Heilbrigðismál
39 40 41 42 43 44 45 46 47 … 213 ›
Klókir markaðsaðilar fá ráðherra til að klóra sér í kollinum Heilbrigðisráðherra segir það mikið áhyggjuefni hversu margir landsmenn neyta nikótínpúða en vörurnar höfða meðal annars til barna og unglinga. Um sé að ræða snúna baráttu þar sem markaðsaðilar séu mjög séðir og þróa sífellt nýjar vörur. Nýtt regluverk gefi aukin færi. Innlent 15.4.2023 22:02
„Ég veit ekki hvernig ég verð eftir fimm ár“ „Ef ég hefði fæðst ellefu mánuðum fyrr hefði ég verið sautján ára þegar lyfið var samþykkt hér á landi árið 2018 og þá væri ég á lyfinu núna,“ segir Þorsteinn Sturla Gunnarsson, 23 ára leikstjóri og handritshöfundur og einn ellefu einstaklinga á Íslandi með vöðva- og taugahrörnunarsjúkdóminn Spinal Muscular Atrophy (SMA), sem fá ekki lyf við sjúkdómnum. Innlent 15.4.2023 14:00
Þjóðþekktum flett upp í lyfjagátt án tilefnis Dæmi eru um það að starfsfólk apóteka fletti upp þjóðþekktu fólki í lyfjagáttinni, miðlægum gagnagrunni sem heldur utan um lyfjaávísanir fólks, án nokkurs tilefnis. Innlent 15.4.2023 07:54
Tugprósenta munur á tannlæknaþjónustu og gjaldskrár ekki alltaf sýnilegar Tugprósenta munur er á verði tannlæknaþjónustu og ekki eru allar gjaldskrár aðgengilegar á netinu. Þetta kemur fram í óformlegri verðkönnun Vísis hjá tuttugu tannlæknastofum. Neytendur 15.4.2023 07:01
„Þetta þarf að vera faglegt mat“ Heilbrigðisráðherra segir að notkun lyfs við taugahrörnunarsjúkdómnum spinal muscular athrophy (SMA) verði ekki samþykkt nema að undangengnu faglegu mati. Nauðsynlegt sé að tryggja bæði öryggi notkunar lyfsins og að nytsemi hennar sé óyggjandi. Innlent 14.4.2023 23:45
Oft erfitt samtal um hvort meðferð sé vegna fíknar eða í læknisfræðilegum tilgangi Um fjörutíu prósent heimilislækna hafa orðið fyrir hótunum eða ógnunum í starfi og oftast er það vegna lyfjaávísana. Formaður félags íslenskra heimilislækna segir geta verið erfitt að greina hvort um fíkn sé að ræða eða læknisfræðileg vandamál. Innlent 14.4.2023 22:07
Ráðherraábyrgð fyrir skarðabörn Börnin okkar, skarðabörn, virðast aldrei ætla að fá það pláss í kerfinu sem þau eiga rétt á. Skoðun 14.4.2023 20:01
Skoða hvort fullorðnir með SMA geti fengið langþráð lyf: „Ég reikna með að við getum unnið þetta hratt“ Heilbrigðisyfirvöld skoða hvort tilefni sé til að leyfa fullorðnum með SMA hér á landi að fá lyf við sjúkdóminum í kjölfar ákvörðunar Norðmanna þess efnis. Hópur sjúklinga hefur undanfarið lýst langri baráttu við kerfið og kallað eftir aðgerðum. Heilbrigðisráðherra reiknar með að hægt verði að vinna málið hratt, enda ákallið sterkt. Innlent 13.4.2023 19:47
Íslenskt fyrirtæki brautryðjandi í baráttunni við fjölónæmar bakteríur Íslenska lyfjaþróunarfyrirtækið Akthelia er brautryðjandi í rannsóknum sem leitt gætu til byltingar í baráttunni við bakteríur sem í vaxandi mæli verða ónæmar fyrir sýklalyfjum. Evrópusambandið hefur styrkt rannsóknir fyrirtækisins um tæpan milljarð sem kom á elleftu stundu því horfur voru á að loka þyrfti rannsóknarstofu fyrirtækisins vegna fjárskorts. Innlent 13.4.2023 19:32
Geðlæknir ávísaði sjúklingi oxýkódóni og morfíni í kílóa vís Heilbrigðisráðuneytið hefur staðfest ákvörðun Embættis landlæknis um að svipta geðlækni á Íslandi réttindum til að ávísa ópíóðalyfjum. Læknirinn er talinn hafa ávísað 2,1 kílói af oxýkódóni og 1,5 kílói af morfíni til sjúklings á fjögurra ára tímabili. Innlent 13.4.2023 13:05
Samþykkið lyf við Spinal Muscular Atrophy fyrir 18 ára og eldri! Kæri Willum Þór. Við erum ellefu einstaklingar sem erum með taugahrörnunarsjúkdóminn Spinal Muscular Atrophy (SMA) á ólíkum aldursskeiðum sem eigum það öll sameiginlegt að eiga okkur draum um lyf við sjúkdómi sem hefur mikil áhrif á vöðvastyrk, færni og hreyfigetu. Skoðun 13.4.2023 10:00
Færði slökkviliðinu þakkir og bangsa handa öðrum börnum Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu barst hjartnæm kveðja í gær frá stúlku sem flytja þurfti með sjúkrabíl fyrir nokkru. Innlent 13.4.2023 07:03
Ríkið samdi við hjúkrunarfræðinga Fulltrúar Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og íslenska ríkisins skrifuðu undir nýjan kjarasamninga í dag. Samningurinn er sagður tryggja launahækkanir og kjarabætur fyrir hjúkrunarfræðinga sem starfa hjá ríkinu næsta árið. Innlent 12.4.2023 21:55
„Sjúkdómurinn eltir mig og fjölskyldu mína hvert sem við förum“ „Ég er ekki sjúkdómurinn. Ég er með þennan sjúkdóm en ég er hann ekki. Ég reyni að lifa eins og ég get. Þó hann sé að naga mig þá læt ég hann ekki taka yfir líf mitt,“ segir Magnús Þorkelsson, fyrrum skólameistari við Flensborgarskóla en hann greindist með Parkinson sjúkdóminn fyrir fimmtán árum. Innlent 12.4.2023 20:00
Djammreykingar mun lífseigari en dagreykingar Þrátt fyrir að dagreykingafólki á Íslandi hafi fækkað úr rúmlega 30 prósent í 6 á síðustu 30 árum hefur hlutfall djammreykingafólks, eða fólks sem reykir sjaldnar en daglega, haldist nokkuð stöðugt. Hefur hlutfallið rokkað frá um 3 í 6 prósent um árabil og engin fylgni er milli þess og lækkandi hlutfalls reykingafólks. Innlent 12.4.2023 07:01
MS segir koma til greina að endurskoða markpósta til foreldra Björn S. Gunnarsson, vöruþróunarstjóri hjá Mjólkursamsölunni, segir koma til greina að endurskoða þá aðferðafræði að senda markpóst heim til einstaklinga sem hafa nýverið eignast barn. „Við viljum auðvitað ekki valda fólki ama með þessum markpósti,“ segir hann í svörum við fyrirspurn fréttastofu. Viðskipti innlent 12.4.2023 06:41
Óhugnanlegt og erfitt að finna líkamann hrörna meðan lyf eru í boði Kona sem fær ekki lyf við taugahrörnunarsjúkdóminum SMA sökum aldurs segir stefnu íslenskra yfirvalda óskiljanlega en ljóst sé að kostnaður ráði för. Ákvörðun Norðmanna í dag um að leyfa fullorðnum að fá lyf við sjúkdóminum hljóti að hreyfa við íslenskum yfirvöldum. Það eitt að geta stöðvað sjúkdóminn, þó hún fengi enga færni til baka, væri guðsgjöf. Innlent 11.4.2023 19:32
Áskorun til heilbrigðisráðherra Á dögunum vakti Jóhann Páll Jóhannsson þingmaður athygli heilbrigðisráðherra á því að nýir foreldrar á Íslandi sitja ekki allir við sama borð þegar kemur að heimavitjunum ljósmæðra, eða því sem kallað er heimaþjónusta í sængurlegu. Skoðun 11.4.2023 16:01
9,9 prósent innlagðra á geðdeildum fengu nauðungarlyf 2014 til 2018 Á árunum 2014 til 2018 fengu 9,9 prósent einstaklinga sem lagðir voru inn á geðdeildir Landspítalans nauðungarlyf, flestir einu til fjórum sinnum. Um er að ræða 400 einstaklinga, sem flestir þjáðust af geðrofssjúkdómi. Innlent 11.4.2023 10:29
Liðskiptiaðgerðir og réttindi sjúklinga Á dögunum bárust fréttir af því að Sjúkratryggingar Íslands höfðu samið um framkvæmd liðskiptiaðgerða við tvö einkarekin fyrirtæki á sviði heilbrigðisþjónustu. Um er að ræða fyrirtækin Klíníkina við Ármúla og Cosan slf. sem aðsetur hefur í Handlæknastöðinni Glæsibæ. Skoðun 10.4.2023 14:01
„Virðingin sem hann fékk var núll“ Barnsfaðir Guðbjargar Hrafnhettu Ragnarsdóttur, Þorvaldur Þórarinsson, lést úr briskrabbameini í mars 2019. Átta mánuðum áður hafði hann leitað til heimilislæknis sem taldi ekkert ama að og ráðlagði Þorvaldi að slaka á og njóta. Aðstandendur Þorvaldar sendu inn kvörtun til Landlæknis árið 2021 en þau telja að krabbameinið hefði greinst mun fyrr ef ekki hefði verið fyrir vanrækslu umrædds heimilislæknis. Innlent 10.4.2023 13:01
Lífið með Parkinson: „Þetta er ekki minningagrein“ „Þetta er ekki minningagrein. Mér finnst mikilvægt að hafa þetta skemmtilegt líka,“ segir Magnús Bragason þegar viðtalinu er að ljúka. Áskorun 9.4.2023 07:00
Ógilding markaðsleyfis þungunarrofslyfs vekur ugg Demókratar eru æfir vegna ógildingar dómara í Texas í Bandaríkjunum á markaðsleyfi þungunarrofslyfsins mifepresone. Um sé að ræða stórhættulegt fordæmi. Erlent 8.4.2023 23:43
Hlutu hæsta styrk til að rannsaka byltingu í greiningu svefnsjúkdóma Íslenska hátæknifyrirtækið Nox medical vinnur að nýrri gervigreindaraðferð sem gæti umbylt svefnrannsóknum. Fyrirtækið hlut hæsta styrkinn úr nýsköpunarsjóði námsmanna í ár. Innlent 8.4.2023 22:43
Spennandi að fylgjast með þróun bóluefna gegn krabbameini Íslenskur krabbameinslæknir segir fréttir um að bóluefni við krabbameini gætu litið dagsins ljós innan fárra ára vera spennandi. Sagan sýni þó að rannsóknir taki oftast lengri tíma en áætlað er. Innlent 8.4.2023 15:46
Dómari afturkallar leyfi FDA fyrir þungunarrofslyfi Dómari í Texas í Bandaríkjunum hefur ógilt samþykki Matvæla- og lyfjastofnunar (FDA) Bandaríkjanna um markaðsleyfi fyrir þungunarrofslyfið mifepristone. Um er að ræða fyrsta skiptið sem dómstóll hlutast til um leyfisveitingu stofnunarinnar. Erlent 8.4.2023 08:28
Bóluefni við krabbameini sögð klár innan nokkurra ára Bóluefni við krabbameini, hjartveiki, lungnasjúkdómum og fjölda annarra sjúkdóma gætu verið tilbúin innan nokkurra ára, að sögn lyfjasérfræðinga. Framfarirnar sem náðust við þróun Covid-bóluefnisins hafa mikla þýðingu við þróun þessara bóluefna. Erlent 7.4.2023 23:09
Löng bið í langtímahúsnæði fyrir neyslurými Biðin eftir neyslurými í langtímahúsnæði verður líklegast talin í mánuðum en ekki vikum. Þetta segir formaður velferðarráðs. Neyslurýmið hafi sannað gildi sitt og heilbrigðisyfirvöld verði að sjá til þess að þessi mikilvæga þjónusta verði í boði Innlent 5.4.2023 00:00
Fjörutíu prósent karla 18 til 24 ára nota nikótínpúða daglega Tæplega fjörutíu prósent karla á aldrinum 18 til 24 ára notuðu nikótínpúða daglega á síðasta ári og hefur þeim fjölgað mikið á milli ára. Tannlæknir hefur áhyggjur af hraðri þróun og segir að hægt sé að gera betur í forvörnum. Dæmi séu um að fólk sofi með nikótínpúða uppi í sér. Innlent 4.4.2023 14:56
„Þetta er sjúkdómur sem getur tekið ungt fólk“ „Við eigum öll að nota sólarvörn allt árið, líka um hávetur þegar sólin skín ekki,“ segir Jenna Huld Eysteinsdóttir húðsjúkdómalæknir í viðtali í Bakaríinu. Lífið 4.4.2023 13:00