Strandveiðar eitt skref áfram, tvö afturábak Matvælaráðherra hefur lagt fram frumvarp á Alþingi þar sem lagt er til að hverfa aftur til þess fyrirkomulags strandveiða sem var hér fyrir árið 2018. Það er að segja að aflaheimildum sem ráðstafað er til strandveiða verði skipt upp í fjögur landssvæði. Skoðun 29. mars 2023 13:30
Finnst réttast að dómsmálaráðherra stígi til hliðar Stjórnarandstaðan íhugar nú hvaða skref verða stigin til að draga dómsmálaráðherra til ábyrgðar eftir að skrifstofa þingsins fjallaði um í minnisblaði að honum væri skylt að afhenda þinginu upplýsingar innan tiltekins frests í máli sem tengist veitingu ríkisborgararéttar. Þingflokksformaður Pírata finnst réttast að ráðherrann stígi til hliðar. Innlent 29. mars 2023 12:10
„Maður er ekki í pólitík fyrir sjálfa sig heldur fyrir aðra“ Formaður Samfylkingarinnar hefur síðustu daga fundað með fólki á Suðurnesjunum og rætt um heilbrigðismál. Um er að ræða fyrstu fundina í fundaröð fer út um allt land. Formaðurinn segir að mikilvægt sé að heyra hvað fólkinu í landinu finnst um stærstu málaflokkana í pólitíkinni. Innlent 29. mars 2023 09:01
Stutt við þolendur heimilisofbeldis Heimilisofbeldi er óásættanlegt samfélagslegt mein. Fólk af öllum kynjum verður fyrir heimilisofbeldi og því miður eru tilfellin allt of mörg. Mikilvægt er að þolendur heimilisofbeldis fái jafnt og greitt aðgengi að viðeigandi heilbrigðisþjónustu og stuðning eins fljótt og auðið er. Þjónustu sem er skipulögð með hagsmuni þolenda að leiðarljósi. Skoðun 29. mars 2023 07:30
Hafa náð saman um fríverslun við Moldóvu EFTA-ríkin og Moldóva hafa komist að samkomulagi um fríverslunarsamning sem undirritaður verður á næsta ráðherrafundi EFTA í Liechtenstein í júní næstkomandi. Innlent 29. mars 2023 07:29
Eigum við ekki að láta græðgina eiga sig Vegna ummæla sem látin voru falla í Bítinu á Bylgjunni nú í gærmorgun um að fólk þurfi annað hvort að rísa upp eða gefast upp í því ástandi sem nú ríkir á markaðnum, fannst mér tilvalið að setjast niður og skrifa nokkra punkta inn í umræðuna. Þessi ummæli eru nefnilega ekki til þess fallin að skapa einingu í samfélaginu, heldur þvert á móti til að skapa sundrung og stefna ólíkum hópum upp á móti hverjum öðrum. Skoðun 28. mars 2023 20:01
„Þeir koma hér trekk í trekk með lygina að vopni“ Fjórir nefndarmenn og áheyrnarfulltrúi allsherjar- og menntamálanefndar báru af sér sakir á Alþingi í dag. Þingmennirnir fundu sig knúna til að gera það eftir að dómsmálaráðherra sakaði nefndarmenn og aðra alþingismenn um að þiggja þakklætisvott frá fólki sem hefur fengið íslenskan ríkisborgararétt. Innlent 28. mars 2023 18:33
Gul viðvörun í húsnæðiskortinu Nýverið kynnti seðlabankastjóri tólftu stýrivaxtahækkunina í röð. Peningastefnunefnd ákvað að hækka stýrivexti um heila prósentu og flestir landsmenn, ef ekki allir, eru nú orðnir meðvitaðir um það hvaða afleiðingar þetta hefur á rekstur heimila. Skoðun 28. mars 2023 17:00
Sakar nefndarmenn á Alþingi um að þiggja gjafir frá hælisleitendum Dómsmálaráðherra sakaði nefndarmenn allsherjar- og menntamálanefndar og aðra Alþingismenn um að þiggja þakklætisvott frá fólki sem þingið hefur veitt ríkisborgararétt. Nefndin hefur sakað ráðherrann um að hafa brotið lög með því að koma í veg fyrir að Útlendingastofnun afhendi gögn í tengslum við veitingu á ríkisborgararétt. Innlent 28. mars 2023 15:30
Það þarf að ganga í verkin! Það eru mörg verkefnin á hverjum tíma sem við sem þjóð þurfum að leysa, en okkur gengur misvel að leysa þau hratt og örugglega. Það á einna helst við innan þess opinbera og þörf er á því að breyta áherslum með það að markmiði að auka skilvirkni í kerfinu og leggja áherslu á fyrirbyggjandi aðgerðir í stað þess að vera sífellt að bregðast við þeim aðstæðum sem uppi eru á hverjum tíma. Skoðun 28. mars 2023 15:01
Ríkið hreki leigjendur úr íbúðum á Suðurnesjum með yfirboðum Þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir ástandið á Suðurnesjum vera orðið ógnvænlegt og óbærilegt vegna aukins fjölda hælisleitenda, hræðslu og ógnandi umhverfis. Fjöldinn hafi þau áhrif að leigjendur á almennum markaði á Suðurnesjum hrekist úr íbúðum sínum þar sem Vinnumálastofnun yfirbjóði leiguna til að hægt sé að tryggja þeim húsnæði. Innlent 28. mars 2023 14:10
Verðbólgan vonandi toppað Fjármálaráðherra vonar að verðbólgan hafi náð hámarki. Ríkisstjórnin ætli að grípa til ráðstafana til að stuðla að lægra verðlagi sem sé talsvert verkefni. Viðskipti innlent 28. mars 2023 13:28
Verður einhver rekinn hjá ríkinu? Á forsíðum dagblaðanna í morgun er fjallað um glímu ríkisstjórnarinnar við ríkisútgjöldin, sem hún verður að hemja til að leggja sitt af mörkum í baráttunni við verðbólguna. Morgunblaðið segir aukið aðhald í ríkisrekstri blasa við í fjármálaáætlun, sem lögð verður fram á Alþingi á morgun. Fréttablaðið hefur eftir Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra að aukið aðhald geti þýtt fækkun ríkisstarfsmanna og fækkun verkefna ríkisins. Skoðun 28. mars 2023 13:00
Fit for 55: „Eins og að segja fólki að fara til útlanda með Norrænu“ Utanríkisráðherra segir það algjörlega kristaltært að ekkert verði af loftlagssköttum ESB um millilandaflug án þess að tillit verði tekið til séríslenskra aðstæðna. Um sé að ræða víðtækasta mál frá því að Ísland varð aðili að EES samningnum og forgangsröðun eftir því. Þingmaður Miðflokksins segir að verði innleiðingin samþykkt sé verið að rústa stöðu Íslands sem stoppistöðvar í tengiflugi. Innlent 28. mars 2023 09:34
Fresta kynningu fjármálaáætlunar Fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar verður ekki kynnt í dag eins og til stóð og mun hún væntanlega líta dagsins ljós á morgun þess í stað. Innlent 28. mars 2023 07:26
Vill „rífa í handbremsuna“ og koma einmana seðlabankastjóra til hjálpar Formaður Viðreisnar leggur til ráðningarbann hjá hinu opinbera til að koma böndum á verðbólgu og talar fyrir útgjaldareglu ríkisins svo koma megi í veg fyrir áframhaldandi hallarekstur. Hún segir Viðreisn hafa lengi bent á að útgjöld ríkissjóðs væru of mikil en ekki sé hægt að breyta fortíðinni. Nú þurfi allir að leggjast á árarnar til að draga úr hallarekstri ríkissjóðs - þingheimur og vinnumarkaður. Ekki sé hægt að skilja seðlabankastjóra einan eftir í súpunni. Innherji 28. mars 2023 07:01
Tvöfalt Ísland Næstu dagar munu hafa úrslitaáhrif á stöðu efnahagsmála hér á landi, en þá kemur ríkisstjórnin til með að leggja fram og ræða þýðingarmikla fjármálaáætlun á þinginu. Forsætisráðherra hefur látið hafa eftir sér í fjölmiðlum að sameining stofnana sé yfirvofandi, hætt verði við framkvæmdir og skattar hækkaðir sem viðbragð við tólftu stýrivaxtahækkun Seðlabankans. Skoðun 27. mars 2023 17:01
Vilja breyta orðalagi laganna til að tryggja gagnsæi hjá dómstólum Þingmenn Viðreisnar hafa lagt til breytingu á lögum um meðferð einka- og sakamála til að skýra lög sem dómstólar hafa undanfarið vísað til þegar þeir hafa takmarkað fréttaflutning úr dómssal. Þingmennirnir segja samfélagið hafa ríka hagsmuni af því að starfsemi dómstóla sé gagnsæ og fari fram fyrir opnum tjöldum. Innlent 27. mars 2023 15:43
Hamarshöllin – áfram gakk Síðustu mánuði hefur farið gríðarlega mikill tími í undirbúningsvinnu fyrir uppbyggingu Hamarshallarinnar. Ófáir fundir, símtöl, grúsk í gögnum, rökræða, útreikningar, samtöl við marga sérfræðinga og svona gæti ég áfram talið fram á morgun. Skoðun 27. mars 2023 15:31
Á guðs vegum með Bjarna Ben og FÍB Þann 21. mars síðastliðinn glöddust fjármálaráðherra Bjarni Benediktsson og formaður samgöngunefndar Vilhjálmur Árnason fyrir hönd ríkisstjórnarinnar yfir liðsinni FÍB við að reyna sannfæra almenning um að eina sanngjarna leiðin til innheimtu skatts vegna viðhalds og uppbyggingar vegasamgangna, sé að skipta út núverandi skattlagningu á eldsneyti fyrir kílómetragjald. Skoðun 27. mars 2023 14:01
Tölum um lygar Dómsmálaráðherra Íslands, maðurinn sem ber ábyrgð á málefnum lögreglu, dómstóla og sýslumanna og réttvísinni á Íslandi svona almennt og yfirleitt, hefur endurtekið verið staðinn að lygum. Hann lýgur að þinginu. Hann lýgur að fjölmiðlum. Hann lýgur að almenningi. Skoðun 27. mars 2023 11:31
Fáum peningana aftur heim, skattaða í drasl! Hugmyndir þeirra Ragnars Þórs Ingólfssonar formanns VR og Ásthildar Lóu Þórsdóttur þingmanns Flokks fólksins og formanns Hagsmunasamtaka heimilana um sérstakan þrepaskiptan skyldusparnað á laun fólks, til þess að slá á einkaneyslu og kæmu í staðinn fyrir vaxtahækkanir Seðlabankans, eru á margan hátt athyglisverðar en ekki endilega góðar þegar aðeins er reynt að kafa ofan í málið. Skoðun 27. mars 2023 10:31
Fiskveiðiauðlindin okkar Undanfarna mánuði hef ég, fyrir hönd Samfylkingarinnar, setið í stóru nefndinni hennar Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra um fiskveiðiauðlindina. Á síðasta fundi var rætt um stóru ágreiningsmálin, þ.e. um arðinn af auðlindinni og hvert hann eigi að renna og um samþjöppun í greininni. Skoðun 27. mars 2023 09:31
Vínbúðir gætu opnað á sunnudögum Enginn vilji er til þess að áfengi verði selt í almennum verslunum segir þingkona Framsóknarflokksins en frumvarp um rýmkun opnunartíma vínbúða hefur verið lagt fyrir Alþingi. Innlent 26. mars 2023 22:06
Aukin skattheimta og „sanngjarnari“ veiðigjöld „Við erum að undirbúa fjármálaáætlun. Það er alveg ljóst að við munum þurfa að horfa til þess í fjármálaáætlun að stuðla að því að slá verðbólguna niður, og það gerist auðvitað fyrst og fremst með því að annars vegar að auka tekjuöflun og hins vegar með því að slá niður útgjöld,“ segir Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra um nýja fjármálaáætlun sem kynnt verður í vikunni. Innlent 26. mars 2023 16:49
Rannsóknir þingmanna um rafbyssur stönguðust hver á við aðra Þingmaður Pírata segir rannsóknir sýna að rafbyssur auki ekki öryggi. Valdbeiting gegn almennum borgurum hafi hins vegar aukist. Þingmaður Sjálfstæðisflokksins segist hafa séð rannsóknir af öndverðum meiði. Innlent 26. mars 2023 16:30
Það skiptir máli hver stjórnar Með þessu slagorði sannfærði Vinstrihreyfingin - grænt framboð kjósendur sína um það að í því fælist ábyrgðarhlutverk að velja flokkinn til forystu. Aðeins þau gætu tryggt farsæld og velferð, hreint loft og græn tún. Skoðun 26. mars 2023 15:01
Aðhald í þágu almennings Tveggja stafa verðbólga, hæstu vextir í 12 ár, æ fleiri eiga erfitt með að ná endum saman – en samkvæmt Bjarna Benediktssyni gengur efnahagsstjórnin ljómandi vel og fjárlög sem voru samþykkt með 120 milljarða halla eru í raun og veru að reynast prýðilegt meðal gegn verðbólgunni sem þó eykst milli mánaða. Skoðun 26. mars 2023 14:30
Segir íslenska háskóla skrapa botninn Háskólaráðherra gefur háskólum hér á landi falleinkunn og segir gæði kennslu skrapa botninn meðal Norðurlandanna. Hún hyggst umbreyta fjármögnun skólanna Innlent 26. mars 2023 12:09
Afnám banns gæti rýmkað opnunartíma vínbúða yfir hátíðir Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins telur að svigrúm sitt til að rýmka opnunartíma vínbúða í kringum stórhátíðir ykist ef frumvarp um afnám banns við að búðirnar séu opnar á sunnudögum og hátíðardögum verður að lögum. Stofnunin leggst ekki gegn frumvarpinu. Innlent 26. mars 2023 08:19