Nýjar stefnur kynntar og ný stjórn kjörin í dag Landsfundur Vinstri grænna fer nú fram á Akureyri í skugga úrsagna á fjórða tug félagsmanna og voru líflegar umræður í gærkvöldi. Bæjarfulltrúi á Akureyri segir landsfundargesti virða ólíkar skoðanir en enn sé fólk í flokknum sem sé ósátt. Ný orkustefna og stefna um málefni fatlaðra voru kynntar í hádeginu og ný stjórn verður kjörin síðar í dag. Innlent 18. mars 2023 13:34
„Skrípaleikur“ Sigmars Sigmar Guðmundsson þingmaður Viðreisnar hefur lýst yfir mikilli furðu yfir beiðni meirihluta stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar að fá á fund nefndarinnar þá ríkisendurskoðendur sem komu að gerð skýrslu embættisins um Lindarhvol þrátt fyrir tilvist trúnaðarskjals í málinu. Furða þingmannsins yfir beiðninni er reyndar svo gríðarleg að hann kallar hana „einhvers konar heimsmet í skrípaleik“ og farsa sem sé „með þeim lélegri á dagskrá Alþingis í manna minnum“ Skoðun 18. mars 2023 07:00
Stappar stálinu í félagsmenn VG í formannsræðu í skugga úrsagna Landsfundur Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs fer fram um helgina í skugga úrsagna hátt í þrjátíu VG liða, vegna samþykktar umdeilds útlendingafrumvarps dómsmálaráðherra í vikunni. Innlent 17. mars 2023 21:04
Undanþágur á reglum aðeins hugsaðar til skamms tíma Barnamálaráðherra segir að það eigi að vera undantekning en ekki regla að sveitarfélög nýti sér heimild til að víkja frá reglu um lágmarksfjölda íbúa í umdæmi hverrar barnaverndarþjónustu. Faðir stúlku sem hefur slæma reynslu af barnaverndarnefnd í litlum bæ segir lögin ekki virka sem skyldi en lögin eru sett til að tryggja faglega og óháða þjónustu við börn. Innlent 17. mars 2023 19:37
Greip fram í fyrir Katrínu: „Ég get ekki hlustað á þessar helvítis lygar“ Einn viðstaddra á landsfundi Vinstri grænna, sem settur var á Akureyri í dag, var ekki sáttur með ávarp formanns VG og forsætisráðherra. „Ég get ekki hlustað á þessar helvítis lygar,“ sagði maðurinn og bætti við að Katrín Jakobsdóttir ætti að skammast sín. Maðurinn er þó ekki félagi í Vinstri grænum. Innlent 17. mars 2023 18:25
Bein útsending: Ræða Katrínar á landsfundi VG Landsfundur VG verður haldinn í Hofi á Akureyri um helgina. Fundurinn hefst síðdegis í dag og mun Katrín Jakobsdóttir, formaður flokksins og forsætisráðherra, flytja opnunarræðu fundarins klukkan 17.30. Innlent 17. mars 2023 16:46
„Óásættanlegt að yfir hundrað lögreglumenn slasist við störf á ári hverju“ Landssamband lögreglumanna segir í ályktun að nauðsynlegt sé að tryggja öryggi lögreglumanna í starfi. Starfsstéttin búi við flest vinnuslys. Ályktunin kemur í kjölfar fréttar Vísis sem birtist í morgun, kom þar fram að fullyrðingar dómsmálaráðherra um að slysum lögreglumanna hafi fjölgað verulega standist ekki. Innlent 17. mars 2023 14:31
Bjartur Steingrímsson einn af þrjátíu sem hafa kvatt VG Þrjátíu manns hafa skráð sig úr Vinstrihreyfingunni – grænu framboði á síðustu tveimur dögum, eða frá því að útlendingafrumvarp dómsmálaráðherra var samþykkt. Innlent 17. mars 2023 14:06
Styrkja Matvælaáætlun SÞ vegna hamfaranna í Malaví Íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að verja hálfri milljón Bandaríkjadala, jafnvirði 71 milljón króna, til Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna vegna neyðarástandsins sem skapast hefur í Malaví af völdum hitabeltisstormsins Freddy. Innlent 17. mars 2023 13:27
„Alltaf mjög leitt þegar leiðir skilja í stjórnmálum“ Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og formaður VG, segir að það sé mjög leitt að sjá á eftir nokkrum félagsmönnum úr flokknum vegna óánægju með ný samþykkt útlendingafrumvarp dómsmálaráðherra. Hún telur þó að þingmenn flokksins hafi unnið að málinu af heilindum og í samræmi við stefnu flokksins. Innlent 17. mars 2023 11:54
Teitur Björn mun taka sæti Haraldar: „Nokkuð óvænt“ Teitur Björn Einarsson, varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins og aðstoðarmaður ríkisstjórnarinnar, mun taka sæti Haraldar Benediktssonar á Alþingi eftir að sá síðarnefndi tekur við stöðu bæjarstjóra Akraness á næstu vikum. Teitur Björn segist spenntur fyrir verkefninu. Innlent 17. mars 2023 10:58
Þingmaður ráðinn bæjarstjóri Akraness Haraldur Benediktsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur verið ráðinn bæjarstjóri Akraneskaupstaðar. Hann tekur við stöðunni af Sævari Frey Þráinssyni sem nýverið var ráðinn forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur. Innlent 17. mars 2023 10:24
Þarf að segja eitthvað meira? Við vitum öll hversu mikilvæg mannréttindi eru. Ekki nokkurt okkar myndi vilja skerða eigin mannréttindi, eða ganga gegn jafnrétti. Við viljum öll geta leitað réttar okkar fyrir óvilhöllum dómstólum, því: „Allir skulu vera jafnir fyrir lögum og njóta mannréttinda, án tillits til kynferðis, trúarbragða, skoðana, þjóðernisuppruna, kynþáttar, litarháttar, efnahags, ætternis og stöðu að öðru leyti.“ – svo ég vitni í sjálfa Stjórnarskrá lýðveldisins Íslands. Skoðun 17. mars 2023 10:01
Leikskólakennari í innvistarvanda Hvað felst í titlinum? Kennari sem á í innri vanda eða er það húsnæðið sem kennarinn vinnur í sem er í vanda? Þó að seinni fullyrðingin sé skilgreiningin (innvistarvandi = rakaskemmdir/mygla í húsnæði á vegum borgarinnar) þá er í raun ekki hægt að aðgreina þessar tvær skilgreiningar. Skoðun 17. mars 2023 08:01
Fullyrðingar ráðherra um verulega fjölgun slysa standast ekki skoðun Fullyrðingar Jóns Gunnarssonar dómsmálaráðherra um að slysum á lögreglumönnum hafi fjölgað verulega á síðustu árum fást ekki staðist samkvæmt gögnum frá Vinnueftirlitinu. Ráðherra hefur ítrekað vísað til þessa til að réttlæta að heimila lögreglu að bera rafbyssur. Innlent 17. mars 2023 07:59
Leyndó í beinni útsendingu Nýjustu vendingar í málefnum Lindarhvols eru sennilega þær furðulegustu hingað til. Hjá ríkisstjórnarflokkunum hefur farið gríðarleg orka í að koma í veg fyrir að almenningur fái að sjá greinargerð sem einn ríkisendurskoðandi vann um Lindarhvol, en hún stangast í veigamiklum atriðum á við skýrslu sem annar ríkisendurskoðandi gerði um sama mál. Skoðun 17. mars 2023 07:01
„Því miður er ekkert sérstaklega bjart yfir mér“ Hildur Björnsdóttir borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins segist vonsvikin yfir því að staðan í leikskólamálum sé jafnslæm og raun beri vitni. Hún vill fjölga leikskólaplássum og lagði fram tillögu í borgarráði í dag um daggæslu fyrir börn starfsmanna á stærri vinnustöðum. Innlent 16. mars 2023 22:53
Elva Hrönn hættir í VG Elva Hrönn Hjartardóttir, fyrrverandi meðlimur stjórnar Vinstri grænna og varaformaður þeirra í Reykjavík, sagði sig úr flokknum fyrr í dag. Hún segist ekki geta kennt sig við hreyfingu „sem samþykkir þau mannréttindabrot sem nýsamþykkt útlendingafrumvarp felur í sér.“ Innlent 16. mars 2023 21:21
Enn aukast flækjur Lindarhvolsmálsins á Alþingi Þingmenn eru enn að vandræðast með hvort opinbera eigi greinargerð frá fyrrverandi settum ríkisendurskoðanda um eignarhaldsfélag ríkisins utan um eignir sem það leysti til sín eftir hrun bankanna. Málið verður furðulegra með hverjum deginum sem líður Innlent 16. mars 2023 21:01
Forsætisráðherra ítrekar ágreining við dómsmálaráðherra um rafbyssur Forsætisráðherra er sammála umboðsmanni Alþingis um að það hefði verið betri stjórnsýsla hjá dómsmálaráðherra að ræða rafbyssuvæðingu lögreglunnar á ríkisstjórnarfundi, áður en hann gaf út reglugerð sem heimilaði notkun þessara vopna. Innlent 16. mars 2023 19:45
Dólgslega góð Samfylking Nýlega datt ég óvænt inn á þing sem varaþingmaður fyrir Eyjólf Ármannsson í Flokki fólksins. Það hefur að öllu leyti verið skemmtilegur tími, sérstaklega að vinna með frábærum þingflokki og framúrskarandi starfsfólki Flokks fólksins. Það hefur jafnframt verið ánægjulegt að rekast á gamla kunningja í þingliði og starfsfólk þingsins. Skoðun 16. mars 2023 19:01
„Meiriháttar trúnaðarbrestur“ innan ríkisstjórnarinnar Umboðsmaður Alþingis mætti á fund stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis í dag vegna samráðsleysis dómsmálaráðherra um rafbyssur. Annar varaformaður nefndarinnar segir að um sé að ræða meiriháttar trúnaðarbrest milli Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra og Jóns Gunnarssonar dómsmálaráðherra. Innlent 16. mars 2023 17:04
Barist um tvö embætti í VG Barist verður um tvö embætti á landsfundi Vinstri grænna sem hefst í Hofi á Akureyri á morgun. Ekki hafa borist framboð til formanns og varaformanns. Á fundinum verður einnig kosnir fjörtíu fulltrúar í flokksráð. Innlent 16. mars 2023 15:43
Mosfellsbær tekur á móti áttatíu flóttamönnum Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, og Regína Ásvaldsdóttir, bæjarstjóri Mosfellsbæjar, undirrituðu í morgun samning um samræmda móttöku flóttafólks í Mosfellsbæ. Samningurinn kveður á um að Mosfellsbær taki í samstarfi við stjórnvöld á móti allt að áttatíu flóttamönnum. Innlent 16. mars 2023 13:54
Af grasafjalli stjórnmálanna Undanfarin þrjú ár hafa verið viðburðarík og snúin, sama hvernig á það er litið. Þolinmæði almennings er misskipt og það ekki að ósekju, því verkefnin sem fólk fær í hendurnar í lífinu eru oft erfið. Fátækt barna er staðreynd, slæm staða flóttafólks sem kemur allslaust og brotið til landsins og þarf stuðning og öryggi er staðreynd, hnignandi andleg heilsa ungmenna er staðreynd. Skoðun 16. mars 2023 13:01
Varaþingmaður VG tekur þung skref og segir sig úr flokknum Varaþingmaður og fyrrverandi framkvæmdastjóri Vinstri grænna sagði sig úr flokknum nokkrum mínútum eftir að útlendingafrumvarp dómsmálaráðherra var samþykkt í gær. Hann ætlar ekki að taka sæti aftur á þingi jafnvel þótt hann yrði kallaður inn. Innlent 16. mars 2023 11:48
Foreldrar mótmæltu í ráðhúsinu: „Ætlum ekki að hætta fyrr en eitthvað gerist“ Foreldrar komu saman í ráðhúsi Reykjavíkur í morgun og mótmæltu þeirri stöðu sem enn á ný er komin upp í leikskólamálum. Dæmi er um að börn þurfi að bíða í á þriðja ár eftir leikskólaplássi. Borgarfulltrúi sjálfstæðisflokksins segir ástandið grafalvarlegt og það sé tilkomið vegna trassaskapar. Innlent 16. mars 2023 11:46
Þörungaeldi er vaxandi grein Á dögunum var kynnt skýrsla alþjóðlega ráðgjafafyrirtækisins Boston Consulting Group um stöðu og framtíð lagareldis á Íslandi. Þar var komið inn á tækifæri og áskoranir í þörungaeldi á Íslandi. Í skýrslunni segir að þörungarækt í heiminum hafi færst í vöxt til að mæta aukinni eftirspurn og bæta framleiðslustýringu. Skoðun 16. mars 2023 11:30
Orkuleysi og kyrrstaða Þegar ég hóf afskipti af stjórnmálum ung var slagorðið í mínu fyrsta prófkjöri “Öll mál eru fjölskyldumál”. Mér þykir þessi orð enn ná nokkuð vel utan um hvernig ég nálgast pólitík, þó svo að síðan séu liðin mörg ár. Því þegar vel er að gáð þá liggja flestir þræðir sem viðkoma pólitík með einum eða öðrum hætti til fjölskyldunnar - í eins víðri túlkun og hugsast getur. Skoðun 16. mars 2023 09:00
Brúar dómsmálaráðherra bilið? Meðalaldur barna við innritun á leikskóla Reykjavíkurborgar er nú 21 mánuðir og þrátt fyrir fögur fyrirheit hefur meirihlutanum í borginni ekki tekist að lækka innritunaraldurinn svo neinu nemi; það er staðan. Skoðun 16. mars 2023 07:30