Georgía
1 2 ›
Dælir peningum í landsliðsmenn eftir sigurinn sögulega Bidzina Ivanishvili, fyrrverandi forsætisráðherra Georgíu hefur ákveðið að láta því sem nemur rétt tæpum einum og hálfum milljarði íslenskra króna af hendi til karlaliðs Georgíu í fótbolta eftir sögulegan sigur liðsins á Portúgal á Evrópumótinu í fótbolta í gær. Fótbolti 27.6.2024 16:46
Ógiltu neitunarvald forseta til að koma fjölmiðlalögum í gegn Stjórnarflokkur Georgíu nýtti aukinn meirihluta sinn á þingi til þess að ógilda neitunarvald sem forseti landsins beitti á umdeild fjölmiðlalög í dag. Tugir þúsunda manna hafa mótmælt lögunum undanfarnar vikur. Erlent 28.5.2024 15:38
Beitti neitunarvaldi gagnvart umdeildum fjölmiðlalögum Forseti Georgíu beitti í dag neitunarvaldi gegn umdeildum fjölmiðlalögum sem samþykkt voru i þinginu í vikunni og komið hafa af stað mótmælaöldu í landinu. Erlent 18.5.2024 18:25
Telur ekki óeðlilegt að sýna mótmælendum samstöðu Utanríkisráðherra telur ekki óeðlilegt að sýna georgískum mótmælendum umdeildra laga samstöðu. Hann furðar sig á misvísandi yfirlýsingum forseta georgíska þingsins eftir fund sendinefndar ráðherrans með honum. Innlent 17.5.2024 06:01
Spyr hvort eðlilegt sé að ráðherrar taki þátt í erlendum mótmælum Sigmundur Davíð Gunnlaugsson spurði forsætisráðherra að því hvort það hafi verið með vilja og vitund ríkisstjórnarinnar, að utanríkisráðherra hafi farið til Georgíu og tekið þátt í mótmælum. Bjarni sagði Ísland og aðrar þjóðir sem þarna væru ekki taka afstöðu gegn þarlendum stjórnvöldum. Innlent 16.5.2024 17:33
Þórdís í sendinefnd til Georgíu vegna umdeildra laga Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra, lýsir áhyggjum af því að nýsamþykkt lög um félagasamtök og fjölmiðla í Georgíu hafi neikvæð áhrif á stöðu landsins í hinum frjálsa heimi. Hún er stödd í Georgíu ásamt utanríkisráðherrum Eystrasaltsríkjanna. Innlent 15.5.2024 13:51
„Rússnesku lögin“ samþykkt í Georgíu Georgíska þingið samþykkti í dag umdeilt frumvarp í anda rússneskra laga sem hafa verið notuð til þess að bæla niður andóf og þagga niður í fjölmiðlum. Þúsundir manna mótmæltu frumvarpinu við þinghúsið á meðan atkvæðagreiðsla fór fram. Erlent 14.5.2024 12:42
„Rússneskum lögum“ hraðað áfram þrátt fyrir hávær mótmæli Georgísk þingnefnd afgreiddi umdeild „rússnesk lög“ á rétt rúmri mínútu í morgun þrátt fyrir fjölmenn mótmæli við þinghúsið um helgina sem héldu áfram í dag. Mikil lögregluviðbúnaður er við þinghúsið og frásagnir eru um harkaleg átök lögreglu og mótmælenda. Erlent 13.5.2024 11:37
Mótmælin gegn „rússnesku“ lögunum stækka enn Gífurlega umfangsmikil mótmæli fóru fram í Tíblisi í Georgíu í gær. Þar hafa fjöldi mótmælenda komið saman á undanförnum vikum vegna umdeildra laga sem yfirvöld vinna að. Mótmælin virðast hafa náð nýjum hæðum í gærkvöldi. Erlent 12.5.2024 08:05
Umfangsmikil mótmæli vegna „rússneskra“ laga í Georgíu Umfangsmikil mótmæli hafa átt sér stað í Georgíu þar sem yfirvöld vinna að því að samþykkja ný og mjög svo umdeild lög. Mótmælendum hefur verið mætt af mikilli hörku og hefur komið átaka í Tíblisi bæði fyrir utan þinghúsið og þar inni. Erlent 2.5.2024 15:09
Guðni fékk glæsilegar móttökur í Georgíu Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands er mættur til Georgíu þar sem hann fékk höfðinglegar móttökur í Tbilisi frá Salome Zourabichvili forseta Georgíu. Innlent 5.3.2024 14:48
Úkraínu boðið að hefja aðildarviðræður við ESB Leiðtogaráð Evrópusambandsins bauð í dag Úkraínu og Moldóvu að hefja formlegar viðræður um inngöngu í sambandið. Það kom fram á fundi leiðtoganna sem stendur nú yfir í Brussel. Erlent 14.12.2023 19:08
Báðust afsökunar á að hafa dregið rússneskan aðdáanda á svið Bandaríska hljómsveitin The Killers hefur beðið aðdáendur sína afsökunar eftir að sveitin dró rússneskan aðdáenda á svið á tónleikum sínum í Georgíu við Svartahaf síðastliðinn þriðjudag. Lífið 17.8.2023 16:41
Fallið frá fyrirhugaðri löggjöf um „erlenda aðila“ Draumaflokkurinn, stærsti þingflokkur Georgíu, hefur ákveðið að draga til baka frumvarp um „erlenda aðila“ eftir hörð mótmæli. Flokkurinn sagðist í yfirlýsingu vilja draga úr átökum í þjóðfélaginu. Erlent 9.3.2023 07:43
Hyggja á lagasetningu sem ESB segir ósamræmanlega gildum sambandsins Þúsundir mótmælenda söfnuðust saman í Tbilisi, höfuðborg Georgíu, í dag til að mótmæla fyrirhuguðum lögum sem gagnrýnendur segja ógna málfrelsi í landinu. Óeirðarlögregla var kölluð til og beitti vatnsbyssum og piparúða gegn mótmælendum. Erlent 8.3.2023 11:03
Mótmælendur ruddust inn í þinghús Georgíu Umfangsmikil mótmæli hafa átt sér stað í Tiblisi, höfuðborg Georgíu, í kvöld. Mótmælendur hafa grýtt lögregluþjóna, kastað bensínsprengjum að þeim og reynt að ryðja sér leið inn í þinghúsið. Öryggissveitir hafa meðal annar beitt stórum vatnsbyssum og táragasi gegn mótmælendum. Erlent 7.3.2023 21:32
Rússar flýi herkvaðningu Pútíns Mikil örtröð er sögð hafa myndast á landamærum Rússlands í kjölfar herkvaðningar Pútíns. Mikill fjöldi karlmanna bíði í bílaröð á landamærunum og freisti þess að komast hjá því að vera skikkaðir í herinn. Erlent 23.9.2022 19:59
Heimurinn farinn að átta sig á að bregðast þurfi við: „Þetta gengur lengra en tvíhliða stríð og smáar skærur“ Sendiherra Georgíu gagnvart Íslandi segir mikilvægt að Georgía fái aðild að Atlantshafsbandalaginu, ekki síst í ljósi ástandsins í Úkraínu. Georgíumenn finni til með Úkraínumönnum á hátt sem aðeins þeir sem hafa lent í innrásarhernum geta gert. Ljóst sé að fleiri lönd séu í hættu takist ekki að stöðva Rússa. Erlent 2.5.2022 20:01
Styrkja tengslin við Ísland og ræða aðild að NATO í ljósi stríðsins Georgísk sendinefnd er nú stödd á hér á landi til að styrkja tengslin milli landanna og ræða aðild Georgíu að Atlantshafsbandalaginu. Formaður utanríkismálanefndar þingsins þar í landi segir það mikilvægt, ekki síst í ljósi stöðunnar í Úkraínu. Innlent 1.5.2022 23:01
Forsætisráðherrann segir af sér eftir handtöku stjórnarandstöðuleiðtoga Giorgi Gakahria, forsætisráðherra Georgíu, hefur sagst ætla að segja af sér embætti eftir að leiðtogi stjórnarandstöðu landsins var handtekinn og úrskurðaður í gæsluvarðhald. Gakahria segist grípa til þessa ráðs í tilraun til að koma í veg fyrir frekari klofning meðal þjóðarinnar. Erlent 18.2.2021 08:09
Georgíumenn mótmæla niðurstöðu þingkosninga Þúsundir Georgíumanna hafa flykkst út á götur Tbilisi, höfuðborgar landsins, til að mótmæla niðurstöðum þingkosninga sem fóru fram þann 31. október síðastliðinn. Erlent 8.11.2020 17:41
Evrópusambandið opnar landamæri fyrir fjórtán ríkjum Evrópusambandið tilkynnti í dag að landamæri aðildaríkjanna yrðu opnuð fyrir ferðamönnum á morgun, 1. júlí, frá fjórtán löndum en Bandaríkjamenn verða ekki meðal þeirra sem fá inngöngu í Evrópu. Erlent 30.6.2020 15:11
Sóttvarnaryfirvöld í Georgíu óttast að nú verði veldisvöxtur í útbreiðslu kórónuveirunnar vegna páskahátíðar Sóttvarnaryfirvöld í Georgíu óttast að nú verði veldisvöxtur í útbreiðslu kórónuveirunnar þar í landi vegna páskahátíðar. Sóttvarnarlæknir grátbiður íbúa um að iðka trú sína heima og sækja ekki kirkjur. Innlent 19.4.2020 21:01
Bretar og Bandaríkjamenn saka Rússa um stórfelldar netárásir á Georgíu Bresk stjórnvöld saka leyniþjónustu rússneska hersins (GRU) um að hafa staðið að baki stórfelldum netárásum á Georgíu í fyrra. Árásirnar eru sagðar hafa gert yfir tvö þúsund vefsíður óaðgengilegar þar í landi. Erlent 20.2.2020 18:36
Georgíska fjölskyldan flutt úr landi í morgun Georgísku hjónin, sem eiga barn sem er fætt hér á landi og annað sem er jarðað hér, voru flutt úr landi í morgun. Þetta kemur fram í skriflegu svari frá Útlendingastofnun við fyrirspurn fréttastofu. Innlent 4.12.2019 12:05
Innanríkisráðherrann verði nýr forsætisráðherra Mamuka Bakhtadze greindi frá því í gær að hann hugðist hætta sem forsætisráðherra Georgíu eftir um ár í embætti. Erlent 3.9.2019 10:05
Vilja geta heimsótt leiði sonar síns Hjón frá Georgíu berjast fyrir að fá dvalarleyfi hér á landi svo þau geti heimsótt leiði sonar síns í Gufuneskirkjugarði. Þau eignuðust annað barn janúar og segja að samkvæmt lögum megi ekki vísa barni úr landi sem hefur búið hér óslitið frá fæðingu. Hjónunum hefur alls þrisvar verið synjað um bæði hælis-og dvalarleyfi. Innlent 5.8.2019 16:58
Þúsundir mótmæltu flugbanni Rússa Þúsundir mótmælenda komu saman þriðja daginn í röð í Tblisi, höfuðborg Georgíu, til þess að mótmæla afskiptum Rússa af málefnum Georgíu. Vladimír Pútín, forseti Rússlands, tilkynnti á föstudag að búið væri að aflýsa öllum flugferðum frá Rússlandi til Georgíu sem er vinsæll áfangastaður rússneskra ferðamanna. Erlent 23.6.2019 14:31
Putin bannar flug á milli Rússlands og Georgíu Vladimir Putin, forseti Rússlands, hefur tímabundið bannað georgískum flugfélögum að fljúga til Rússlands en spenna á milli ríkjanna tveggja hefur farið vaxandi undanfarið. Erlent 22.6.2019 18:09
Georgíumenn kalla eftir kosningum Georgíumenn mótmæltu fyrir utan þinghúsið í Tbilisi, höfuðborgar landsins, annan daginn í röð og kölluðu eftir breytingum í stjórn landsins, afsögn innanríkisráðherra og nýrra þingkosninga. Erlent 21.6.2019 21:07