„Þau verða ekki fjölskyldan mín í leiknum“ „Það verður örugglega mjög skrítið. Líka skrítið að hita upp hinum megin, fara í hinn klefann og svona. Við gerum gott úr þessu, en þau verða ekki fjölskyldan mín í leiknum,“ sagði Ásdís Þóra Ágústsdóttir. Hún verður í eldlínunni þegar Selfoss mætir Val á Hlíðarenda í Olís deild kvenna í dag, laugardag. Það vill svo skemmtilega til að Ágúst Þór Jóhannsson, þjálfari Vals, er faðir Ásdísar Þóru. Handbolti 3. desember 2022 09:01
Umfjöllun og viðtöl: Grótta - Selfoss 18-20 | Selfoss sótti tvö stig á Nesið Selfoss lagði Gróttu að velli 18-20 í miklum baráttuleik í Olís deild karla í handbolta í Hertz-höllinni á Seltjarnarnesi í kvöld. Handbolti 27. nóvember 2022 19:45
„Hún er að breytast í stórkostlegan leikmann“ Eyþór Lárusson, þjálfari Selfoss, var gríðarlega ánægður og stoltur af sínu liði eftir sigur gegn HK í fallbaráttuslag í Olís-deild kvenna í dag. Handbolti 26. nóvember 2022 18:41
Umfjöllun og viðtöl: Selfoss - HK 32-26 | Öruggur sigur heimakvenna í botnslagnum Selfoss vann öruggan marka sigur er liðið tók á móti HK í botnslag Olís-deildar kvenna í handbolta í dag. Lokatölur 32-26, en fyrir leikinn voru liðin jöfn að stigum í neðstu sætum deildarinnar. Handbolti 26. nóvember 2022 18:35
Umfjöllun, viðtöl og myndir: Afturelding - Selfoss 38-31 | Heimamenn upp í annað sætið Afturelding vann sannfærandi sjö marka sigur í kvöld og flaug upp í annað sæti Olís deildar karla í handbolta. Handbolti 21. nóvember 2022 22:25
Valskonur áfram með fullt hús stiga Valur trónir á toppi Olísdeildarinnar í handbolta og styrkti stöðu sína með tveggja marka sigri á KA/Þór að Hlíðarenda í dag. Handbolti 19. nóvember 2022 17:52
„Mér finnst þetta hugrökk ákvörðun hjá henni“ Ásdís Þóra Ágústsdóttir er að spila með Selfossliðinu í Olís deild kvenna í handbolta í vetur en hún kom þangað á láni frá Val. Handbolti 16. nóvember 2022 14:00
Gat ekki spilað leikinn vegna sjóveiki Lykilleikmaður Selfossliðsins missti af leik liðsins í Vestmannaeyjum um helgina vegna sjóveiki. Hún mætti samt til Eyja daginn áður. Handbolti 16. nóvember 2022 10:30
Stjarnan, Haukar, HK og Selfoss í átta liða úrslit Fjórir leikir fóru fram í fyrstu umferð bikarkeppni HSÍ í kvennahandboltanum í kvöld þar sem Stjarnan, Haukar, HK og Selfoss tryggði sér sæti í átta liða úrslitum. Handbolti 15. nóvember 2022 20:57
Hergeir: Skrýtin tilfinning að mæta Selfossi í bláum búningi Hergeir Grímsson, leikmaður Stjörnunni, gerði sínum gömlu félögum grikk þegar hann mætti uppeldisfélagi sínu, Selfossi, í Olís deildinni í handbolta karla í kvöld. Handbolti 13. nóvember 2022 23:06
Umfjöllun og viðtöl: Selfoss - Stjarnan 22-35 | Stjarnan skellti Selfossi í uppgjöri liðanna um miðja deild Stjarnan vann sannfærandi 22-35 sigur þegar liðið atti kappi við Selfoss í níundu umferð Olísdeildar karla í handbolta í Set-höllinni á Selfossi í kvöld. Handbolti 13. nóvember 2022 21:03
Umfjöllun: ÍBV - Selfoss 32-27 | Eyjakonur unnu síðast í Eyjum í september ÍBV tók á móti Selfossi í sjöttu umferð Olís deild kvenna en heimaskonur unnu síðast deildarleik í Vestmanneyjum 17. september síðastliðinn. Eyjakonur höfðu betur og unnu fimm marka sigur, 32-27. Handbolti 12. nóvember 2022 15:30
Umfjöllun: Valur - Selfoss 38-33 | Fagmannleg frammistaða hjá meisturunum Valur mætti Selfyssingum að Hlíðarenda í kvöld í 8. umferð Olís-deildarinnar. Lauk leiknum með þægilegum sigri heimamanna í Val. Lokatölur 38-33 í leik sem Valur leiddi frá upphafi til enda. Handbolti 7. nóvember 2022 21:00
Svaraði rétt þrátt fyrir að hafa aðeins séð brot af vísbendingunni Átta liða úrslitin í Kviss héldu áfram á laugardagskvöldið á Stöð 2 en þá tókust á lið Aftureldingar og Selfoss. Lífið 7. nóvember 2022 10:31
„Varnarleikurinn leggur grunninn að þessu“ „Ég er virkilega sáttur að hafa unnið hérna í kvöld. Það er góð fyrsta tilfinning og á erfiðum útivelli. ÍR-ingar eru búnir að vera spila vel svo að við áttum von á hörkuleik. Þetta var þægilegra í seinni hálfleik, það var smá bras í fyrri,“ sagði Þórir Ólafsson, þjálfari Selfoss, sáttur eftir níu marka sigur á ÍR í Olís-deild karla í kvöld, lokatölur 26-35. Handbolti 30. október 2022 21:30
Umfjöllun og viðtöl: ÍR - Selfoss 26-35 | Selfyssingar stöðvuðu sigurgöngu ÍR í Skógarselinu ÍR-ingar sem hafa verið taplausir á heimavelli síðan þeir flutt í nýtt hús, tóku á móti Selfossi í 7. umferð Olís-deildar karla í handbolta í kvöld. Selfyssingum tókst að binda endi á það í kvöld er þeir unnu níu marka sigur á ÍR. Lokatölur 26-35. Handbolti 30. október 2022 21:00
Umfjöllun: Selfoss - Fram 27-30 | Annar sigur Framara í röð Fram vann þriggja marka sigur á Selfossi 27-30. Gestirnir komust snemma yfir og þrátt fyrir hetjulega baráttu Selfoss undir lokin þá hélt Fram sjó sem skilaði tveimur stigum í poka meistaranna. Handbolti 22. október 2022 17:25
„Nú bara fengum við einn á kjaftinn“ Jónatan Magnússon, þjálfari KA, var eðlilega ósáttur eftir tíu marka tap sinna manna gegn Selfossi í Olís-deild karla í handbolta í kvöld. Hann segir að leikurinn hafi í raun verið farinn í hálfleik og að sínir menn hafi einfaldlega átt vondan dag á Selfossi. Handbolti 21. október 2022 23:01
Umfjöllun og viðtöl: Selfoss - KA 34-24 | Heimamenn kláruðu dæmið í fyrri hálfleik Selfyssingar unnu afar öruggan tíu marka sigur er liðið tók á móti KA í Olís-deild karla í handbolta í kvöld, 34-24. Heimamenn höfðu níu marka forskot í hálfleik og sigur þeirra var aldrei í hættu eftir það. Handbolti 21. október 2022 22:06
Umfjöllun: Hörður - Selfoss 32-35 | Selfoss hafði betur á Ísafirði Selfoss vann nauðsynlegan útisigur á Herði 32-35. Leikurinn var jafn framan af en undir lok síðari hálfleiks komst Selfoss fjórum mörkum yfir og var í bílstjórasætinu allan leikinn. Þrátt fyrir hetjulega baráttu Harðar vann Selfoss þriggja marka sigur. Handbolti 18. október 2022 21:13
KA/Þór vann öruggan sigur á Selfossi KA/Þór vann fimm marka sigur á Selfossi í Olís-deild kvenna í handbolta í dag, 27-22. Leikið var á Akureyri en sigur heimakvenna virtist aldrei í hættu. Handbolti 15. október 2022 18:45
Eyþór Lárusson: Við munum læra af þessu Eyþór Lárusson, þjálfari Selfoss, var að vonum svekktur eftir tap gegn Haukum á Ásvöllum fyrr í dag. Fyrir leikinn voru Haukar enn án stiga. Það var hart barist strax frá fyrstu mínútu en Haukar höfðu þó yfirhöndina allan leikinn. Lokatölur 39-33. Handbolti 8. október 2022 18:14
Umfjöllun og viðtal: Haukar - Selfoss 39-33 | Öruggur sigur Hauka í fyrsta heimaleik tímabilsins Haukar unnu öruggan sex marka sigur á nýliðum Selfoss í 3. umferð Olís deildar kvenna fyrr í dag. Um var að ræða fyrsta heimaleik Hauka á tímabilinu en fyrir leik var liðið án stiga. Haukar voru með yfirhöndina allan leikinn en Selfoss gafst þó aldrei upp. Lokatölur á Ásvelli 39-33. Handbolti 8. október 2022 15:15
Handboltaakademían spili stóra rullu í uppgangi handboltans á Selfossi Undanfarin ár hafa Selfyssingar alið af sér marga af bestu handboltamönnum landsins. Á síðustu stórmótum hefur íslenska landsliðið verið þétt setið af Selfyssingum, en Hergeir Grímsson, leikmaður Stjörnunnar í Olís-deild karla, segir að líklega sé það handboltaakademíunni á svæðinu að þakka. Handbolti 4. október 2022 23:31
Umfjöllun: Valur - Selfoss 1-1 | Valur gerði jafntefli áður en bikarinn fór á loft Valur og Selfoss skildu jöfn 1-1 þegar liðin mættust í lokaumferð Bestu deildar kvenna í fótbolta á Origo-vellinum að Hlíðarenda í dag. Valur hafði tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn með sigri gegn Aftureldingu í síðustu umferð deildarinnar og því eingöngu spurning um að klára mótið með glæsibrag áður en bikarinn færi á loft. Valur varð bæði Íslands- og bikarmeistari á nýlokinni leiktíð. Íslenski boltinn 1. október 2022 15:52
Umfjöllun og viðtöl: Selfoss - ÍBV 31-31 | Jafnt í háspennuleik í Suðurlandsslagnum Selfoss og ÍBV gerðu 31-31 jafntefli er liðin mættust í háspennuleik í fjórðu umferð Olís-deildar karla í handbolta í kvöld. Handbolti 29. september 2022 21:38
„Tvær lélegar sóknir hjá sitthvoru liðinu sem skilaði jafntefli“ Einar Sverrisson, leikmaður Selfoss, átti stórleik þegar liðið gerði jafntefli gegn ÍBV í Olís-deild karla í handbolta í kvöld, 31-31. Einar skoraði tíu mörk fyrir Selfyssinga og hans fjórða mark í leiknum var hans þúsundasta fyrir félagið í opinberum keppnisleikjum. Handbolti 29. september 2022 21:10
Umfjöllun: Selfoss - Breiðablik 2-0 | Evrópudraumar Blika í hættu eftir tap á Selfossi Breiðablik mátti þola 2-0 tap er liðið heimsótti Selfoss í næstseinustu umferð Bestu-deildar kvenna í knattspyrnu í dag. Tapið þýðir að liðið þarf að treysta á hagstæð úrslit í öðrum leikjum til að tryggja sér Evrópusæti í lokaumferðinni. Íslenski boltinn 25. september 2022 16:47
Umfjöllun og viðtöl: Selfoss - Valur 18-27 | Valur ekki í vandræðum með nýliðana Valur var ekki í vandræðum með nýliða Selfoss í 2. umferð Olís deildar-kvenna. Varnarleikur Vals var vel skipulagður sem Selfyssingar áttu engin svör við. Valur var sex mörkum yfir í hálfleik og setti tóninn strax í upphafi síðari hálfleiks og áttu nýliðarnir aldrei möguleika. Valur endaði á að vinna níu marka sigur 18-27. Umfjöllun og viðtöl væntanleg. Handbolti 24. september 2022 17:25
Umfjöllun og viðtal: Haukar - Selfoss 27-26 | Haukar unnu í spennutrylli að Ásvöllum Haukar unnu eins marks sigur á Selfossi í þriðju umferð Olís-deildar karla í handknattleik í kvöld. Lokatölur 27-26 þar sem Stefán Huldar Stefánsson markvörður Hauka var hetja þeirra í lokin. Handbolti 22. september 2022 22:02
Mörkin úr enska boltanum: Eitt flottasta mark tímabilsins, dramatík og dýrmætur sigur City Enski boltinn