
Reykjavík

Steinunn og Guðmundur Ágúst íþróttafólk ársins í Reykjavík
Steinunn Björnsdóttir, handknattleikskona úr Fram og atvinnukylfingurinn Guðmundur Ágúst Kristjánsson úr GR eru íþróttakona og íþróttamaður ársins hjá Reykjavíkurborg árið 2020.

Beina sjónum sínum að Fóðurblöndunni vegna tíðrar ólyktar í Laugarneshverfi og nágrenni
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkurborgar hefur krafist þess að Fóðurblandan, sem staðsett er í Korngörðum í Reykjavík, grípi til aðgerða til að koma megi í veg fyrir að óþef leggi yfir nálæga byggð. Tilkynningum til borgaryfirvalda um vonda lykt á svæðinu hefur fjölgað mikið síðan haust. Forstjóri Fóðurblöndunnar segir enga breytingu hafa orðið í starfseminni sem skýri fjölgunina og kveðst vona að heilbrigðiseftirlitið sé í málinu ekki að hengja bakara fyrir smið.

Bruninn á Bræðraborgarstíg: Ekki hægt að bjarga þeim sem létust
Rannsakendur brunans á Bræðraborgarstíg telja líkur á að kveikt hafi verið í á tveimur stöðum í húsinu. Þeir telja að óháð því hvort um íkveikju var að ræða þá hafi fleiri samverkandi þættir haft áhrif á að eldsvoðinn varð jafn mannskæður og raun ber vitni.

Fundu fjölda hnífa og skotvopna á heimili manns í Reykjavík
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók mann í miðbæ Reykjavíkur um klukkan hálfátta í gærkvöldi. Er maðurinn grunaður um líkamsárás, eignaspjöll, fjársvik, brot á lyfjalögum og vörslu fíkniefna.

Fjöldi þekktra vill á framboðslista Samfylkingarinnar
Samfylkingin í Reykjavík sendi í dag frá sér lista af fólki sem býður sig fram til uppstillingar á framboðslistum Samfylkingarinnar í Reykjavík fyrir næstu Alþingiskosningar. Listinn er ekki endanlegur framboðslisti heldur gafst flokksmönnum tækifæri til að stinga upp á fólki sem gæti prýtt framboðslista samfylkingarinnar.

Þurfum við að óttast kuldabola?
Sumum brá í brún þegar Veitur virkjuðu viðbragðsáætlun hitaveitunnar nú á dögunum þegar útlit var fyrir mesta kuldakast í tæpan áratug. Sum höfðu áhyggjur af því að við hefðum ekki aðgang að nægilegum jarðhita og önnur óttuðust að við hjá Veitum stæðum okkur ekki í að byggja upp dreifikerfið.

„Ég upplifði að það væri ekki mikið úrval af fatnaði til fyrir mig í verslunum“
„Vörumerkið mitt svartbysvart er fullkomlega kynlaust fatamerki. Föt og aukahlutir eru handgerð af mér í Reykjavík. Allt í versluninni er unnið af mér eða makanum mínum Momo, sem er meðeigandi.“

Fjórum veitingastöðum veitt tiltal vegna sóttvarna
Lögregla heimsótti á annan tug veitingahúsa í gærkvöldi í eftirliti með sóttvörnum vegna Covid-19 og voru flestir með allt til fyrirmyndar. Veitingamenn fjögurra staða fengu tiltal þar sem bent var á hvað mætti gera betur.

Eldur kom upp í jólaskreytingu
Slökkviliðinu barst tilkynning um hugsanlegan eld í vesturbæ Reykjavíkur um klukkan átta í kvöld.

Samið við Icelandair um lágmarksflug milli Reykjavíkur og Eyja
Stjórnvöld hyggjast semja við Icelandair um lágmarksflug milli Reykjavíkur og Vestmannaeyja til 1. maí á næsta ári. Farnar verði að tvær ferðir í viku, fram og til baka, og er stefnt að því að flugið hefjist í næstu viku.

Sjúkrabíllinn of hár fyrir bílakjallarann í Hörpu
Sjúkrabíll sem sendur var í tónlistar- og ráðstefnuhúsið Hörpu nú síðdegis komst ekki leiðar sinnar vegna hæðar. Bíllinn var of hár fyrir bílakjallarann en minni bíll var sendur til að leysa hann af hólmi.

Harður árekstur á Kringlumýrarbraut
Harður árekstur tveggja bíla varð á gatnamótum Suðurlandsbrautar og Kringlumýrarbrautar á tólfta tímanum í dag. Einn var fluttur slasaður á slysadeild, samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu.

Landsbankinn með þriðjungshlut í Keahótelum eftir endurskipulagningu
Samkomulag hefur náðst um endurskipulagningu Keahótela sem er sagt tryggja félaginu stöðugan rekstrargrundvöll til ársins 2022. Í samkomulaginu felst að hluta skulda hefur verið breytt í hlutafé, að Landsbankinn eigi nú þriðjungs hlut í félaginu, og að núverandi eigendahópur hafi komið með nýtt fé inn í reksturinn. Þá hafi leigusalar gert samkomulag um veltutengdar leigugreiðslur, sem eru þó með ákveðnu lágmarksgólfi.

Ekkert bendi til að nýja breska veiran sé ónæm fyrir bóluefninu
Heilbrigðisráðherra Bretlands greindi frá því í dag að nýtt afbrigði kórónuveirunnar hafi fundist í landinu. Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, segir ekkert benda til þess að nýja breska veiran sleppi fram hjá bóluefninu sem hefur verið þróað.

Búum til betri borg
Í dag er síðari umræða borgarstjórnar um fjárhagsáætlun 2021, ársins þar sem stjórnmálamenn þurfa að sýna dug og þor til að stíga stór skref upp úr kórónukreppunni. Við munum fá bóluefni til að lífið fari aftur af stað.

Óvissa varðandi hópamyndanir utandyra
Óljóst er hvort gluggatónleikar Priksins á Laugavegi á laugardag brutu gegn reglum um samkomubann. Sóttvarnalæknir segir hins vegar ljóst að útitónleikar séu ekki í anda sóttvarnareglna, þó svo að þeir brjóti hugsanlega ekki gegn reglunum.

Aflýsa öllum áramótabrennum á höfuðborgarsvæðinu
Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu hafa ákveðið að fella niður allar áramótabrennur sem skipulagðar hafa verið á höfuðborgarsvæðinu í ár. Ákvörðunin var tekin í ljósi þess að samkomubann miðast við tíu manns og „mikilvægt að sveitarfélögin hvetji ekki til hópamyndunar,“ segir í tilkynningu á vef Reykjavíkurborgar.

Fjölmenningarráð vill greinargerð frá Fjölskylduhjálp eftir að fleiri stíga fram og lýsa mismunun
Fjölmenningarráð Reykjavíkurborgar hefur farið fram á að Fjölskylduhjálp Íslands skili greinargerð um hvernig tryggt sé að þar sé unnið gegn mismunun við úthlutun til skjólstæðinga. Formaður ráðsins segir skjólstæðinga og sjálfboðaliða af erlendum uppruna hafa lýst mismunun í starfi samtakanna.

One Direction stjarna með tónleika í Reykjavík
Tónlistarmaðurinn og meðlimur hljómsveitarinnar One Direction, Louis Tomlinson mun koma fram á tónleikum í Valsheimilinu þann 18. ágúst á næsta ári. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Tónleik, sem standa fyrir viðburðinum.

Kráaeigendur krossleggja fingur eftir fund með fulltrúum Svandísar og Þórólfs
Eigendur öldurhús í miðbæ Reykjavíkur fagna því að þeim virðist sem fulltrúar heilbrigðisráðherra og sóttvarnalæknis hafi mögulega séð ljósið á fundi þeirra síðastliðinn föstudag.

Misstórir reikningar smábarna
Vinstri stjórnin í Reykjavíkurborg hefur lofað öllum börnum plássi í leikskóla frá 18 mánaða aldri. Sú er ekki alltaf raunin og mörg börn komast mun síðar að. Loforðið er því innantómt. Foreldrar sem búa í barnmörgum hverfum eða í hverfum með vinsælum leikskólum, þurfa að bíða lengur.

„Þetta er algjört met, algjört met"
Sjaldan hafa eins margir listamenn verið með verk sín til sölu fyrir jólin í miðbæ Reykjavíkur og í ár. Formaður sambands íslenskra myndlistarmanna segir alla í spreng eftir að hafa verið einir á vinnustofum sínum í Covid.

Rotturnar í Reykjavík
Í Reykjavík er rottugangur um nær alla borg í eiginlegum skilningi. Álitið er að stofninn sé stór í Þingholtum, Hlíðum og Vesturbæ en úthverfin eru að mestu rottulaus. Það sem er sérstakt við íslenska rottustofninn er að hann heldur sig að mestu í holræsakerfum Reykjavíkur.

Prikið heldur ekki fleiri gluggatónleika
Prikið Kaffihús mun ekki halda fleiri gluggatónleika. Ákvörðunin var tekin eftir að hópur myndaðist fyrir utan staðinn síðastliðinn laugardag þegar tónlistarmaðurinn Auður hélt tónleika í glugga staðarins. Margir tónleikagestanna voru ekki með grímur fyrir vitum og stóð fólk þétt saman.

Segir ekki koma í ljós fyrr en eftir viku hvort veiran hafi dreift sér á gluggatónleikunum
Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, segir það vel hugsanlegt að kórónuveiran hafi eitthvað náð að dreifa sér á gluggatónleikum við Prikið í miðbæ Reykjavíkur á laugardag.

34 nemendur og átta starfsmenn Ölduselsskóla í sóttkví vegna smits
34 nemendur í yngstu árgöngum Ölduselsskóla í Reykjavík, auk átta starfsmanna, eru komin í sóttkví eftir að í ljós kom í gær að starfsmaður skólans hafi smitast af kórónuveirunni.

Loforð um fasteignaskatta uppfyllt
Fyrir borgarstjórnarkosningarnar 2018 lagði Viðreisn áherslu á atvinnumál. Við settum meðal annars fram loforð um lækkun fasteignaskatta á atvinnuhúsnæði úr 1,65% í 1,60% á kjörtímabilinu.

Auka sóttvarnir á næstu gluggaskemmtunum
Forsvarsmenn Priksins hyggjast halda áfram að bjóða gestum og gangandi á Laugavegi upp á „gluggaskemmtun“ og munu á sama tíma gera allt mögulegt til að tryggja öryggi viðstaddra.

Vonbrigði að heyra af fjölda samkvæma og varhugaverðri hópamyndun á Laugavegi
Lögreglan fékk þrjátíu tilkynningar um hávaða í heimahúsum í gærkvöldi og nótt og stór hópur fólk safnaðist saman á Laugaveginum vegna tónleika Auðar síðdegis í gær. Rögnvaldur Ólafsson, deildarstjóri almannavarnadeildar, segir mikil vonbrigði að heyra af þessu.

Mikið um samkvæmi og ekki allir sem virtu tíu manna hámarkið
Hundrað mál voru skráð hjá lögreglu frá klukkan 17 síðdegis í gær til klukkan fimm í morgun. Fangageymslur voru nánast fullar eftir nóttina samkvæmt dagbók lögreglu og var fólk vistað það vegna hinna ýmsu mála.