðbólgu og hárra vaxta. Skoðun 3. júní 2025 07:02
Íslenski fáninn fyrir samstöðu ekki mismunun Íslenski fáninn var áberandi á mótmælum á Austurvelli á laugardaginn þar sem rasistar komu fram og héldu tölu að því er virðist til að þétta raðirnar í þeim tilgangi að forða Íslandi frá því að verða fyrir erlendum áhrifum, hvað sem það nú þýðir. Skoðun 2. júní 2025 08:30
Púslið sem passar ekki Sú upplifun er veruleiki margra einhverfra einstaklinga, einkum þeirra sem hafa náð fullorðinsaldri. Þeir finna sig ekki innan þess kerfis sem samfélagið hefur byggt – ekki af því að þeir passi ekki, heldur af því að kerfið hefur ekki verið hannað með þá í huga. Skoðun 2. júní 2025 07:00
Af hverju byggjum við innan gróinna hverfa? Verið er að byggja innan allra hverfa borgarinnar. Á árinu 2025 eru 251 íbúðir í byggingu í Vesturbæ, 538 í miðborginni, 331 í Hlíðum, 525 íbúðir í Laugardal, 272 í Háaleiti og Bústöðum, 158 í Grafarvogi, 533 á Ártúnshöfðanum, 85 í Árbænum, 14 íbúðir í Breiðholti, 159 íbúðir í Grafarholti og Úlfarsárdal og 1 íbúð á Kjalarnesi en þetta eru samtals 2867 íbúðir. Af hverju? Skoðun 1. júní 2025 07:03
Til hamingju með sjómannadaginn Á hátíðardegi sjómanna er tilefni að líta til baka og fara yfir það sem tekist hefur vel. Einnig er ástæða til að fara yfir helstu áskoranir sem blasa við í sjávarútvegi. Skoðun 31. maí 2025 08:02
Gríðarlegir hagsmunir í húfi Orðspor íslensks sjávarútvegs er meðal mikilvægustu verðmæta greinarinnar. Á alþjóðlegum mörkuðum njóta íslenskar fiskafurðir mikils álits, ekki aðeins vegna gæða heldur einnig vegna þess að þær eru afurðir sjálfbærra og ábyrgra veiða. Skoðun 30. maí 2025 16:37
Súrdeigsbrauð, ilmkjarnaolíur og Samtökin 78 Aðför er gerð að tjáningarfrelsi víða um heim þessi dægrin og lýðræðissamfélög Vesturlanda eru þar ekki undanskilin, heldur ganga þau því miður stundum á undan með góðu fordæmi. Skoðun 30. maí 2025 11:02
Sumarið verður nýtt vel til uppbyggingar snjóflóðavarna Hraðari uppbygging ofanflóðavarna á hættusvæðum er eitt af áherslumálum nýrrar ríkisstjórnar. Þrátt fyrir að lagt sé kapp á útgjaldaaðhald og hagræðingu í fjármálaáætlun okkar, þá höfum við ákveðið að setja aukna fjármuni í ofanflóðavarnir í þeim tilgangi að hraða brýnustu verkefnum. Skoðun 30. maí 2025 08:01
Sjómenn til hamingju! Sjómenn Íslands fyrr og nú eiga heiður skilinn fyrir framlag sitt til íslensks samfélags. Skoðun 29. maí 2025 07:02
Skreytt með stolnum fjöðrum Það er margt forvitnilegt við viðtalið sem Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra gaf á Sprengisandi í gær. Þar kynnti hún aðgerðir á borð við afturköllun verndar fyrir sakamenn, aukið landamæraeftirlit, stofnun brottfarar- og móttökustöðva og samninga við flugfélög um afhendingu farþegalista. Skoðun 26. maí 2025 14:18
Sterk stjórn – klofin andstaða Ríkisstjórnin er samhent um stóru málin á vorþinginu. Stjórnarandstaðan er á sama tíma klofin og nýtir ræðupúlt Alþingis í innbyrðis uppgjör og sálgæslu. Það getur út af fyrir sig verið áhugavert að fylgjast með þeirri iðju en öllu verra er að þessi þerapía tefur fyrir afgreiðslu mikilvægra öryggismála á Alþingi. Skoðun 26. maí 2025 07:01
Loksins fær þyrlan heimili fyrir norðan Því ber að fagna að ríkisstjórn Íslands hafi borið gæfa til að setja fjármuni í fasta starfsstöð Landhelgisgæslunnar á Akureyri, eitthvað sem ég hef barist fyrir sem þingmaður Norðausturkjördæmis undanfarin ár. Nú síðast lagði ég fram þingsályktunartillögu þess efnis í mars sl. Skoðun 23. maí 2025 08:32
Við skuldum þeim að hlusta Á fundi sem Samtök sjávarútvegssveitarfélaga stóðu fyrir nýverið kynnti KPMG greiningu á áhrifum fyrirhugaðrar hækkunar veiðigjalda. Þar kom fram alvarlegri mynd en áður hefur sést í opinberri umræðu — og hún gefur ástæðu til að hafa verulegar áhyggjur. Skoðun 23. maí 2025 07:32
Alvarleg staða í umhverfi fréttamiðla Frelsi í útvarpsrekstri verður sérstaklega fagnað á næsta ári þegar fjörutíu ár eru frá því ríkiseinokun var aflétt í kjölfar öflugrar baráttu hugsjónafólks. Frjáls fjölmiðlun og útvarpsrekstur þykir nú sjálfsagður og er fréttaþjónusta og dagskrárgerð einkarekinna fjölmiðla mikilvægur hluti lýðræðislegrar umræðu í samfélaginu. Skoðun 22. maí 2025 13:31
Traust í húfi Þann 1. apríl 2023 tóku gildi ný heildarlög um leigubifreiðaakstur. Með þeim voru fjöldatakmarkanir á útgáfu starfsleyfa afnumdar og sömuleiðis stöðvaskylda og gjaldmælaskylda við fyrirfram samið verð. Í aðdraganda breytinganna var ekki tekið nægilegt tillit til sjónarmiða leigubifreiðastjóra og stéttarinnar í heild. Skoðun 22. maí 2025 09:32
Aðgerðir gegn mansali í forgangi Kynbundið ofbeldi er vandamál á Íslandi líkt og annars staðar í heiminum og er óhætt að segja að það sé ein stærsta áskorun okkar til þess að koma á fullu jafnrétti kynjanna. Skoðun 22. maí 2025 07:32
Brýr, sýkingar og börn Hvernig ætli það væri ef brýr um land allt hefðu gefið sig sl. áratugi, þær væru nú fjölmargar ónothæfar og ástandið hefði orsakað fjöldann allan af alvarlegum slysum? Skoðun 21. maí 2025 14:30
Kveikjum neistann um allt land Flokkur fólksins hefur lengi talað fyrir verkefninu Kveikjum neistann, í borgarstjórn sem á hinu háa Alþingi. Um er að ræða rannsóknar- og þróunarverkefni sem Grunnskóli Vestmannaeyja hefur tekið virkan þátt í með nemendum sínum í tæp tvö ár. Skoðun 21. maí 2025 11:03
Steypuklumpablætið í borginni Ein rótgrónasta vintage fatabúð miðborgarinnar Gyllti kötturinn hefur nýverið tilkynnt flótta sinn úr Austurstræti yfir á Fiskislóð. Þetta er ekki einstakt tilvik heldur hluti af langvarandi þróun sem æ fleiri taka eftir. Þróun þar sem verslanir, sem eitt sinn einkenndu miðborgina, voru hluti af sögu hennar og gerðu hana lifandi og manneskjulega, hverfa hver af annarri. Skoðun 20. maí 2025 20:02
Þing í þágu kvenna Við þingmenn setjum ekki bara lög og rífumst í spjallþáttum. Við gegnum líka mjög mikilvægu eftirlitshlutverki með stjórnvöldum. Það gerum við m.a. með því að leggja fram fyrirspurnir til ráðherra á Alþingi. Þessu eftirlitshlutverki tek ég alvarlega og legg reglulega fram fyrirspurnir bæði til skriflegs og munnlegs svars. Skoðun 20. maí 2025 08:01
Nú þurfa foreldrar að vera hugrakkir Við höfum séð þetta áður. Við fjármálahrunið 2008 voru merki um að stefndi í stórslys, en lítið var aðhafst fyrr en allt var komið í óefni. Skoðun 19. maí 2025 14:02
Um sjónarhorn og sannleika Ríkisútvarpið flutti frétt í gær sem bar yfirskriftina Vilja auka framlög til selalaugar um 60 milljónir en skerða framlög til íþróttafélaga. Mér finnst tilefni til að bregðast við þessari misvísandi fyrirsögn og vil ég einnig gera grein fyrir þeim breytingum sem gerðar eru á fjárfestingu Reykjavíkurborgar sem vísað var úr borgarráði í gær til samþykktar borgarstjórnar. Skoðun 16. maí 2025 12:32
Atvinnufrelsi! Ég hef nú mælt fyrir mikilvægu frumvarpi á Alþingi um veiðistjórn á grásleppu sem færir veiðistjórnina í fyrra horf með dagakerfi sem tryggir sjómönnum aftur rétt sinn til veiða og afnemur þau ólög sem sett voru á 2024 með kvótasetningu og framsal. Skoðun 15. maí 2025 17:31
Að mása eða fara í golf „Ég get ekki annað en velt fyrir mér virðingu þeirra sem leika þennan leik gagnvart tíma fólks sem starfar á Alþingi.“ Svona másar Ása Berglind Hjálmarsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, sig hása í grein á Vísi fyrr í dag þar sem hún viðurkennir að hún sé enn að reyna að skilja hvernig lýðræðisleg umræða gengur fyrir sig á Alþingi. Skoðun 15. maí 2025 16:01
Leiðréttum kerfisbundið misrétti Í dag eru rafveitur undanþegnar fasteignamati. Það þýðir að stærstur hluti mannvirkja til orkuframleiðslu – svo sem stíflur, lón og önnur tilheyrandi mannvirki – bera ekki fasteignaskatt. Eingöngu er greiddur fasteignaskattur af stöðvarhúsum, og það eitt. Skoðun 15. maí 2025 15:02
Skýr og lausnamiðuð afstaða Framsóknar til veiðigjalda Framsókn hefur tekið skýra og málefnalega afstöðu í umræðunni um veiðigjöld. Við styðjum heilshugar réttmæta kröfu samfélagsins um að sameiginleg sjávarauðlind þjóðarinnar skili arði sem gagnast samfélaginu öllu. Hins vegar skiptir máli hvernig það er gert. Óvönduð skattheimta getur skaðað atvinnulíf, dregið úr nýsköpun og veikt byggðir sem byggja afkomu sína á sjávarútvegi. Skoðun 15. maí 2025 07:30