Í tilefni umræðu um skólasund Í júní á síðasta ári sendi umboðsmaður barna bréf til mennta- og menningarmálaráðuneytis um fyrirkomulag sundkennslu í grunnskólum. Skoðun 16. febrúar 2022 14:31
Ráða íslensk sveitarfélög við verkefnið? Mánaðarleg meðalheildarlaun fullvinnandi sérfræðinga hjá sveitarfélögum árið 2020 voru þriðjungi lægri en á almennum markaði og fjórðungi lægri en hjá ríkinu! Það er síðan sérstakt áhyggjuefni að ein skýrasta birtingarmynd kynjaðs vinnumarkaðar skuli endurspeglast í kerfisbundnu vanmati á virði kvenna með háskólamenntun hjá sveitarfélögum. Hvernig snúum við af þessari braut? Skoðun 16. febrúar 2022 13:31
Mat á árangri er órjúfanlegur þáttur í skólastarfi Spurning aldarinnar að öllum öðrum ólöstuðum er án efa spurningin: Hvers vegna? Sem betur fer erum við orðin mun gagnrýnari á það hvernig hlutirnir eru gerðir og hvers vegna og það sjónarhorn virðist fleyta okkur hratt áfram. Skoðun 16. febrúar 2022 13:01
Er unglingurinn þinn með líkama upp á tíu, sjöu eða kannski bara fjarka? Hvað er pólitíkin að skipta sér af? Nýverið olli tillaga ungmenna í Reykjavíkurráði miklu fjaðrafoki, um að gera sund að valfagi fyrir 9. og 10. bekk. Skoðun 16. febrúar 2022 07:31
Fannst Netflix og Tesla fyrst meira spennandi en íslenskir valkostir „Áður en ég byrjaði að fjárfesta ákvað ég að kaupa mér eina þekktustu bók sem gefin hefur verið út í þessum fjárfestingaheimi „Intelligent investor” eftir Benjamin Graham. Atvinnulíf 15. febrúar 2022 07:01
Siðanefnd HÍ segir af sér í tengslum við meintan ritstuld seðlabankastjóra Siðanefnd Háskóla Íslands hefur sagt af sér. Þetta staðfestir Skúli Skúlason, fyrrverandi formaður nefndarinnar, í samtali við Vísi en hann vildi að öðru leyti ekki tjá sig um málið. Innlent 14. febrúar 2022 18:25
Fangavarðaskólinn í fjarnámi – 26 nemendur í skólanum Tuttugu og sex nemendur eru nú í Fangavarðaskólanum þar sem um þriðjungur þeirra eru konur. Námið fer fram í fjarnámi, auk einnar viku í staðarlotu í verklegum æfingum í samstarfi við þjálfara Lögregluskólans. Fangavörður segir starfið glettilega skemmtilegt og gefandi. Innlent 12. febrúar 2022 14:06
Böllin verða víruð, rosaleg, geggjuð Á meðan segja má að enginn hópur hafi þurft að að súpa seyðið af sóttvarnatakmörkunum svo mjög sem ungmenni undanfarin misseri, er líka hægt að segja að enginn hópur hafi nú endurheimt frelsið með eins ótvíræðum hætti. Innlent 11. febrúar 2022 23:01
Er ríkið að brjóta sín eigin lög á kostnað barna? Samkvæmt Vísindavefnum var fyrsta eiginlega Internettengingin á Íslandi árið 1989. Sjö árum seinna, nánar tiltekið 4. mars 1996, gerðu ríki og sveitarfélög samkomulag sín á milli um að sveitarfélög tækju við rekstri á grunnskólum landsins. Skoðun 11. febrúar 2022 13:01
Leiklist nýtt til efla börnin Leiklist leikur stórt hlutverk í leikskólanum Laufskála þar sem börnin stíga reglulega á svið. Um sérstakt verkefni er að ræða sem vakið hefur athygli. Innlent 10. febrúar 2022 22:01
Fjórtán prósent grunnskólabarna fjarverandi vegna veikinda í síðustu viku Töluverður fjöldi grunnskóla- og leikskólanemenda voru fjarverandi vegna veikinda í skólum í Reykjavík í síðustu viku en um 12,4 prósent leikskólabarna voru fjarverandi og 14 prósent grunnskólabarna. Þetta kemur fram í svari skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar við fyrirspurn fréttastofu. Innlent 10. febrúar 2022 13:24
Sköpum gott veður í skólum borgarinnar Í Reykjavík á sér stað gróskumikið skólastarf á öllum skólastigum. Að starfinu stendur öflugur hópur kennara, starfsfólks og stjórnenda. Skólar, félagsmiðstöðvar og frístundaheimili borgarinnar eru fullir af framúrskarandi fagfólki sem við þurfum að gefa tækifæri til að blómstra í störfum sínum. Skoðun 10. febrúar 2022 08:30
Vaxtaverkir í leikskólamálum í Urriðaholti Samkvæmt skilgreiningu orðabókar þýðir „vaxtaverkur“ meðal annars stundarörðuleikar tengdir örri þróun. Skoðun 10. febrúar 2022 08:01
Nafn piltsins sem lést á Laugum Ungi maðurinn sem lést af slysförum við Framhaldsskólann á Laugum hét Kristinn Aron Curtis Arnbjörnsson. Innlent 9. febrúar 2022 20:59
Lýðræði ungmenna í borginni – breytt einkunnagjöf í íþróttum Lýðræðisstefna Reykjavíkurborgar hefur nýlega litið dagsins ljós og tók ég þátt í þeirri vinnu. Innleiðing á stefnunni er rétt að hefjast en í henni er lögð áhersla á að meira samráð sé haft við borgarbúa um skipulag og uppbyggingu borgarinnar bæði hvað varðar þjónustu og umhverfi. Skoðun 9. febrúar 2022 11:31
Þær vilja taka við stöðu rektors Háskólans á Hólum Alls bárust fjórar umsóknir um stöðu rektors Háskólans á Hólum, en staðan var auglýst laus til umsóknar á dögunum og rann umsóknarfrestur á mánudaginn. Innlent 9. febrúar 2022 07:45
Skóli án aðgreiningar án fagfólks Kennarar eru frábærir! Þeir sinna óeigingjörnu starfi og leggja sig mikið fram á hverjum einasta degi. Ég veit það af því ég vinn með þeim. Skoðun 9. febrúar 2022 07:30
Háskóli hluta Íslands Háskóli Íslands hefur lengi verið eftirbátur annarra skóla þegar kemur að framboði og gæðum fjarnáms. Það er ekki skoðun heldur staðreynd byggð á tölum um framboð fjarnáms. Skoðun 8. febrúar 2022 11:00
Múlaþing gerir vel í leikskólamálum Mikil umræða hefur verið í fjölmiðlum hvernig sveitarfélög víðsvegar yfir landið standa að vistunarúrræðum fyrir börn að loknu fæðingarorlofi. Algengast er að að báðir foreldrar séu útivinnandi og skiptir þá miklu máli fyrir foreldra að fá vistunarúrræði fyrir börn sín þegar fæðingarorlofi líkur til að komast út á vinnumarkaðinn. Skoðun 8. febrúar 2022 09:00
Faraldurinn ekki gert okkur gjarnari á að skella öllu í lás Víðir Reynisson segir að börn hafi fengið að njóta vafans þegar skólum var lokað í morgun vegna yfirvofandi óveðurs. Sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs hjá Reykjavíkurborg segir sambærilega ákvörðun hafa verið tekna fyrir tveimur árum. Innlent 7. febrúar 2022 11:50
Leikskólar og frístundaheimili opna klukkan eitt Leikskólar og frístundastarf grunnskólanema á höfuðborgarsvæðinu opnar klukkan eitt í dag. Þetta var niðurstaða almannavarna á höfuðborgarsvæðinu og skóla- og frístundarsviðanna sem funduðu fyrir stuttu. Innlent 7. febrúar 2022 09:42
Í brýnni þörf er best að bíða! Þann 8. júní árið 2021 var mikill gleðidagur í Garðabæ. Þá var vinningstillaga á hönnun nýs leikskóla í Urriðaholti kynnt. Þarna skyldi rísa 6 deilda leikskóli ætlaður 120 börnum 12 mánaða og eldri. Allt klappað og klárt og næsta skref að undirbúa útboðsgögn og koma byggingunni í framkvæmd því ekki veitti af. Og enn veitir ekki af. Skoðun 7. febrúar 2022 09:00
Mikil skerðing á skólastarfi um allt land Mikil röskun er á skólastarfi víða um land vegna veðurs. Reglulegt skóla- og frístundastarf fellur niður á höfuðborgarsvæðinu á mánudag. Leikskólar og grunnskólar verða engu að síður opnir með lágmarksmönnun fyrir fólk sem þarf nauðsynlega á vistun fyrir börn sín að halda. Þar er um að ræða fólk sem sinnir neyðarþjónustu, löggæslu, slökkvistörfum og björgunarsveitarútköllum. Innlent 7. febrúar 2022 01:10
Fólk geti gert ráð fyrir að mæta ekki í vinnu og skóla í fyrramálið Almannavarnir funda nú með Veðurstofunni og Vegagerðinni um hvort biðlað verði til skóla að hafa lokað á morgun og vinnustaða að fá starfsfólk sitt seinna til vinnu. Búist er við því að mjög þungfært verði á höfuðborgarsvæðinu í fyrramálið og vilja Almannavarnir að sem fæstir séu á ferð á meðan verið er að ryðja göturnar. Innlent 6. febrúar 2022 14:50
Fögnum Degi leikskólans Í dag 6. febrúar fögnum við Degi leikskólans. Leikskólar halda á fjöregginu okkar, yngstu börnunum, og leggja grunn að velferð, þroska, menntun og farsæld þeirra. Leikskólakennarar og starfsfólk leikskóla hefur síðastliðin tvö ár slegið skjaldborg umhyggju og metnaðar um leikskólabörn. Heimsfaraldurinn hefur varpað skýru ljósi á hve mikilvægu hlutverki leikskólar gegna í lífi barna og fjölskyldna þeirra. Skoðun 6. febrúar 2022 07:00
Þolinmæði menntaskólanema á þrotum Nemendur í Verzló skipulögðu skemmtikvöld í von um að ráðherra myndi aflétta samkomutakmörkunum í dag. Skemmtikvöldið fer fram með rafrænum hætti og segist formaður nemendafélagsins sár út í stjórnvöld og að þolinmæðin sé á þrotum. Innlent 4. febrúar 2022 19:42
Börnin í borginni okkar Hvernig sköpum við samfélag þar sem öll börn sitja við sama borð? Fátækt hefur varanleg áhrif á börn. Fátækt hefur áhrif á þroska, skerðir lífsgæði, bjagar sjálfsmynd og skaðar framtíðarmöguleika barna. Skoðun 4. febrúar 2022 08:00
Syrgja góðan vin og félaga Starfsfólk og nemendur Framhaldsskólans á Laugum í Þingeyjarsveit syrgja góðan vin og félaga sem lést af slysförum við skólann í gær. Innlent 3. febrúar 2022 20:01
„Kennarar þurfa fleiri sérfræðinga inn í kennslustofuna“ „Mér leið alltaf vel í grunnskóla, leið alltaf vel í skólanum og fannst kennarastarfið vera merkilegasta og mikilvægasta starf í heimi og stefndi alltaf á að verða kennari,“ segir Kolbrún G. Þorsteinsdóttir kennari og lýðheilsufræðingur. Lífið 3. febrúar 2022 15:35
Ef skólinn hættir að snúast um menntun Mér finnst hugtakið menntun heillandi enda býður það upp á svo víða túlkun og rökræður. Grunnskólinn spannar mikilvægt mótunar- og þroskaskeið í lífi allra. Áhrif skólastigsins og starfsfólks þess á nemendur verða seint vanmetin. Skoðun 3. febrúar 2022 15:30