Fiskeldi
9 10 11 12 13 14 15 16 17 … 22 ›
Laxeldið á Austfjörðum á fullu í uppbyggingu eftir sjúkdómsáfall Laxeldið á Austfjörðum er að ná vopnum sínum á ný eftir alvarlegan veirusjúkdóm sem stöðvar alla landvinnslu á Djúpavogi. Byrjað er að setja út fisk að nýju í eldiskvíar og búið að kaupa tvo öfluga fóðurpramma. Viðskipti innlent 18.7.2022 22:44
Finnskur stórleikari skilur ekkert í íslenskum stjórnvöldum Jasper Pääkkönen, finnskur stórleikari, er staddur á Íslandi að vinna að heimildarmynd um Norður-Atlantshafslaxinn og þær hættur sem að tegundinni steðja. Jasper segist óttast að tegundin deyi út á næstu árum og gagnrýnir íslensk stjórnvöld fyrir að hafa leyft fiskeldi að festa rætur á Íslandi, nánast eftirlitslausu fyrstu árin. Innlent 9.7.2022 10:00
Síldarvinnslan bindur miklar vonir við uppganginn í fiskeldi „Við bindum vonir við að fiskeldi komi til með að verða ein af undirstöðuatvinnugreinum okkar í framtíðinni,“ segir Gunnþór Ingvason, forstjóri Síldarvinnslunnar, í samtali við Innherja um 15 milljarða króna fjárfestingu íslenska sjávarútvegsfélagsins í Arctic Fish. Innherji 15.6.2022 08:26
Síldarvinnslan kaupir rúmlega þriðjungshlut í norsku laxeldisfyrirtæki Samkvæmt fréttatilkynningu frá Síldarvinnslunni hf. hefur sjávarútvegsfyrirtækið gengið frá samkomulagi við Bremesco Holding Limited ásamt hópi hluthafa, sem eiga samanlagt 34,2%, í Arctic Fish Holding AS um kaup á hlutum þeirra í félaginu. Viðskipti innlent 10.6.2022 18:01
Skjálftavirkni hafði veruleg áhrif á afkomu Matorku Matorka, sem framleiðir laxfiska í landeldi, tapaði 8,4 milljónum evra, jafnvirði 1.160 milljóna króna á síðasta ári en til samanburðar nam tap félagsins 1,1 milljón evra á árinu 2020. Innherji 10.6.2022 10:21
Staðfesta grun um blóðþorra í Berufirði ISA-veiran sem veldur hinum banvæna sjúkdómi blóðþorra í laxi hefur nú verið greind í sjókvíum Fiskeldis Austfjarða í Berufirði. Grunur um tilvist veirunnar í firðinum vaknaði í lok maí. Innlent 2.6.2022 14:56
Réttlát skipting gjaldtöku í fiskeldi Þingsályktunartillaga mín um endurskoðun á reglugerðarumhverfi sjókvíaeldis, með hliðsjón af gjaldtöku af fiskeldi liggur inni í háttvirtri atvinnuveganefnd þingsins. Þessi tillaga var einnig lögð fram í lok síðasta þings og rataði meginefni hennar inn í stjórnarsáttmála núverandi ríkisstjórnar þar sem stendur að mótuð verði heildstæð stefna um uppbyggingu, umgjörð og gjaldtöku fiskeldis. Skoðun 2.6.2022 07:30
Orð Jens Garðars sjókvíaeldismanns eldast illa ISA veiran sem veldur hinum banvæna sjúkdómi blóðþorra í laxi hefur nú verið greind í sjókvíum Fiskeldis Austfjarða í Berufirði. Innlent 27.5.2022 15:18
Tvöfalda fiskeldi Samherja í Öxarfirði Samherji stendur nú að stækkun Silfurstjörnunnar, landeldisstöðvar sinnar í Öxarfirði. Stefnt er að því að tvöfalda eldisrými og framleiðslu þannig að framleiðslan verði um þrjú þúsund tonn á ári. Viðskipti innlent 20.5.2022 09:52
Ætla að byggja hátæknifiskvinnsluhús fyrir eldisfisk á Patreksfirði Arnarlax og Vesturbyggð hafa undirritað viljayfirlýsingu um uppbyggingu hátæknivinnsluhúss fyrir eldisfisk í Vesturbyggð. Áætlað er að um 100 störf skapist með nýju fiskvinnslunni og gert ráð fyrir að hægt verði að vinna allt að 80 þúsund tonn af eldisfiski í húsinu. Viðskipti innlent 13.5.2022 18:23
Stöndum með íbúalýðræði Mikið hefur verið fjallað um áætlanir um fiskeldi í Seyðisfirði á undanförnum misserum. Ekki er laust við að ýmsum íbúum Múlaþings, Seyðfirðingum sérstaklega, sé misboðið hvernig aðdragandi þessa máls hefur verið. Skoðun 13.5.2022 14:11
Gróðahyggjan má ekki ráða öllu Takk fyrir VG í Múlaþingi að styðja okkur, sem erum andvíg laxeldi í Seyðisfirði. Þingmaður VG í kjördæminu er á sömu skoðun. Nú þurfum við formann VG og forsætisráðherra líka í liðið. Við getum ekki látið fólk standa á Austurvelli út af öllum málum, sem eru afgreidd í bakherbergjum í skjóli nætur. Skoðun 13.5.2022 10:50
„Firðinum er vonandi ekki mikil hætta búin“ Frambjóðandi VG í Múlaþingi telur andstöðu Seyðfirðinga við fyrirhugað fiskeldi fordæmalausa á landsvísu. Þá hafi bæjarbúar sýnt að þeir séu færir um atvinnusköpun með öðrum leiðum. Heimastjórnarmaður telur andstöðuna ofmetna og segir eldið ómissandi fyrir uppbyggingu. Innlent 12.5.2022 23:24
Tekjur Arnarlax meira en tvöfölduðust á fyrstu þremur mánuðum ársins Rekstrartekjur Icelandic Salmon, móðurfélag Arnarlax sem er stærsta fiskeldisfyrirtæki landsins, námu 37,1 milljónum evra, jafnvirði um 5,2 milljarða íslenskra króna, á fyrsta fjórðungi þessa árs og jukust um 114 prósent frá sama tímabili á árinu 2021. Rekstrarhagnaður félagsins (EBIT) var 9,5 milljónir evra borið saman við 400 þúsund evrur á sama fjórðungi í fyrra. Innherji 12.5.2022 11:43
Hlutafé fiskeldisfélags Samherja aukið um þrjá og hálfan milljarð Um þriggja og hálfs milljarðs króna hlutafjáraukning Samherja fiskeldis ehf. er sögð verða nýtt til að byggja upp tilraunaverkefni í Öxarfirði og framkvæmdir við Reykjanesvirkjun. Fyrrverandi forstjóri stærsta fiskeldisfyrirtækis heims er á meðal fjárfesta og tekur sæti í stjórn. Viðskipti innlent 12.5.2022 08:45
Laxeldi í Seyðisfirði má hindra! Nýverið, sjö árum eftir upphaf laxeldisáforma í Seyðisfirði héldu forsvarsmenn eldisins loks upplýsingafund um sín áform. Þá voru 15 mánuðir síðan sveitarstjóri Múlaþings tók við undirskriftum 55% Seyðfirðinga sem mótmæltu laxeldinu afdráttarlaust. Skoðun 11.5.2022 07:45
Andri og Birgir með helmingshlut í félagi sem fjárfestir í fiskeldi Eignarhaldsfélagið ÍV SIF Equity Farming (ÍSEF), sem var stofnað í fyrra og hefur það meginmarkmiði að byggja upp eignasafn í fiskeldi og tengdri starfsemi, sótti sér samtals 1.450 milljónir króna frá innlendum fjárfestum til að fjármagna fyrstu tvær fjárfestingar félagsins á árinu 2021. Innherji 9.5.2022 17:31
Hvar er íbúalýðræðið í Múlaþingi? Það var sorglegt að hlusta á svör núverandi meirihlutaflokka í Sveitarstjórna Múlaþings, við spurningu á framboðsfundi um stuðning við laxeldi í Seyðisfirði. Skoðun 9.5.2022 10:30
Með sterkar skoðanir fyrir kosningar: „Laxeldi í bæinn og ekkert múður með það“ Karlarnir á bensínstöðinni vilja fiskeldi og atvinnutækifæri en konurnar á hjúkrunarheimilinu vilja búa í snyrtilegasta og fallegasta bæ á Vestfjörðum. Við kíktum til Bolungarvíkur og tókum púlsinn á bæjarbúum fyrir kosningar. Innlent 5.5.2022 08:02
Þurfa að tæma innanverðan Reyðarfjörð af laxi vegna blóðþorrans Laxar Fiskeldi í samvinnu við Matvælastofnun hafa virkjað aðgerðaráætlun með tilliti til slátrunar og tæmingu allra kvía í innanverðum Reyðarfirði eftir að blóðþorri (ISA-veira) greindist í einum eldislaxi í kví félagsins. Innlent 29.4.2022 11:38
Falleinkunn fyrirhugaðs fiskeldis Ég get ekki á mér setið eftir að hafa lesið ýmis skrif um fiskeldi. Nei, fiskeldi er svo sannarlega engin töfralausn fyrir Seyðisfjörð og alls ekki tækifæri, því það stefnir í hættu atvinnuuppbyggingu íbúanna síðustu áratugina. Skoðun 5.4.2022 08:31
Um hænsaeldi í loftbelgjum Í sveitarfélagi nokkru stendur til að setja upp 39 staðbundna loftbelgi af stærstu gerð, alvöru zeppelinför. Tilgangurinn með uppsetningunni er að rækta hænsni á prikum inni í þeim. Lífmassi fiðurfésins er allt að 10.000 tonn og verða tekjur fyrirtækisins sem stendur fyrir framtakinu umtalsverðar enda er fast sótt á leyfisveitingar á landsvísu. Skoðun 29.3.2022 15:01
Íbúalýðræði og stórlaxar á Austurlandi Heil 55% Seyðfirðinga mótmæltu áformum um laxeldi í opnum sjókvíum í Seyðisfirði. Sumir kjörnir fulltrúar Múlaþings tjáðu auðmýkt sína gagnvart þeirri virku lýðræðistilraun með því að véfengja að undirritendur væru allir Seyðfirðingar og svo langt var gengið að vara við því að hlusta á mótmælendur, fyrrnefndan hreinan meirihluta, umfram hina. Skoðun 29.3.2022 14:01
Hvar eru þingmenn Norðausturlands? Fréttir síðustu daga og vikna af laxeldi á Austurlandi eru miður skemmtilegar. Varðandi Stöðvarfjörð eru gróðahyggjumenn að ráðast inn í samfélagið í annað sinn. Kambaröstin var seld ónefndum aðila, sem fór á endanum með allt í burtu. Skipið var síðar selt til Namibíu. Allir vita framhaldið. Skoðun 29.3.2022 08:31
Fiskeldi í Seyðisfirði – töfralausn eða tímaskekkja? Ég held að það sé rétt að byrja á að fara yfir nokkrar staðreyndir um fiskeldi í Seyðisfirði. Þetta eldi sem nú um ræðir er ekki nýtt af nálinni. Ferlið hefur verið langt og strangt Skoðun 28.3.2022 20:00
Sauðfjárbóndinn segir snilld að hafa kost á annarri vinnu Stærstu hús sem sést hafa í Kelduhverfi eru risin á jörðinni Lóni vestast í sveitinni. Þar er fyrirtækið Rifós að byggja upp seiðaeldisstöð sem orðin er stærsti vinnustaður sveitarinnar og veitir meðal annars sauðfjárbændum kærkomna búbót meðfram búskapnum. Innlent 22.3.2022 23:13
Segir það illa nýtta fjárfestingu að hafa Dettifossveg lokaðan Hinn nýi Dettifossvegur nýtist atvinnulífi á Norðausturlandi ekki sem skyldi þar sem hann er ekki mokaður á veturna. Fulltrúi fiskeldisfyrirtækis í Öxarfirði, sem þarf að koma afurðum í skip á Austfjörðum í hverri viku, segir það illa nýtta fjárfestingu að hafa veginn lokaðan. Innlent 21.3.2022 22:23
Brýn nauðsyn að Kópasker byggist upp sem samfélag en ekki verbúðir „Já, nú er uppgangur. Fiskeldisstöðvar að rísa. Það er bara frábært,“ segir Björn Guðmundur Björnsson, kaupmaður á Kópaskeri. „Já, þetta er afar jákvætt. Þetta er afar mikilvæg stoð fyrir þetta þorp hérna. Þetta er bara hrein viðbót,“ segir Björn Víkingur Björnsson, framkvæmdastjóri Fjallalambs á Kópaskeri. Innlent 21.3.2022 12:20
Stórslys í laxeldi engum að kenna Hvað þarf eiginlega að gerast til að MAST telji að ekki sé allt með felldu? Skoðun 19.3.2022 13:01
Laxadauða í Dýrafirði megi rekja til ýmissa utanaðkomandi þátta Dauða meira en 2.400 tonna af laxi laxeldisins Arctic Sea Farm í Dýrafirði má rekja til ýmissa utanaðkomandi þátta, þar á meðal stærðar fiskanna, krónískrar hjarta- og vöðvabólgu og lágs sjávarhita. Innlent 18.3.2022 08:34