Vinnumarkaður
16 17 18 19 20 21 22 23 24 … 97 ›
Búið að semja og öllum verkföllum aflýst Ellefu aðildarfélög BSRB og Samband íslenskra sveitarfélaga undirrituðu nýjan kjarasamning á áttunda tímanum í morgun. Verkfallsaðgerðum 2500 félagsmanna aðildarfélaga BSRB í þrjátíu sveitarfélögum hefur verið aflýst. Innlent 10.6.2023 07:54
Segir verðbreytingar eðlilegar og til marks um mikla samkeppni Framkvæmdastjóri Krónunnar hafnar því að matvöruverslanir hafi samræmt vöruverð eftir að ný verðgátt fór í loftið. Verðbreytingar séu eðlilegar og til marks um mikla samkeppni. Samkeppniseftirlitið mun fylgjast með framvindu mála. Neytendur 9.6.2023 20:01
Komin til starfa en launin enn óákveðin Unglingar hófu störf hjá Vinnuskóla Reykjavíkur í dag. Svo vill til að upplýsingar um kaup og kjör þeirra liggja enn ekki fyrir. Innlent 9.6.2023 16:58
Alvarleg staða ríki á fákeppnismarkaði Alvarleg staða ríkir á fákeppnismarkaði og samfélagsleg ábyrgð fyrirtækja lítil að sögn formanns VR sem segir vísbendingar um að matvöruverslanir hafi samræmt vöruverð sitt nokkrum dögum áður en ný verðgátt var opnuð almenningi, óásættanlegar. Auka verði samkeppni. Neytendur 9.6.2023 13:30
Á annan tug verkfallsbrota hafi átt sér stað BSRB segir að á annan tug verkfallsbrota hafi átt sér stað í að minnsta kosti þrettán sveitarfélögum síðustu tvo sólarhringa. Verkfallsbrot á leikskólum hafi verið sérstaklega áberandi síðustu daga, þar sem stjórnendur leikskóla virðist hafa fengið fyrirmæli um breytingar á skipulagi sem feli í sér verkfallsbrot. Eins hafi borist ábendingar um brot á bæjarskrifstofum og í sundlaugum. Innlent 8.6.2023 17:48
Segir sveitarfélögin jafnvel í hættu á að missa jafnlaunavottunina Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, segir ákvörðun sveitarfélaganna að greiða ekki sömu laun fyrir sömu störf heldur mismuna fólki eftir því hvaða stéttarfélagi það tilheyrir brjóta gegn jafnréttislögum og jafnlaunavottun. Innlent 8.6.2023 13:40
Sjálfbærniskýrslan 2023: Verðlaunin staðfesta hvað Marel er að gera í sjálfbærnimálum „Við erum mjög hreykin af þessum verðlaunum sem staðfesta hvað við erum að gera í sjálfbærnimálum. Það hefur líka sýnt sig að það er leitni á milli þess að standa sig vel í sjálfbærnimálum og góðs reksturs,“ segir Árni Oddur Þórðarson forstjóri Marel og formaður Nordic CEOs for a Sustainable Future, en rétt í þessu var tilkynnt að Marel er verðlaunahafi Sjálfbærniskýrslu ársins 2023. Atvinnulíf 8.6.2023 13:00
Ragnar telur seðlabankastjóra í ójafnvægi Fyrrverandi ríkissáttasemjari minnir seðlabankastjóra á að tala af virðingu um aðila vinnumarkaðarins og hafnar því að hafa reynt að hafa áhrif á ákvarðanir bankans. Formaður VR segir seðlabankastjóra í ójafnvægi og vísar orðum um meintan óstöðugleika sinn á samningafundum til föðurhúsanna Innlent 8.6.2023 12:30
Vilja sveitarfélögin mismuna fólki? Þegar kom í ljós að starfsfólk sveitarfélaganna fékk mismunandi laun fyrstu þrjá mánuði ársins eftir hvaða stéttafélagi það tilheyrði, töldum við í BSRB að málið yrði fljótafgreitt í ljósi sögunnar. Sveitarfélögin voru fyrstu atvinnurekendur landsins til að taka upp samræmt starfsmatskerfi sem hafði það að markmiði framfylgja jafnlaunaákvæðum laga og tryggja starfsfólki sömu laun fyrir sömu eða jafnkrefjandi störf óháð kyni, vinnustað eða stéttafélagi. Skoðun 8.6.2023 12:33
„Þetta er þvílík vanvirðing fyrir þessa stétt“ Fjölmenn mótmæli fóru fram við húsnæði Sambands íslenskra sveitarfélaga í morgun. Mótmælin voru skipulögð af foreldrum sem voru orðnir langþreyttir á deilu sambandsins við BSRB. Framkvæmdastjóri sambandsins mætti á mótmælin en orð hans til mótmælenda féllu í grýttan jarðveg. Innlent 7.6.2023 19:31
Sjálfbærniskýrslan 2023: Fyrirtækin farin að rýna betur í sína eigin starfsemi Á morgun verður tilkynnt hver hlýtur viðurkenninguna fyrir sjálfbærniskýrslu ársins 2023. Atvinnulíf 7.6.2023 11:00
Félög BSRB eiga digra sjóði sem duga í langt verkfall Sveitarfélögin hafa ekki samið um leiðréttingu eða eingreiðslu við önnur stéttarfélög sem nýlega er samið við eins og BSRB krefst þess að fá. Formaður BSRB segir greiðsluna hins vegar réttlætismál og þau ellefu félög sem nú væru í verkfalli ættu digra sjóði sem gætu staðið undir verkfallsbótum í langan tíma. Innlent 6.6.2023 19:33
Samningaviðræður sigldar í strand Fundi samninganefnda BSRB og Sambands íslenskra sveitarfélaga hefur verið slitið. Innlent 6.6.2023 12:23
Segir gríðarlega ólgu á vinnustöðunum en er ekkert sérlega bjartsýn Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, sagðist fyrir samningafundinn sem nú stendur yfir hjá ríkissáttasemjara vonast eftir afstöðubreytingu af hálfu Sambands íslenskra sveitarfélaga í kjaraviðræðunum sem nú standa yfir. Innlent 6.6.2023 11:11
„Þetta tilboð frá okkur hafði legið á borðinu í sex mánuði“ Inga Rún Ólafsdóttir, sviðsstjóri kjarasviðs hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, segir krafa BSRB um eingreiðslu vegna munar á samningi BSRB og SGS við sveitarfélögin tilhæfulausa. Samningurinn hafi legið á borði BSRB í sex mánuði, félagið hafi verið hvatt til að breyta samningum en því tilboði hafi verið hafnað. BSRB geti auðveldlega leitað til dómstóla telji stéttarfélagið sig svikið. Innlent 6.6.2023 10:56
Mistök hafi verið gerð „hamfaranóttina“ hjá sáttasemjara í mars 2020 Varaformaður BSRB segir það ekki rétt að félagið sé að fara fram á afturvirkni á hækkun launa í kjaraviðræðum sínum við Samband íslenskra sveitarfélaga. Hugtakanotkun hafi ruglað umræðuna verulega og ekki á góðan veg. Þá segir hann að mistök hafi verið gerð í síðustu kjarasamningum þegar heimsfaraldur kórónuveirunnar var að skella á landið í mars 2020. Innlent 6.6.2023 09:38
36 sundlaugum lokað og fjöldi íþróttahúsa líka Verkfallsaðgerðir um 2500 félagsmanna BSRB í 29 sveitarfélögum verða meðal annars til þess að íbúar munu ekki komast í sund í sveitarfélagi sínu á meðan verkfallsaðgerðum stendur. Viðræður við Samband íslenskra sveitarfélaga eru í hnút og ekki hefur verið boðað til næsta fundar eftir að upp úr slitnaði í viðræðum í nótt. Innlent 5.6.2023 12:35
Auglýst eftir forystuhæfileikum og „framúrskarandi samskiptahæfni“ Embætti ríkissáttasemjara hefur verið auglýst laust til umsóknar en meðal þeirra hæfniskrafa sem gerðar eru til umsækjenda eru forystuhæfileikar og „framúrskarandi samskiptahæfni“. Innlent 5.6.2023 12:08
Segja ábyrgðina alfarið hjá BSRB Samband íslenskra sveitarfélaga segir BSRB alfarið um að kenna að verkfall sé skollið á. Tilboði um hækkun lægstu launa upp á 50-60 þúsund krónur hafi verið hafnað. Innlent 5.6.2023 10:26
Engin hópuppsögn í maí Engin tilkynning um hópuppsögn barst Vinnumálastofnun í síðasta mánuði. Viðskipti innlent 5.6.2023 10:12
Viðbúið að menn „dusti rykið af málskjölunum“ Næstu mánaðamót munu vænt mánaðarleg réttindi félagsmanna LSR lækka um tæp 10 prósent og lífeyrisgreiðslur þeirra sjóðsfélaga sem ekki eru í bakábyrgð ríkissjóðs lækka um rúm 4 prósent. Innlent 5.6.2023 08:23
Mikill þungi færist nú í aðgerðirnar segir formaður BSRB Engin niðurstaða varð af löngum fundi í Karphúsinu í nótt á milli BSRB og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Fundi lauk á öðrum tímanum í nótt og stefnir í víðtækar verkfallsaðgerðir í dag. Innlent 5.6.2023 06:38
Enn engin niðurstaða í sjónmáli Enn er engin niðurstaða komin í karphúsinu í viðræðum stéttarfélagsins BSRB og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Fundur hefur staðið yfir í ellefu klukkustundir. Innlent 4.6.2023 23:50
Foreldrar fegnir að leikskóli í Grindavík gleymdist Forsvarsmenn BSRB gleymdu að nefna leikskólann Laut í Grindavík á lista yfir starfsstaði þar sem verkfall er boðað á morgun. Foreldrar eru fegnir en leikskólastjórinn segir um mannleg mistök að ræða. Innlent 4.6.2023 20:44
Foreldrar skulu gera ráðstafanir Freyja Steingrímsdóttir samskiptastjóri BSRB segir lítið hafi breyst í kjaraviðræðum Sambands íslenskra sveitarfélaga og BSRB. Enn er fundað í karphúsinu en allsherjarverkfall hefst að óbreyttu á morgun. Innlent 4.6.2023 19:30
Ákvörðunin skiljanleg en breyti ekki viðfangsefninu Formaður VR telur að afsögn Aðalsteins Leifssonar, fyrrverandi ríkissáttasemjara, muni ekki hafa áhrif á komandi kjaraviðræður. Enginn þrýstingur hafi verið frá hans armi verkalýðshreyfingarinnar um afsögn. Innlent 1.6.2023 13:01
Fundi slitið um nótt en verður fram haldið klukkan eitt Samningafundi forrystufólks BSRB og Sambands íslenskra sveitarfélaga hjá ríkissáttasemjara lauk laust fyrir klukkan tvö liðna nótt. Innlent 1.6.2023 06:25
Segir ákvörðunina alfarið hans eigin „Eftir að hafa verið vakinn og sofinn yfir á þessu verkefni langar mig einfaldlega að breyta til,“ segir Aðalsteinn Leifsson ríkissáttasemjari sem lætur nú af embættinu. Tvö ár eru eftir af skipunartíma Aðalsteins en ákvörðunina segir hann alfarið hans eigin. Innlent 31.5.2023 16:41
Þingmenn eigi ekki sjálfir að vasast í eigin kjörum Tekist var á um fyrirhugaðar launahækkanir æðstu embættismanna á Alþingi í dag. Áformin hafa fallið í grýttan jarðveg hjá forystumönnum verkalýðshreyfingarinnar sem vinna nú að gerð nýrra kjarasamninga til langs tíma. Þingmaður VG segist skilja gremjuna og þingmaður Viðreisnar segir sjálfsagt að endurskoða áformin en ekki sé meirihluti fyrir því á þingi. Innlent 30.5.2023 21:22
Dómur í máli kennara í Bláskógabyggð stendur Hæstiréttur hefur hafnað áfrýjunarbeiðni Bláskógabyggðar í máli kennara sem var í Landsrétti dæmdar miskabætur vegna ólöglegrar áminningar og uppsagnar. Innlent 30.5.2023 15:00
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu: „Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent