Landbúnaður
12 13 14 15 16 17 18 19 20 … 41 ›
Þúsundir kúa flattar út og urðaðar með rusli eftir að hafa drepist úr hita Þúsundir nautgripa sem drápust vegna hitabylgju í Bandaríkjunum í júní voru urðaðir í landfyllingu í Kansas. Rotnandi hræin voru fyrst flött út með þungavinnuvélum áður en þau voru urðuð með almennu rusli. Erlent 27.7.2022 12:19
Litla sveitabúðin hefur slegið í gegn í Svarfaðardal Hjónin á bænum Völlum í Svarfaðardal kalla ekki allt ömmu sína þegar um verslun og viðskipti er að ræða því þau eru með litla sveitabúið á hlaðinu hjá sér þar sem hægt er að fá allskonar sælkeravörur úr ræktun þeirra. Bleikja er líka ræktuð í tjörn á bænum. Innlent 26.7.2022 20:03
Skemmtilegur dýragarður á Skorrastað Geiturnar, kisurnar, kanínurnar, hundurinn, hænurnar, kindurnar og hestarnir á bænum Skorrastað við Neskaupstað vekja alltaf mikla ánægju hjá gestum en þar er rekin dýragarður og ferðaþjónusta. Bóndinn á bænum segist ekki sakna þess að komast ekki til útlanda á sumrin, Ísland sé alltaf best. Innlent 25.7.2022 20:04
Guterres segir samninginn það mikilvægasta sem hann hafi gert hjá SÞ Fulltrúar Úkraínu, Rússlands, Tyrklands og Sameinuðu þjóðanna (SÞ) hafa undirritað samning sem mun greiða fyrir langþráðum útflutningi á korni frá Úkraínu. Samningurinn gerir Úkraínu kleift að flytja út um 20 milljón tonn af korni sem hafa lengi verið föst í höfnum landsins. Erlent 22.7.2022 15:22
Landlæg veiruskita af völdum kórónuveiru Tilraunastöð Háskóla Íslands að Keldum hefur staðfest að landlæg veiruskitu í kúm hér á landi sé af völdum „Bovcov“ eða nautgripakórónuveiru. Í vor gekk veiruskita á kúabúum víða um land og lá grunur að um nautgripakórónuveiru væri að ræða. Með raðgreiningu úr sýni frá kúabúi á Norðurlandi hefur það nú verið staðfest. Innlent 22.7.2022 11:28
Risa kýr í smíðum í Eyjafirði Risa kýr er nú í smíðum á Kristnesi í Eyjafirði en það er hún Edda, sem er þrír metrar á hæð og fimm metra löng, smíðuð úr tveimur tonnum af járni. Edda verður til sýnis í Eyjafirði þegar smíði hennar verður lokið. Innlent 21.7.2022 09:32
Taka við búskap á síðasta bóndabænum í Reyðarfirði Síðasti bóndinn í hinum forna Reyðarfjarðarhreppi, sem er að hætta eftir hálfrar aldar búskap, spáir því að sauðfjárrækt leggist af sem atvinnugrein á Íslandi á næstu tuttugu til þrjátíu árum. Dóttir hans og tengdasonur ætla þó að taka við. Innlent 17.7.2022 22:11
Hægt að stórauka útflutning á íslensku grænmeti Forsvarsmenn Pure Arctic segja mikla möguleika á útflutningi á íslensku grænmeti ef tryggt verði að grænmetisræktendur fái raforkuna á sama verði og stóriðjan. Nú þegar er töluvert flutt út af gúrkum og öðru grænmeti til Danmerkur, Grænlands og Færeyja. Innlent 10.7.2022 20:05
Ferðamenn og svínin á Erpsstöðum vitlaus í ísinn Heimavinnsla bændanna á Rjómabúinu á Erpsstöðum í Dalasýslu er alltaf að verða vinsælli og vinsælli enda rjúka vörurnar af bænum út til ferðamanna. Ísinn og ostarnir eru alltaf mjög vinsælir, svo ekki sé minnst á broddinn beint úr kúnum. Svínin á bænum elska líka ísinn. Innlent 7.7.2022 20:04
Fyrstu tömdu hreindýrin á Íslandi til sýnis Fyrsti hreindýradýragarður landsins hefur verið opnaður en hann er á bænum Vínlandi á Héraði rétt við Egilsstaði. Í garðinum eru þeir Garpur og Mosi, rúmlega eins árs gamlir en þeim var bjargað agnarsmáum móðurlausum uppi á heiði. Garpur var þá þriggja daga gamall og Mosi átta daga. Innlent 6.7.2022 21:03
Fleiri mótfallin en fylgjandi innflutningi á landbúnaðarvörum Fleiri eru mótfallin frjálsum innflutningi á landbúnaðarvörum en fylgjandi samkvæmt nýrri skoðanakönnun sem unnin var fyrir Fréttablaðið. Viðskipti innlent 6.7.2022 06:21
Viðsnúningur í losun gróðurhúsalofttegunda Losun gróðurhúsalofttegunda jókst um 3,3% á árinu 2021 og nálgast sama stig og fyrir faraldur. Innlent 5.7.2022 11:26
Nauðsynlegar neyðaraðgerðir í efnahagsmálum Um áratugaskeið höfðu Íslendingar miklar áhyggjur af verðbólgu og ekki að ástæðulausu. Reynslan frá áttunda og níunda áratugnum og svo eftir bankahrunið lifir í minningunni. Skoðun 2.7.2022 09:01
Landbúnaðarháskólanum falið að koma með tillögur um eflingu kornræktar Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra hefur falið Landbúnaðarháskóla Íslands að vinna drög að aðgerðaáætlun til eflingar kornræktar. Frá þessu er greint á vef Stjórnarráðsins, þar sem segir að mikilvægi innlendrar kornræktar hafi aukist verulega í tengslum við fæðuöryggi þjóðarinnar. Innlent 30.6.2022 08:08
Brjálað að gera hjá glæsilegri prjónastofu á Hvammstanga Ein glæsilegasta prjónastofa landsins er á Hvammstanga en þar er meira en nóg að gera við að framleiða vörur úr íslenskri ull. Teppi með íslenska fánanum rjúka út eins og heitar lummur. Innlent 28.6.2022 21:05
Hækka afurðaverð um 31 prósent Sláturfélag Vopnafjarðar hefur hækkað afurðaverð sláturleyfishafa um 31 prósent. Þetta kemur fram í nýbirtri verðskrá félagins. Innlent 27.6.2022 19:24
Æt blóm í einu garðyrkjustöðinni á Snæfellsnesi Eina garðyrkjustöðin á Snæfellsnesi gerir það gott en hún framleiðir meðal annars salöt og æt blóm, ásamt því að vera með kaffihús með gómsætum hnallþórum. Innlent 26.6.2022 20:06
Matarkarfan og landbúnaðurinn Þessa dagana breytist heimsmyndin hratt. Fyrir nokkrum mánuðum var stríð í miðri Evrópu eitthvað sem talið hefði verið óhugsandi. Í dag þykir jafnvel ekki útilokað að ráðist verði með vopnavaldi á fullvalda ríki sem á aðild að Atlantshafsbandalaginu. Skoðun 24.6.2022 22:19
Matvælaverð hækkar hratt Vaxtahækkun Seðlabankans þann 22. júní er harkaleg áminning um að verðbólgudraugurinn ríður nú húsum í hagkerfinu. Þessi verðbólga er þó fjarri því að vera séríslenskt vandamál. Öll vesturlönd glíma nú við svipaðan verðbólguvanda. Skoðun 23.6.2022 14:01
Brýnt að standa gegn kröfum hagsmunaaðila Á aðalfundi Íslensk-evrópska verslunarráðsins (ÍEV), var skrifað undir ályktun þar sem íslensk stjórnvöld eru hvött til að standa gegn kröfum hagsmunaaðila í landbúnaði um að draga úr fríverslun með búvörur. Þá hvetur ráðið stjórnvöld til að samræma tollskrá og tollflokkun á Íslandi við Evrópusambandið. Viðskipti innlent 21.6.2022 11:38
14 ára og elskar gamlar dráttarvélar Gamlar og uppgerðar dráttarvélar eru í miklu uppáhaldi hjá 14 ára strák á Reykhólum en hann hefur keyrt dráttarvélar frá því að hann var sex ára gamall. Á bænum er líka Læðan úr Dagvaktinni til sýnis, ásamt öllum dráttarvélunum. Innlent 19.6.2022 20:05
Félag atvinnurekenda og stuðningur við landbúnað Þann 14. júní sl. var tilkynnt um aðgerðir ríkisstjórnarinnar vegna erfiðrar stöðu íslensks landbúnaðar. Mun ríkisvaldið ráðstafa 2,5 milljörðum til að mæta alvarlegri stöðu í landbúnaði. Skoðun 15.6.2022 13:30
2,5 milljarðar til að bregðast við alvarlegri stöðu í landbúnaði Sérstakur spretthópur matvælaráðherra hefur lagt til að greitt verði samtals um 2,5 milljarða álag á ákveðnar greiðslur samkvæmt gildandi búvörusamningum til bænda til að bregðast við alvarlegri stöðu í matvælaframleiðslu á Íslandi. Innlent 14.6.2022 12:03
Staða bænda grafalvarleg Ingibjörg Ólöf Isaksen, þingmaður Framsóknarflokksins, segir stöðu bænda í kjölfar innrás Rússa í Úkraínu vera grafalvarlega. Hún ræddi mögulegar aðgerðir á eldhúsdegi Alþingis. Innlent 8.6.2022 20:11
Ísland reki lestina í Evrópu Fulltrúar stærstu fyrirtækja í íslenskum landbúnaði komu saman í mars á þessu ári og stofnuðu Samtök fyrirtækja í landbúnaði (SAFL). Samtökin segja að rétta þurfi þann mikla aðstöðuhalla sem íslenskur landbúnaður búi við í samanburði við önnur evrópsk ríki. Innlent 8.6.2022 15:58
Ekki spretta grös við einsamlan þurrk Sú staða sem uppi er í heiminum í dag minnir okkur rækilega á hversu mikilvægt það er að tryggja fæðuöryggi í landinu. Innlend framleiðsla mun seint geta uppfyllt alla þá fjölbreytni sem eftirspurnin krefst. Skoðun 8.6.2022 14:30
Mikil fækkun búa ógnar dreifðri byggð Búum í landbúnaðargreinum hefur fækkað um 375 á landinu frá árinu 2008 til 2020. Formaður bændasamtakanna hefur áhyggjur af fækkun búa sem hann segir stoð dreifðari byggða. Innlent 4.6.2022 12:29
Er alþjóðleg matvælakreppa handan við hornið? Sameinuðu þjóðirnar hafa varið við því að innrás Rússa í Úkraínu geti á næstunni valdið alþjóðlegri matvælakreppu sem geti varað í mörg ár. Skoðun 3.6.2022 14:00
Loftslagsvænni mjólkurframleiðsla Í dag er Alþjóðlegi mjólkurdagurinn haldinn hátíðlegur í 21. skipti um víða veröld. Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna (FAO) stóð að stofnun dagsins og var tilgangur framtaksins að vekja athygli á og viðurkenna mikilvægi mjólkur, næringarlegan, félagslegan og efnahagslegan ávinning mjólkur og mjólkurafurða í heiminum en mjólkurframleiðsla styður við lífsafkomu eins milljarðs manna um veröld alla. Skoðun 1.6.2022 08:01
Fæðuöryggisstefna og landbúnaðarstefna Nýlega voru lagðar fyrir ríkisstjórn Íslands tillögur að mótun fæðuöryggisstefnu fyrir Ísland. Í gær, 30. maí, birtist grein á Vísi eftir framkvæmdastjóra félags atvinnurekenda þar sem hann gerir þær tillögur að umtalsefni sínu. Nokkur atriði sem þar koma fram ber þó að skýra nánar og jafnvel leiðrétta. Skoðun 31.5.2022 19:30
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti