Akureyri

„Efling“ framhaldsskóla
Laust fyrir hádegið þann 5. september síðastliðinn fengu kennarar, nemendur og allt starfslið við MA og VMA tilkynningu í pósti um að skólahald við skólana yrði fellt niður frá kl. 14:00 og boð um fund kl. hálf þrjú um framtíðarskipulag náms á framhaldsskólastigi á Akureyri.

Vanhugsuð sameiningaráform
Umræðan um mögulega sameiningu MA og VMA fer hátt þessa dagana sem von er. Sitt sýnist hverjum og sem betur fer halda flest sig við málefnaleg rök en ekki ómerkileg skot á milli skólanna tveggja eða samanburð sem á sér fáar röksemdir. Það er þó alls ekki einhlítt (því miður) og ég legg áherslu á að mér finnast skólarnir tveir merkilegar og mikilvægar stofnanir.

Mótmæli nemenda snúist fyrst og fremst um skólamenningu
Skólameistari Menntaskólans á Akureyri segir mótmæli nemenda við mögulegri sameiningu skólans við Verkmenntaskólann á Akureyri fyrst og fremst byggð á skólamenningu. Sameining skólanna myndi auka gæði bóknáms á Akureyri og efla þá.

„Gat ekki ímyndað mér að ég gæti orðið leikari“
Leikarinn og myndlistarmaðurinn Kolbeinn Arnbjörnsson hefur mundað pensilinn frá unga aldri. Á sama tíma dreymdi hann um að verða leikari.

Mótmæltu sameiningu MA og VMA: „Ásmundur segðu af þér!“
Fjöldi nemenda Menntaskólans á Akureyri mótmæltu í dag fyrirhugaðri sameiningu skólans og Verkmenntaskólans á Akureyri.

Hlýr og óvenju hægviðrasamur ágúst
Ágúst var hlýr, óvenju hægviðrasamur og tiltölulega þurr víðast á landinu. Víða féll meirihluti mánaðarúrkomunnar á aðeins einum til tveimur sólarhringum seint í mánuðinum. Sumarmánuðirnir voru afar ólíkir veðurfarslega.

Sjokkeraðir nemendur MA boða til mótmæla á Ráðhústorgi
Nemendafélag Menntaskólans á Akureyri hefur boðað til mótmæla á Ráðhústorgi bæjarins í dag vegna mögulegrar sameiningar skólans og Verkmenntaskólans á Akureyri. Forseti nemendafélags MA segir nemendur í sjokki eftir fund með ráðherra í gær og óttast að rótgrónar hefðir innans skólans glatist með sameiningu.

„Okkur finnst þetta hreinlega svolítið vanhugsað“
Forseti Hugins, skólafélags Menntaskólans á Akureyri, segir að mikill meirihluti nemenda sé mótfallinn sameiningu skólans við Verkmenntaskólann á Akureyri. Hún sakar menntamálaráðherra um útúrsnúning og segir nemendur svikna eftir að hafa ekki fengið að tjá sig um málið.

Funduðu með starfsfólki og nemum um sameiningu MA og VMA
Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, Sigríður Huld Jónsdóttir, skólameistari Verkmenntaskólans á Akureyri, og Karl Frímannsson, skólameistari Menntaskólans á Akureyri, héldu í dag fund með starfsfólki og nemendum beggja skóla um sameiningu skólanna. Skólameistararnir eru jákvæðir fyrir sameiningu.

„Allir nemendur sammála um að þetta sé alveg galið“
Það kastaðist í kekki milli nemenda Menntaskólans á Akureyri og rútubílstjóra á bílastæði skólans í síðustu viku. Rútubílstjórar nota enn bílastæðið til að hleypa ferðamönnum í Lystigarðinn og leggja um leið fyrir nemendur. Tveir nemendur svöruðu í sömu mynt og upp úr sauð á bílastæðinu.

Hlakkar til að starfa með föður sínum sem stjórnarformaður
Baldvin Þorsteinsson, sonur Þorsteins Más Baldvinssonar, hefur verið kjörinn nýr stjórnarformaður Samherja. Hann segist hlakka til að starfa með föður sínum, sem er forstjóri fyrirtækisins, og öðru starfsfólki Samherja.

Komum ósjúkratryggðra fjölgað um 50 prósent frá því í fyrra
Komum ósjúkratryggðra einstaklinga á Sjúkrahúsið á Akureyri hefur fjölgað um 50 prósent frá fyrra ári, það sem af er ári. 512 hafa sótt þjónustu spítalans í ár en fjöldinn var 331 í fyrra.

Vaðlaheiðagöng töpuðu 1,3 milljarði vegna hárra fjármagnsgjalda
Há fjármagnsgjöld leiddu til þess að Vaðlaheiðargöng voru rekin með miklu tapi í fyrra. Félagið þarf að greiða að lágmarki tvisvar á ári allt laust fé umfram 50 milljónir króna inn á verðbættan höfuðstól láns, samkvæmt viðauka við lánasamning sem gerður var síðasta sumar þegar fjárhagur þess var endurskipulagður og eignarhaldið færðist nær alfarið í hendur ríkisins.

Helgi Rúnar Bragason fallinn frá
Helgi Rúnar Bragason, fyrrverandi þjálfari og leikmaður í körfubolta, er látinn aðeins 47 ára að aldri.

Bæjarfulltrúi verður framkvæmdastjóri hjá Orkusölunni
Andri Teitsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar og framtíðar hjá Orkusölunni.

Dómur fyrir hrottalega frelsissviptingu ekki bersýnilega rangur
Hæstiréttur hefur hafnað áfrýjunarleyfisbeiðni Þórðar Más Sigurjónssonar sem var sakfelldur fyrir frelsissviptingu, líkamsárás og hótanir, sem og önnur brot. Maðurinn vildi meina að dómar héraðsdóms og Landsréttar í málinu væru bersýnilega rangir, en Hæstiréttur féllst ekki á það.

„Ég er heppin að vera á lífi“
Framhaldsskólakennari á Akureyri höfuðkúpu-, kinnbeins- og kjálkabrotnaði þegar hún féll af rafhlaupahjóli á dögunum undir áhrifum áfengis. Hún segist sannarlega ætla að læra af asnaskap sínum.

Skuldir fljótar að safnast upp ef nokkrir mánuðir fara í ranga átt
Formaður fræðslu- og lýðheilsuráðs Akureyrarbæjar segir fimleikafélag bæjarins þurfa að sameinast öðru íþróttafélagi svo laga megi reksturinn. Bærinn mun sjá til þess að fimleikastarfið hefjist aftur í haust, sama hvað, en félagið skuldar um tuttugu milljónir.

FIMAK stefnir í gjaldþrot og bærinn reynir að þvinga sameiningu
Fimleikafélag Akureyrar (FIMAK) glímir við umtalsverða fjárhagserfiðleika og mun að óbreyttu lýsa sig gjaldþrota. Fastráðnum starfsmönnum var sagt upp störfum en til stendur að ráða þá aftur í haust. Útlit er fyrir að félagið muni skulda yfir 20 milljónir króna í lok sumars. Stjórnarformaður segir að fimleikastarf muni halda áfram í bænum.

Lyklamaðurinn fékk 45 daga fangelsisdóm
Karlmaður búsettur á Akureyri hefur verið dæmdur í 45 daga fangelsi fyrir að hafa unnið skemmdarverk á tveimur bílum í bænum í febrúar með því að rispa lakk bílanna með húslyklum.

Braut sér leið inn og hreytti ókvæðisorðum í eiginkonuna fyrir framan börnin
Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur dæmt karlmann fyrir brot á barnaverndarlögum og stórfelldar ærumeiðingar gegn maka fyrir að hafa brotið sér leið inn í íbúð á Akureyri og hreytt ókvæðisorðum í eiginkonu sína fyrir framan börn þeirra.

Magnaður ævintýragarður á Akureyri þar sem er ókeypis inn
Það er mikið ævintýri að skoða Ævintýragarðinn við Oddeyrargötu á Akureyri því þar hefur eigandinn smíðað ýmsar skemmtilegar persónur úr þekktum ævintýrum og dreift um garðinn. Gamlir tannburstar eigandans eru í aðalhlutverki á einu verkanna. Sjón er sögu ríkari.

Þjóðhátíðin í ár sé með þeim bestu hingað til
Verslunarmannahelgin sem nú er að líða undir lok fór að mestu leyti vel fram víðast hvar á landinu. Lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum segir Þjóðhátíðina í ár með þeim bestu hingað til frá löggæslulegu sjónarmiði séð. Hátíðahöld fóru einnig almennt vel fram á Akureyri, Flúðum og í Neskaupstað.

Líf og fjör víðast hvar um Verslunarmannahelgina
Skemmtanahald um Verslunarmannahelgina hefur farið vel fram og enn sem komið er hafa engin stór mál komið á borð lögreglu á helstu útihátíðum. Mikil stemning hefur verið víða um landið.

Verslunarmannahelgin fer vel af stað
Skemmtanahald og umferð hefur gengið vel nú þegar stærsta ferðahelgi ársins fer fram og hátíðarhöld víða um land. Gestir á Þjóðhátíð eru fleiri en síðustu ár en þeim hefur fækkað á Akureyri.

Þrjátíu ára aldurstakmark en allir yfir tvítugu velkomnir
Stærsta ferðahelgi ársins er að ganga í garð og víða mikil dagskrá í tilefni hennar. Akureyringar hefja helgina á Sjallaballi í kvöld, þar sem er þrjátíu ára „aldurstakmark“ samkvæmt hefð. Skipuleggjandi segir þó að þeir sem hafa náð aldri fái að fara inn á ballið.

Verslunarmannahelgin 2023: Hvað er í boði?
Verslunarmannahelgin, stærsta ferðahelgi ársins, nálgast nú óðfluga. Hjá mörgum er það fastur liður að skella sér á útihátíð og það er svo sannarlegu úr ýmsu að velja.

Mygla og uppsöfnuð viðhaldsþörf hafi verileg áhrif á hjúkrunarheimili
Teitur Guðmundsson, læknir og forstjóri Heilsuverndar hjúkrunarheimila, segir að seinagangur sé á ríkinu þegar kemur að viðgerðum á fasteignum Heilsuverndar á Akureyri. Hann segir ljóst hvar ábyrgðin á vandamálunum í húsnæðinu liggur.

Tvöfaldur íbúafjöldi á hinsegin hátið í Hrísey
Það er mikið um dýrðir í Hrísey þessa helgina. Þar er haldið upp á hinsegin daga í fyrsta sinn og er búist við því að tvöfaldur íbúafjöldi sé staddur á eyjunni yfir helgina.

Endurgreiða fyrsta skemmda ísinn í sögu Ísbílsins
Ísbíllinn endurgreiðir 34 ístegundir sem seldar voru í Eyjafirði, Skagafirði og Austur-Húnavatnssýslu 8. til 10. júlí síðastliðinn. Vegna mistaka hjá Samskipum hálfþiðnaði ís á leið til Akureyrar. Eigandi Ísbílsins segir um að ræða í fyrsta sinn sem slík mistök verði, það sé mikil vinna að verða við öllum endurgreiðslubeiðnunum.