Dýr

Píla komin í faðm eigenda sinna: „Svo ótrúlega glöð að fá hana aftur“
„Mér finnst þetta bara ótrúlegt. Ég fór í þvílíkan tillfinningarússíbana en var svo ótrúlega glöð að fá hana aftur. Hún er líka rosa glöð að vera komin heim,” segir Margrét Birgisdóttir, eigandi hundsins Pílu, sem fannst loks í gær eftir þriggja vikna leit.

Hundurinn Píla loks fundin eftir björgun úr ótrúlegum aðstæðum
Um tuttugu björgunarsveitarmenn frá Bolungarvík, Hnífsdal og Ísafirði voru að störfum í kvöld við erfiðar aðstæður í Ófæru, þar sem unnið var að því að koma hundinum Pílu niður heilu og höldnu. Píla hafði verið týnd í nærri þrjár vikur en kajakræðari kom auga á hana í dag. Hún komst í langþráðan faðm eigenda sinna í kvöld.

Niðurgangsvaldandi sníkjudýr greindist í íslenskum ketti í fyrsta sinn
Sníkjudýr sem getur valdið krónískum niðurgangi í köttum greindist nýverið í fyrsta sinn í ketti á Íslandi. Ekki er talið að sníkjudýrið geti valdið sýkingum í öðrum dýrum en köttum og er það almennt ekki talið hættulegt fólki.

Elsti St. Bernhards hundur landsins elskar banana og ætlar að verða hundgamall
Næst kynnumst við elsta St. Bernhards hundi landsins sem átti tíu ára afmæli fyrir helgi. Hann kýs banana fram yfir kjöt og á stóran aðdáendahóp.

Ellefu ára læðan Lúsí ein eftir í heimilisleit hjá Kattholti
Mikill kattaskortur virðist vera hér á landi og stefnir ekki í að það muni draga úr eftirspurninni á næstunni. Dæmi eru um að venjulegir kettlingar seljist fyrir tugi þúsunda og er jafnvel mikil eftirspurn eftir eldri köttum. Aðeins einn köttur er nú í heimilisleit hjá Kattholti.

Hyggjast lóga 2.000 hömstrum vegna Covid-smits
Yfirvöld í Hong Kong hyggjast aflífa um það bil 2.000 hamstra eftir að SARS-CoV-2 fannst á ellefu dýrum í gæludýraverslun í borginni. Sýnin voru tekin af 178 dýrum verslunarinnar eftir að starfsmaður greindist með Covid-19.

Fjórir kiðlingar fæddir: Fyrstu vorboðarnir í sveitinni
Fyrstu vorboðarnir hafa nú litið dagsins ljós á sveitabæ á Suðurlandi því fjórir kiðlingar voru að koma í heiminn þar við mikla ánægju heimilisfólksins.

Rósalind rektor öll
Kötturinn Rósalind rektor, sem var þekktur af flestum sem hafa sótt Háskóla Íslands á síðustu árum, er öll.

Vatnið í eyranu reyndist vera kakkalakki
Lítill kakkalakki var fjarlægður úr eyra karlmanns á Nýja Sjálandi á mánudag. Þá voru þrír dagar liðnir frá því hann byrjaði að finna fyrir einhverju iða í eyranu á sér.

Nær 300 svartfuglar fundist dauðir á Suðausturlandi
Á dögunum fannst mikill fjöldi svartfugla dauður á Suðausturlandi. Matvælastofnun hefur ákveðið að láta rannsaka sýni úr fuglunum á Tilraunastöð HÍ að Keldum, meðal annars með tilliti til fuglaflensu.

Þjást í reykvískri náttúru en fjölga sér eins og kanínurnar sem þær eru
Gælukanínur sem látnar eru lausar í Elliðaárdal hljóta oft grimmileg örlög eftir stutta dvöl í náttúrunni. Nú á samstillt átak að koma þeim í skjól, enda stofninn að stækka of hratt.

Segja ólíklegt að fuglaflensa hafi valdið fjöldadauða svartfugla hér á landi
Matvælastofnun mun koma til með að senda sýni til rannsóknar úr fjölda svartfugla sem fundust dauðir á Suðausturlandi en þar verður meðal annars kannað hvort um fuglaflensa hafi valdið dauða fuglanna. Mikið er um fuglaflensu í Evrópu um þessar mundir, bæði í villtum fyglum og alifuglum.

Matvælastofnun rannsakar dularfullan hósta meðal hunda á höfuðborgarsvæðinu
Matvælastofnun hefur sett af stað rannsókn í samvinnu við Tilraunastöð Háskólans á Keldum til að reyna að komast til botns í því hvað veldur hósta hjá hundum sem hefur gert vart við sig á höfuðborgarsvæðinu undanfarið.

Bandarískur fræðimaður lýsir upplifun sinni af blóðmerahaldi á Íslandi
„Sumar merarnar voru alræmdar fyrir mótstöðu sína og brutu stundum básana við að reyna að kasta sér yfir hliðið. Harpa, grá meri sem kom oft út ötuð í blóðslettum, var fræg fyrir þann hæfileika sinn að geta kastað sér niður á hliðina í litlum básnum.“

Íslenskir blóðmerabændur taki margfalt magn miðað við alþjóðlega staðla
Tveir svissneskir dýralæknar og áhugafólk um íslenska hestinn segja magn blóðs sem tekið er af fylfullum merum vikulega hér á landi við blóðmerabúskap vera rúmlega tvöfalt magn miðað við viðurkennda, alþjóðlega staðla um hámark þess blóðmagns sem má taka á eins til tveggja mánaða fresti.

Álitsgerð um heildarblóðmagn íslenska hestsins, magn og tíðni blóðtöku og möguleg áhrif hennar á fylfullar hryssur, út frá sjónarmiðum dýralæknavísinda og dýraverndar
Með þessari greinargerð viljum við taka afstöðu til ákveðinna grundvallaratriða varðandi blóðmerahald á Íslandi. Við beinum sérstaklega sjónum okkar að blóðmagninu sem tekið er úr hryssunum, en það fer langt fram úr þeim reglugerðum um blóðtöku sem gilda í Sviss, Þýskalandi og Bandaríkjunum.

Páfinn segir það sjálfselskt að velja gæludýr fram yfir börn
Frans páfi segir sjálfselskt þegar fólk velur að eignast gæludýr í stað barna. Fólki kynni að þykja það fyndið en svona væri raunveruleikinn, sagði hann þegar hann ávarpaði viðstadda í Páfagarði.

Tígur í bráðri útrýmingarhættu skotinn í dýragarði í Flórída
Átta ára malasískur tígur var skotinn í Naples dýragarðinum í Flórída í gær eftir að hafa bitið í handlegg eins starfsmanna garðsins. Lögregla reyndi að fá tígurinn til að sleppa manninum en neyddist til að skjóta hann þegar það gekk ekki.

Sturridge þarf að greiða manninum sem fann hundinn hans fjórar milljónir í ógreidd fundarlaun
Daniel Sturridge hefur verið gert að greiða manni sem fann hund hans tæpar fjórar milljónir króna í ógreidd fundarlaun.

Eigandi Dimmu er í áfalli: Lausir hundar drápu kött á hrottalegan hátt
Agnes Gróa Jónsdóttir, eigandi kattar sem tveir hundar drápu með hrottalegum hætti á Þorláksmessu, segir köttinn Dimmu hafa verið sér allt og að hún ætli að kæra málið til lögreglu.

Loka baðströndum eftir banvæna hákarlaárás
Yfirvöld í Kaliforníu hafa gripið til þess ráðs að loka baðströndum í San Luis Obispo sýslu eftir að 31 eins árs gamall brimbrettakappi lést af sárum sínum eftir hákarlaárás í gær, á aðfangadag jóla.

Dýragarði lokað eftir að úlfar sluppu út
Dýragarði í Suður-Frakklandi hefur verið lokað tímabundið eftir að níu úlfum tókst að sleppa út fyrir girðingu í garðinum. Garðurinn var opinn þegar atvikið átti sér stað en engan sakaði.

Mældu óvart ferðir þorsks og skarfs með sömu merkingunni
Rafeindamælitæki frá íslenska hátæknifyrirtækinu Stjörnu-Odda, sem komið var fyrir í þorski í Eystrasalti til að mæla hegðun hans, mældi nýlega óvart einnig hegðun skarfs. Var því hegðun tveggja dýrategunda mæld með sama mælinum.

Herra Baktus með stórleik í jólamyndbandi Póstsins
Einn frægasti köttur landsins, hinn eini sanni Hr. Baktus, landaði nýverið hlutverki spjallkisans Njáls í jólamyndbandi Póstsins.

Bannað að nota lím- og drekkingargildrur
Notkun límbakka og drekkingargildra brjóta gegn ákvæðum laga um velferð dýra og það er óheimilt að bera út eitur eða nota músagildrur fyrir hagamýs utanhúss. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Matvælastofnun vegna frétta um óvanalega mikinn músagang.

Páll Óskar syrgir Gutta: „Takk fyrir að velja mig sem lífsförunaut“
Tónlistarmaðurinn Páll Óskar Hjálmtýsson kvaddi köttinn Gutta á föstudag eftir alls átján ára samveru. Gutti var orðinn nítján ára gamall þegar nýru hans byrjuðu að gefa sig.

Blóðmerahald sé versta dýraverndarbrot Íslandssögunnar
Árni Stefán Árnason, lögfræðingur og sérfræðingur um dýravernd, segir blóðmerahald hafa verið stundað hér á landi í fjörutíu ár, miklu lengur en almenningur geri sér grein fyrir. Það sé jafnframt alvarlegasta brot á reglum um dýravernd í sögu þjóðarinnar.

Bjarndýr sem skortir jólaanda réðst á Rúdólf
Bjarndýr náðist á myndband ráðast á uppblásið hreindýr í Kaliforníu í vikunni. Á meðan húnninn réðst á Rúdólf fylgdist móðir hans með árás afkvæmis síns og virtist nokkrum sinnum við það að koma húninum til hjálpar.

Einstakt samband Magnúsar Hlyns og skemmtilegra frétta
Einstakt samband krumma og hundar, kind sem heldur að hún sé hundur og gamalt fólk sem stendur á höndum. Fréttirnar þurfa ekki alltaf að vera stórar til þess að vera merkilegar og það veit fréttamaður okkar á Suðurlandi.

„Þetta er bara vægast sagt hræðilegt fyrir orðspor okkar“
Eftir miklar umræður um fjárlagafrumvarp og tekjufrumvörp ríkisstjórnarinnar undanfarna daga áttu stjórnarandstöðuþingmenn sviðið á Alþingi í dag.