Vilja valdamenn kannski bara veika fjölmiðla? Gjaldþrot útgáfufélags Fréttablaðsins og sjónvarpsstöðvarinnar Hringbrautar er sorgleg staðfesting á því sem Blaðamannafélagið hefur varað við árum saman – að algjör markaðsbrestur hefur orðið á íslenskum fjölmiðlamarkaði. Skoðun 31. mars 2023 19:31
Ég heiti 180654 5269 Aldursfordómar byggja á neikvæðum viðhorfum og gildum, sambærilegum og kynþáttafordómar og kynjafordómar, verða til vegna húðlitar og kynferðis. Skoðun 31. mars 2023 16:31
Geggjað aðhaldsprógram dugi ekki til Þingmaður Viðreisnar segir fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar vera eins og geggjað aðhaldsprógram sem ekki eigi að hefjast fyrr en á næsta ári. Boðaðar aðgerðir skili engu í baráttunni við verðbólguna í dag. Þingmaður Framsóknarflokksins segir áætlunina hins vegar sýna svart á hvítu að ríkisstjórninni sé alvara í að ná verðbólgunni niður og verja um leið viðkvæmustu hópana. Innlent 31. mars 2023 14:36
Lengra fæðingarorlof - allra hagur! Það er áhyggjuefni ótal foreldra að brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla. Svo þungt hvílir þetta á mörgum foreldrum að fæðingarorlofið verður gjarnan undirlagt áhyggjum af því hvað tekur við að því loknu. Dagforeldrar eru alls ekki alltaf í boði og þá tekur við púsluspil milli foreldra, ættingja og stundum vina með tilheyrandi skipulagi og jafnvel skutli. Skoðun 31. mars 2023 13:30
Harmar þróunina á fjölmiðlamarkaði Það er mikið áhyggjuefni að verið sé að hætta útgáfu Fréttablaðsins og útsendingum Hringbrautar. Þetta segir Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar og viðskiptaráðherra, og segist hún harma þessa þróun. Innlent 31. mars 2023 12:19
Ganga mátti lengra í fjármálaáætlun til að vinna bug á verðbólgu Almennt var búist við umfangsmeiri breytingum á nýrri fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar. Hægt væri að ganga lengra í aðhaldi til að vinna bug á verðbólgunni og þenslunni. Fjármálaáætlun mun ekki hafa áhrif á verðbólguhorfur til skamms tíma, segja viðmælendur Innherja. Innherji 31. mars 2023 11:59
Á hverju strandar uppbygging flutningskerfis raforku? Eins og raunar var ítrekað bent á við breytingu á raforkulögum árið 2015 og í umfjöllun um þingsályktun um stefnu stjórnvalda um lagningu raflína sem samþykkt var samhliða breytingum á raforkulögum var hið opinbera fyrirtæki Landsnet þá sett í algjöra yfirburðastöðu gagnvart sveitarfélögum og öðrum hagsmunaaðilum. Skoðun 31. mars 2023 11:31
Hið raunverulega vandamál nautgriparæktar Háttvirtur þingmaður Framsóknar í Suðurkjördæmi birti grein undir heitinu Raunveruleg staða nautgriparæktar í síðustu útgáfu Bændablaðsins. Vill undirrituð taka undir að staða nautgriparæktunar í dag sé orðin grafalvarleg og hjá alltof mörgum nautgripabændum komin yfir þolmörk, því líkt og háttvirtur þingmaður benti réttilega á þá hefur rekstrarniðurstaða greinarinnar vegna áranna 2017-2021 verið í öllum tilfellum neikvæð. Skoðun 31. mars 2023 11:01
Bein útsending: Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga fer fram á Grand hóteli í Reykjavík milli klukkan 10 og 16 í dag. Streymt verður frá þinginu og verður hægt að fylgjast með í spilara að neðan. Innlent 31. mars 2023 09:30
Fjármálaáætlun – umbúðir um ekki neitt Það voru margir sem biðu óþreyjufullir eftir framlagningu fjármálaáætlunar sem nú hefur litið dagsins ljós. Ástæðurnar fyrir þessum spenningi eru augljósar. Heimilin glíma nú við mestu verðbólgu frá hruni, endurteknar vaxtahækkanir, stóraukna greiðslubyrði lána og mikla hækkun matarverðs. Skoðun 31. mars 2023 09:01
Lið fyrir lið Í gær var skrifað undir samninga milli Sjúkratrygginga Íslands, Klíníkarinnar í Ármúla og Handlæknastöðvarinnar í Glæsibæ um framkvæmd 700 liðskiptaaðgerða á þessu ári. Skoðun 31. mars 2023 07:00
„Ég sé ekkert óeðlilegt við þetta“ Brynjar Níelsson, aðstoðarmaður dómsmálaráðherra og varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins, greiddi í dag atkvæði gegn vantrauststillögu á hendur dómsmálaráðherra. Hann segist ekki sjá neitt athugavert við það. Innlent 30. mars 2023 20:34
Tómas sá eini sem greiddi ekki atkvæði: „Ég er eins og vindpoki á flugvellinum“ Vantrauststillaga á hendur dómsmálaráðherra var felld í dag. Þrjátíu og fimm þingmenn greiddu atkvæði gegn tillögunni og tuttugu og tveir með henni. Einn þingmaður var viðstaddur og greiddi ekki atkvæði: Tómas A. Tómasson, þingmaður Flokks fólksins. Innlent 30. mars 2023 17:52
Engin lög brotin og ekkert rætt um framtíð Jóns Jón Gunnarsson, dómsmálaráðherra, segir skýrt að engin lög hafi verið brotin eftir að hann stóð af sér vantrauststillögu á Alþingi í dag. Ekkert hafi verið rætt við hann um hvort að hann láti af embætti ráðherra á næstunni eins og lagt var upp með við upphaf kjörtímabilsins. Innlent 30. mars 2023 15:29
Líta verði á börn sem fjárfestingu en ekki kostnað Nauðsynlegt er að líta á börn sem fjárfestingu til framtíðar en ekki sem kostnað, þetta segir barnamálaráðherra. Ráðstefna um málefni barna fer nú fram í samvinnu Evrópuráðsins og mennta- og barnamálaráðuneytisins. Innlent 30. mars 2023 14:31
Tillaga um vantraust á hendur Jóni felld Tillaga fulltrúa stjórnarandstöðunnar á Alþingi var felld í atkvæðagreiðslu á þingi á öðrum tímanum í dag. 35 þingmenn greiddu atkvæði gegn tillögunni og 22 með tillögunni. Einn þingmaður greiddi ekki atkvæði og fimm voru fjarverandi. Innlent 30. mars 2023 13:13
Segir aðgerðirnar ekki duga Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir boðaðar aðgerðir ríkisstjórnarinnar til að vinna gegn verðbólgu ekki duga. Hann segir boðaðar skattahækkanir illa ígrundaðar. Þá lýsir stjórn Félags atvinnurekenda yfir vonbrigðum með að ekki eigi að lækka tolla. Innlent 30. mars 2023 12:29
Forsætisráðherra segir málið snúast um lagalegan ágreining Allar líkur eru á að vantrauststillaga fjögurra stjórnarandstöðuflokka á dómsmálaráðherra verði felld í atkvæðagreiðslu á Alþingi síðar í dag. Tillöguflytjendur segja ráðherrann hafa brotið gegn einni af grunnstoðum þingræðisins. Forsætisráðherra segir deiluna hins vegar lögfræðilega og ekki grundvöll til vantrausts. Innlent 30. mars 2023 12:13
Páll Orri og Lovísa vilja leiða Heimdall Páll Orri Pálsson, meistaranemi í lögfræði, hefur ákveðið að bjóða sig fram til formanns Heimdallar - félags ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík. Lovísa Ólafsdóttir, hagfræðinemi býður sig fram til varaformanns. Innlent 30. mars 2023 11:20
Bein útsending: Umræða um vantraust á dómsmálaráðherra Umræður um vantrauststillögu fjögurra þingflokka á Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra hefjast á Alþingi klukkan 10:30 og verða í beinni útsendingu á Vísi og Stöð 2 Vísi. Reiknað er með að umræðan standi yfir í rétt rúmar tvær klukkustundir. Innlent 30. mars 2023 10:00
Rafbyssur og slys á lögreglumönnum: Ráðherra mátti vita betur Það kemur skýrt fram í minnisblaði ríkislögreglustjóra til dómsmálaráðuneytisins að prófanir og rannsóknir á notkun norsku lögreglunnar á rafbyssum hafi leitt í ljós að notkun vopnanna hefur ekki áhrif á fjölda meiðsla hjá lögreglu eða „mótaðila“. Innlent 30. mars 2023 09:10
Af virðingu við leikskólakennara og foreldra Nýlega flykktust ráðþrota foreldrar í Ráðhúsið og kröfðust tafarlausra aðgerða vegna leikskólavandans. Í kjölfarið hafa borgarfulltrúar meirihlutans ekki þorað öðru en að skoða aðrar leiðir til að bæta ástandið. Ég hef saknað þess að sjá starfsfólk leikskólanna í Ráðhúsinu, því hagsmunir þeirra eru samofnir hagsmunum foreldra. Fyrst lendir skellurinn á starfsfólkinu og þegar það getur ekki meir lendir skellurinn á foreldrum. Skoðun 30. mars 2023 07:01
Vantrauststillagan ekki neitt skemmtiefni Forsætisráðherra segir að vantrauststillaga sem fjórir þingflokkar lögðu fram á dómsmálaráðherra í gær ekki vera neitt skemmtiefni. Tillagan verður rædd strax í upphafi þingfundar klukkan hálf ellefu í dag. Innlent 29. mars 2023 23:42
„Nýsköpun er kraftur“ Fjárfestahátíðin Norðanátt var haldin í annað sinn á Siglufirði í dag. Nýsköpunarfyrirtæki framtíðarinnar fengu tækifæri til að heilla fjárfesta og óvænt uppákoma tengd áfanga fyrirtækis sem kynnti á hátíðinni á síðasta ári vakti mikla lukku. Viðskipti innlent 29. mars 2023 21:53
Meirihluti þjóðarleiðtoga staðfest komu sína til Reykjavíkur Meirihluti þeirra 46 þjóðarleiðtoga sem boðið hefur verið á leiðtogafund Evrópuráðsins í Reykjavík eftir átta vikur hefur staðfest komu sína. Gríðarlegar öryggisráðstafanir verða í kringum fundinn. Innlent 29. mars 2023 19:45
Skattar á fyrirtæki hækkaðir og samhæfingarmiðstöð frestað Skattur á fyrirtæki verður hækkaður tímabundið um eitt prósentustig á næsta ári og almenn sparnaðarkrafa á allar stofnanir nema heilbrigðisstofnanir og löggæslu verður hækkuð úr einu í tvö prósent í aðgerðum stjórnvalda til að vinna gegn verðbólgu. Ívilnunum vegna kaupa á vistvænum bifreiðum verður hætt. Innlent 29. mars 2023 19:30
Ráðherra njóti ekki trausts og verði að víkja: „Hér er enginn hafinn yfir lög eða reglur“ Þingmenn stjórnarandstöðuflokkanna fjögurra sem lögðu fram vantrauststillögu á dómsmálaráðherra í dag segja ljóst að ráðherrann hafi brotið lög og að honum sé ekki treystandi. Þingflokksformaður Pírata segir að ef ekkert verði gert setji það fordæmi sem sé ekki aðeins hættulegt heldur beinlínis andstætt stjórnskipun lýðveldisins. Formaður Flokks fólksins segir engan hafinn yfir lög á Alþingi, hvað þá ráðherra. Innlent 29. mars 2023 17:42
Lægri endurgreiðsla VSK og aukin gjöld á skemmtiferðaskip Endurgreiðsla VSK vegna framkvæmda við íbúðarhúsnæði lækkar verulega í sumar. Þá verður tímabundinn eins prósents tekjuskattur lagður á lögaðila. Til stendur að leggja gjöld á komu skemmtiferðaskipa og hækka veiðigjald. Þá á að endurskoða tryggingakerfi öryrkja. Dregið verður úr ríkisstuðningi við innflutning rafbíla. Framkvæmdum ríkisins sem ekki eru hafnar verður frestað. Innlent 29. mars 2023 17:02
Bein útsending: Kynning fjármálaáætlunar Fjármála- og efnahagsráðherra hefur boðað til blaðamannafundar í fjármála- og efnahagsráðuneytinu í dag klukkan 16. Þar verður fjármálaáætlun fyrir árin 2024 til 2028 kynnt. Innlent 29. mars 2023 15:30
Vantrauststillaga lögð fram á Jón Gunnarsson Þingflokksformenn fjögurra stjórnarandstöðuflokka lögðu rétt í þess fram vantrauststillögu á Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra. Tillagan er lögð fram vegna þess að Jón hafi komið í veg fyrir að Alþingi fengið nauðsynleg gögn til lagasetningar. Innlent 29. mars 2023 14:55