
Líbía

Sagður hafa þegið töskur fullar fjár frá Gaddafi
Réttarhöld hefjast í dag yfir Nicolas Sarkozy, fyrrverandi forseta Frakklands, en hann er sakaður um að hafa þegið milljónir evra í ólögleg kosningaframlög frá ríkisstjórn Muammar Gaddafi, þáverandi leiðtoga Líbíu, árið 2007.

Nígería ætlar að sniðganga leikinn gegn Líbíu
William Troost-Ekong, fyrirliði nígeríska fótboltalandsliðsins, segir að það ætli að sniðganga leikinn gegn Líbíu vegna illrar meðferðar. Leikmenn Nígeríu hafa verið fastir á flugvelli í Líbíu í tæpan sólarhring.

Landsliði Nígeríu haldið í gíslingu á flugvelli án matar og drykkjar
Leikmenn nígeríska landsliðsins segja að þeim hafi verið haldið í gíslingu á flugvelli í Líbíu í aðdraganda leiks liðanna í undankeppni Afríkukeppninnar í fótbolta.

Sextíu talin látin eftir að bátur sökk í Miðjarðarhafi
Óttast er að fleiri en sextíu hafi drukknað eftir að bátur sökk undan ströndum Líbíu. Forsvarsmenn Alþjóðafólksflutningastofnunarinnar IOM segir að þungar öldur hafi skollið á bátinn með fyrrgreindum afleiðingum.

Segir það rangt að fólki hafi verið sagt að halda sig heima
Íbúar í hafnarborginni Derna segjast engar viðvaranir hafa fengið áður en stormur skall á síðasta sunnudag. Allt að ellefu þúsund eru látin og þúsundir enn týnd. Embættismenn segjast hafa skipað rýmingu og varað fólk við.

Leitin að sökudólgum hafin í Líbíu
Fimm dögum eftir að flóð léku íbúa norðausturhluta Líbíu grátt eru lík enn að finnast á víð og dreif. Leitin að sökudólgum er hafin og Sameinuðu þjóðirnar segja að hægt hefði verið að koma í veg fyrir hamfarirnar.

Óttast að allt að tuttugu þúsund hafi látið lífið í Derna
Nú er óttast að átján til tuttugu þúsund manns hafi látið lífið í flóðunum í líbísku borginni Derna um helgina.

Fjórir leikmenn látnir í flóðinu
Knattspyrnusamband Líbýu staðfesti andlát fjögurra knattspyrnumanna í einu mannskæðasta flóði aldarinnar.

Fleiri en tvö þúsund lík fundin eftir flóðin í Líbíu
Björgunar- og leitarflokkar hafa fundið meira en tvö þúsund lík í rústum borgarinnar Dernu í austanverðri Líbíu. Yfirvöld óttast að tala látinna gæti náð fimm þúsund þegar uppi er staðið.

Þúsundir látin eða týnd og heilt hverfi horfið í haf
Um tíu þúsund eru týnd eða þúsundir látin í kjölfar hamfaraflóða í borginni Derna í Líbíu. Stormurinn Daníel gekk yfir landið á sunnudag upp ströndina frá Miðjarðarhafinu.

Síðustu dagar Prígósjíns: Kepptist við að halda veldi sínu saman
Rússneski auðjöfurinn Jevgení Prígósjín, sem stofnaði og fjármagnaði meðal annars málaliðahópinn Wagner Group, varði sínum síðustu dögum á flakki um heiminn og reyndi að halda lífi í viðskiptaveldi sínu í Afríku og Mið-Austurlöndum. Varnarmálaráðuneyti Rússlands beitti hann miklum þrýstingi og var að bola Wagner út.

Týnda úranið mögulega fundið
Hersveitir í austurhluta Líbíu segjast hafa fundið um tvö og hálft tonn af úrani sem leitað hafði verið. Alþjóðakjarnorkumálastofnunin (IAEA) hefur ekki staðfest fund hersveitanna.

Nokkur tonn af úrani horfin í Líbíu
Alþjóðakjarnorkumálastofunin (IAEA) segir að um tvö og hálft tonn af náttúrulegu úrani sem var geymt í Líbíu séu horfin. Rannsókn stendur yfir á hvernig það kom til að geislavirka efnið var fært og hvar það er niður komið.

Meintur Lockerbie-sprengjumaður framseldur til Bandaríkjanna
Líbískur fyrrverandi leyniþjónustumaður sem er ákærður fyrir að smíða sprengjuna sem grandaði farþegaþotu yfir skoska bænum Lockerbie árið 1988 er nú í haldi bandarískra yfirvalda. Hann verður framseldur til Bandaríkjanna þar sem hann verður látinn svara til saka.

Kokkur Pútíns játar að eiga Wagner
Rússneski auðjöfurinn Yevgeny Prigozhin hefur viðurkennt að hafa stofnað og eiga málaliðahópinn Wagner Group. Hann segist hafa stofnað hópinn eftir innrás Rússa í Úkraínu 2014 og með því markmiði að senda málaliða til austurhluta Úkraínu.

Óttast um öryggi barna í varðhaldi í Líbíu
UNICEF segir að 751 kona og 255 börn, þar á meðal fimm fylgdarlaus börn og 30 nýburar, séu meðal þeirra sem færð voru í varðhald í borginni.

Samkomulag um nýja bráðabirgðastjórn veitir vonarglætu
Líbíuþing hefur samþykkt bráðabirgðastjórn sem ætlað er að stjórna hinu stríðshrjáða landi fram að fyrirhuguðum þingkosningum í desember næstkomandi. Litið er á málið sem mikilvægt skref í þá átt að binda endi á áratug af vopnuðum átökum og glundroða í landinu.

Vopnahlé í Líbíu
Stríðandi fylkingar í Líbíu undirrituðu samkomulag um varanlegt vopnahlé í Sviss í dag.

Fjörutíu dagar á sjó og þrjár neitanir
Hópur flóttafólks er nú kominn í land á Ítalíu eftir að hafa varið yfir 40 dögum á sjó. Danska skipinu sem flutti hópinn var meinað að leggjast að landi í þremur ríkjum.

Sjóliðar ESB stöðvuðu eldsneytisflutning til Líbíu
Sjóliðar á vegum Evrópusambandsins fóru í dag um borð í tankskip sem var á leið til Líbíu. Áhöfn skipsins var meinað að sigla til Líbíu og skipað að breyta um stefnu, eftir að í ljós kom að skipið var notað til að flytja eldsneyti fyrir orrustuþotur.

Minnst 45 létust þegar bátur þeirra sprakk
Minnst 45 farendur og flóttamenn létust, þar af fimm börn, í mannskæðasta skipbroti við strendur Líbíu á þessu ári.

Segja Rússa hafa flutt fjölda orrustuþota til Líbíu
Rússar hafa, samkvæmt Bandaríkjunum, flutt orrustuþotur til Líbíu þar sem þær verða notaðar til að styðja sókn Líbíska þjóðarhersins (LNA) undir stjórn hershöfðingjans Khalifa Haftar.

Erdogan varar Evrópu við líbískri ógn
Recep Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands, varar við því að Evrópu muni stafa ógn af hryðjuverkasamtökum falli ríkisstjórn Líbíu í Trípólí sem Sameinuðu þjóðirnar viðurkenna sem lögmæta ríkisstjórn landsins.

Erdogan og Pútín ræða spennu í Miðausturlöndum
Forsetarnir tveir eru einnig sagðir ætla að ræða frið í Líbíu þangað sem Tyrkir sendu herlið á dögunum.

Tyrkir senda herlið til Líbíu
Recep Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands, segir tyrkneskt herlið haldið af stað til Líbíu. Markmið þeirra er að veita sitjandi ríkisstjórn Líbíu stuðning í baráttu sinni við uppreisnarhópa.

Á þriðja tug látin eftir loftárás á skóla í Líbíu
Minnst 28 eru látin og fleiri særðust eftir loftárás á herskóla í Tripoli, höfuðborg Líbíu.

Stefnir á að senda sveitir uppreisnarmanna til Líbíu
Recep Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands, stefnir á að senda sýrlenskar uppreisnarsveitir til Líbíu. Þar er þeim ætlað að aðstoða alþjóðlega viðurkennda starfsstjórn landsins gegn sveitum hershöfðingjans Khalifa Haftar.

Öfgahópar gætu sprottið upp í Líbíu
Bandaríkjaher óttast að tómarúm í Líbíu leiði af sér fleiri hryðjuverkahópa. Óöld hefur ríkt í landinu í að verða áratug en ekkert varð af friði eftir að Gaddafi var felldur. Mörg stórvelda heims hafa verið með puttana í átökunum.

Þrír starfsmenn Sameinuðu Þjóðanna létust í sprengingu í Líbíu
Fimm létu lífið eftir að bílsprengja sprakk í borginni Benghazi í Líbíu, þar á meðal þrír starfsmenn Sameinuðu þjóðanna og tveir aðrir sem voru meðlimir sendifararinnar á laugardag.

Flóttamönnum sem var bjargað við strendur Líbíu komu hafnar á Möltu í dag
Hópur flóttamanna sem var bjargað undan ströndum Líbíu á miðvikudag eru komnir í höfn á Möltu.